Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1974, Side 69

Strandapósturinn - 01.06.1974, Side 69
aðstoð góðra manna, enda voru þau systkini bráðþroska og komu því fljótt til með vinnu sem létti undir hjá móðurinni með framfærsluna. Börnin voru látin vinna er þau gátu og gilti þar jafnt hvort þau voru vandalaus eða hjá foreldrum sínum, þó að stundum væri gert upp á milli þessara barna. Svo sem fyrr segir, giftist María Helgadóttir, Ingimundi Þ. Ingimundarsyni, Guðmundssonar og konu hans Kristíönu Arnórsdóttur frá Skarði á Snæíjallaströnd við Isafjarðardjúp. Ingimundur er fæddur 11. september 1894. Hann átti lengst af heimili á Osi við Steingrímsfjörð, en þar var móðir hans og eldri bróðir búsett, en föður sinn hafði Ingimundur misst ungur að árum. Þegar þau María og Ingimundur giftust voru þau um þrítugt. Hefja þau þá búskap sem algengt var á þeim árum. En ekki var jarðnæði alltaf á lausu á þeim tímum. Á árunum 1922 til ársins 1935 eru þau búsett á þremur stöðum í Kirkjubólshreppi í Strandasýslu. Þau flytja til Hólmavíkur 1935 og þar eru þau búsett á meðan bæði lifðu. Fremur munu þau hjón hafa verið fátæk alla tíð eða svo myndi a.m.k. vera talið nú til dags. Þau eignuðust fimm börn, þrjá syni og tvær dætur. Öll eru þau börn mikið myndar- og dugnaðarfólk, sem snemma fór að vinna hjá vandalausum til að létta undir með heimilishaldi foreldra sinna. Á unglingsaldri voru bræðurnir komnir á sjóinn, sem hefur æ síðan að mestu verið þeirra lífsstarf. Dæturnar giftust á heimaslóðum föður síns, þ.e. vestur við ísafjarðardjúp, en synirnir tveir búsettir á heimaslóð þ.e. Hólmavík, en einn er búsettur í Reykjavík og er hann útgerðarmaður og skipstjóri. María var prúð og hóglát í öllu sínu lífi og lífsstarfi. Hún átti mikla og einlæga hjartahlýju, samfara hjálpsemi og einstakri gestrisni. Hún gerði sér aldrei mannamun og börn áttu alltaf hlýju og trausti að mæta hjá henni. Sama mátti segja um þá einstaklinga er minnst máttu sín eða voru á annan hátt olnbogabörn samfélagsins. Hún veitti alltaf það besta sem hún átti og það var oft umfram þörf. Þannig var höfðingslund hennar og rausn. Börn löðuðust að henni, því þau fundu að þar áttu þau trausti og skilningi að mæta. Ingimundur var langt fram eftir aldri einstakur starfs- og 67
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.