Strandapósturinn - 01.06.1974, Side 32
Hjálmarsson sótti hann. Verið var að sækja læknirinn norðan
úr hreppi. Jóhann var á skíðum, en Arni var þeim óvanur og
var því gangan erfið, þar sem ófærð var mikil skíðalaust.
Hvíldi hann sig um stund og þáði beina, og voru þeir svo
fluttir yfir fjörðinn.
Það var Ijarri því, að allar ferðir yfir rrékyllisheiði væru
hrakningum eða erfiðleikum háðar. Arið 1915 var Arnesi
þjónað af séra Guðlaugi Guðmundssyni á Stað í Steingríms-
firði. Fyrsta ferð hans norður var til að ferma börnin, sem voru
að þessu sinni 12 að tölu. Kom hann yfir heiði og var
fylgdarmaður hans Ingimundur Jónsson á Bassastöðum. Sem
að líkindum lætur stansaði hann heima. Við vorum tvö, sem
áttum að fermast, Oli og ég, og vorum við tafarlaust drifin inn
í litlu stofuna til að heilsa prestinum þó við værum feimin og
kvíðandi, en það stóð ekki lengi og hvarf sem dögg fyrir sólu er
presturinn hafði talað svo hlýlega við okkur, að öllum
áhyggjum var af létt. Fórum við svo daginn eftir norður í
Arnes til undirbúnings fermingar hjá séra Guðlaugi, þeim
mæta presti og manni.
Svo kom hann oft til að messa um sumarið og til annara
embættisverka. Um haustið tók hann manntal í hreppnum.
Fjórir prestar sóttu um Arnes. Séra Sveinn Guðmundsson,
sem hlaut kosningu, séra Ólafur Stephensen og séra Jóhannes
Lyn. Allir messuðu þeir í Arnesi. Eg er búin að gleyma hvað sá
fjórði hét. Hann var sá eini, sem ekki kom. Prestarnir komu
yfir heiði og gistu í Kjós. Voru þeir vel ríðandi og á fallegum
hestum, enda langt að komnir. Það er rétt svo að ég man eftir
þegar séra Guðmundur frá Gufudal kom að nóttu til yfir heiði.
Hann mun hafa verið að vinna að bindindismálum í þeirri
ferð. Betur man ég þegar Ari Jónsson Arnalds bauð sig fram
til þings móti Guðjóni Guðlaugssyni. Hann kom yfir heiði og
fór norður í sveit og hefur trúlega haldið þar fundi. Hann gisti
í báðum leiðum heima. Einnig kom Jón Þórarinsson fræðslu-
málastjóri og ýmsir fleiri þekktir menn, svo sem Póst- og
símamálastjóri, mun það hafa verið 1917-18. Þá var farið að
tala um að leggja síma norður um leið og síldarsöltunarstöðv-
arnar komu, þó ekki yrði af framkvæmdum fyrr en 1923. Allar
30