Strandapósturinn - 01.06.1973, Qupperneq 27
margar voru deilur þeirra og skammt höggva milli. Var þá róstu-
samt í Kollafirði og áttu ýmsir högg í annars garði, enda fleiri
menn skapstórir þar í hjeraði en þeir, sem nefndir voru. Fjarri
skal því að hjer verði lagður nokkur dómur á deilur þessar, enda
heyrir hann drotni til en ekki mönnum.
Islendinga mun seint bresta misklíðarefnin, þau hafa um allar
aildir „morað milh fjalla“: en mennirnir kljást með ýmsum hætti,
eftir þvi hvernig skapi þeirra er háttað; sumar mýsnar læðast, en
aðrar stökkva, og er mælt að þær sjeu engu betri, sem læðast. —
Skarphjeðinn mælti: „Leiðist mjer þóf þetta — ok er miklu drengi-
legra at menn vegist með vápnum“. En — enda þótt þeir fyndust
eigi með blóðugum bröndum, Guðjón á Ljúfustöðum og sjera Am-
ór á Felli, mun enginn neita því, að viðureign þeirra öll væri óað-
finnanleg röggsamleg, skýr og skorinorð; þeir vom hvömgur
mýsnar sem læddust. Þeir sættust síðar og mátu jafnan hvor ann-
an mikils, þrátt fyrir ósamlyndið, enda beitti hvoragur annan ó-
drengilegum brögðum, að kunnugustu manna sögn.
Þessa er getíð hjer til skilningsauka á Guðjóni Guðlaugssyni, en
vissara mun að slá nokkum vamagla áður en skilist er við þetta:
Guðjón er enginn ofstopi eða ójafnaðarmaður, hann er maður
hversdagslega kurteis og lengstum stiltur vel og gætinn. Brjóstgóð-
ur er hann og notalegur við alt, sem bágstatt er og minni máttar,
og hinn raunbesti maður.
Þá mun það eigi mikið úr hófi mælt að „gestrisnin á guða-
stóli situr“ í híbýlum hans, var og hin ágæta, látna kona hans,
Ingibjörg Magnúsdóttír, eigi eftirbátur bónda síns að þessum
notalegu mannkostum. Hún andaðist 8. nóv. 1913, mesta myndar-
og sæmdarkona.
Guðjón kvæntist í annað sinn 27. des. síðastl., Jóneyju Guð-
mundsdóttur frá Tungugröf í Steingrímsfirði. —
Það er trúa mín að Strandasýsla hafi eigi um langt skeið hýst
þjóðnýtari mann eða merkilegri en Guðjón Guðlaugsson er, og
veit jeg með vissu, að Strandamenn allir verða mjer sammála um
þessa hluti, nær sem hann hverfur þeim sýnum til fulls.
Svo kvað Sigurður Kristjánsson bóksali á öndverðum þingáram
Guðjóns:
25