Strandapósturinn - 01.06.1974, Page 121
Hrognkelsi voru verkuð að miklu leyti á sama hátt og nú er
gert, rauðmaginn borðaður nýr, eða hann var reyktur og
saltaður, grásleppan var yfirleitt fiött og kúluskorin og því
næst hengd upp í hjall og látin síga, þó var nokkuð hert og
borðað hrátt á sama hátt og harðfiskur. Grásleppan var hert í
tyrfðum hjöllum, þar sem sól náði ekki að skína á hana og
þránaði hún þá mjög lítið. Hert grásleppa þótti allgóður
matur. Rauðmaginn var ekki hertur, því hann þránaði of
mikið. Söltuð grásleppa þótti herramannsmatur væri hún
stafiasöltuð, vatnið pressaðist þá úr henni við þungann í
stafianum, svo hún varð þétt í sér og þótti eins og áður er sagt
mjög góður matur. Kviðhvelja af báðum kynjum var hert og
borðuð þannig, að hún var lögð á glóð og steikt, allar körtur
hreinsaðar af með hníf og hveljan borðuð með bræðing.
Hvelja af stórum grásleppum var stundum notuð til skógerðar
á börn og unglinga. Þá var hveljan af hverri hlið tekin þannig
að hún var fiegin dálítið upp í kambinn og hin röndin skorin
niður við veiðikúlu og gotrauf. Þannig fékkst skæði af hvorri
hlið. Þá voru hliðarkambarnir flegnir þar til hveljan varð
jafnþykk, en þá var hún hert og geymd þannig. Þegar átti að
búa til skó úr hveljunni, var hún bleytt upp og löguð til, svo
hún varð eins og skæði og skórinn saumaður og verptur eins og
skór úr skinni.
Þorskur og ýsa voru borðuð ný, hert og söltuð eins og enn
gerist, smáfiskur var stundum reyktur og var þá ýmist
borðaður léttreyktur soðinn, eða hann var' fullreyktur og
borðaður hrár eins og síld, sem líka var reykt og borðuð hrá.
Flök af lúðu voru ýmist hert eða söltuð, og fór það eftir
árstíma, voru pækilsöltuð að sumrinu þegar ekki var hægt að
herða þau. Rafabelti af lúðu og spildingur voru borðuð ný eða
hert og var hert rafabelti steikt á glóð og þótti mjög góður
matur. Þorsk- og lúðuroð voru steikt á glóð og borðuð með
bræðing. Koli og smáskata (Tindabykkja) voru hert og borðuð
steikt á glóð, og með þeim hafður bræðingur.
Ég hefi talað hér um bræðing, en hann var þannig tilbúinn
að blandað var saman bræddri tólg og lýsi, oftast var notað
þorskalýsi, en einnig var notað sellýsi, hvallýsi og hákarlslýsi.
119