Strandapósturinn - 01.06.1974, Qupperneq 68
Lagði Helgi af stað til að leita að móður sinni og bróður. Er
hann fann þau var móðir hans nær króknuð úr kulda, svo að
vart mátti hún mæla, en barninu hafði hún bjargað með því
að færa sig úr foturn til þess að skýla því með. Tók Helgi
móður sína og bar hana ýmist í fanginu eða á bakinu, en
bróðir sinn leiddi hann. Komst hann loks heim eftir torsótta
og erfiða ferð, en þá var móðir hans látin. Drenginn sakaði
hins vegar ekki. Er þetta skeður er Helgi tæpra 16 ára og má
því með sanni segja að þar fari þegar æðrulaust þrekmenni.
Þetta afrek hans, sem og margra annarra, er óskráð, nema þá
sem saga í sögunni. Er hér á ferðinni Helgi faðir Maríu,
konunnar sem þessi minningabrot eru helguð. Kári og María,
sem voru búendur í Goðdal þá er þetta skeði, eru því afi
hennar og amma. En þrátt fyrir þetta áfall, sem Kári bóndi
varð fyrir, er hann missti konu sína svo snögglega, þá hélt
hann áfam búskap í Goðdal og stóð nú elsta dóttir hans,
Karólína, fyrir búi með honum. Á öðru ári frá dauða Maríu,
veiktist þessi dóttir hans og tveir synir og létust þau öll þrjú
með stuttu millibili. Nokkrum mánuðum seinna lést Kári
bóndi snögglega, rúmlega fimmtugur að aldri. Var þar með
lokið búskap þessarar fjölskyldu í Goðdal. Hún hafði búið þar
um 10 ára skeið og eitt barn hafði þeim fæðst á þeim tíma.
Fjölskyldan hafði sótt þangað harm á harm ofan og nú fóru
þessi fjögur systkini sem eftir lifðu og voru á unglings og
barnsaldri á víð og dreif, sem algengt var á þeim tíma, undir
álíka kringumstæðum. Ýmsar sögur og sagnir mynduðust og
gengu manna á meðal, um þennan mikla og óvenjulega
mannadauða úr einni og sömu ljölskyldunni á svo skömmum
tíma. Sumar þessara sagna voru með allmiklum þjóðsagnablæ.
Aðrar voru heimfærðar til hulinna afla, og enn aðrar til álaga
eða dulmögnunar.
Helgi, faðir Maríu og kona hans, Sigríður Jónsdóttir,
bjuggu í Goðdal sem fyrr segir frá 1892-95, en fluttust þá inn í
Hrófbergshrepp og þar lést Helgi tveimur eða þremur árum
seinna, ekki þrítugur að aldri. Þau hjón áttu þá tvö börn,
Maríu og Sigurð og kom í hlut Sigríðar móður þeirra að sjá sér
og þeim fyrir framfærslu. Mun henni hafa tekist það vel með
66