Strandapósturinn - 01.06.1982, Page 23
hjartalagað gat svo soðið gæti runnið þar niður, samskonar hak
var sett aftan á skaft á ausum til að geta hengt þær upp.
I sambandi við þessa smíðavinnu var áríðandi að hafa góðan
tálguhníf, tálguhnífar voru með skafti er féll vel í lófa. Blaðið var
frekar stutt en í það var valið gott bitstál því tálguhnífar urðu að
flugbíta, því bæði var að illa beit á trjáræturnar og svo urðu
afköstin mikið meiri en mikið þurfti að tálga þar til áhaldið var
fullbúið, að sjálfsögðu var notuð sög við að forma áhaldið í
stórum dráttum, en svo var það tálguhnífur og bjúghnífur sem
notaðir voru til að fullvinna verkið að síðustu var smíðisgripur-
inn rifinn og pússaður með háfsroði sem var sandpappír þeirra
tíma en háfsroð þótti ómissandi við flestar smíðar og var háfur
alltaf hirtur ef hann veiddist vegna þessara nota.
Klifberar voru oft smíðaðir úr trjárótum klifberaboginn var
sagaður úr kjanga og kinnarnar úr flatari rótum. Þessir klifberar
entust ákaflega vel því seigt var í trjárótunum og lítil hætta á að
þær rifnuðu í þurrkum og sólskini.
Meðal margs sem smíðað var úr trjárótum voru kjullur en það
voru áhöld til að slá á sköft á sporjárnum og öðrum áhöldum sem
voru með tréskafti.
Úr trjárótum voru smíðaðar uglur en það var áhald sem fest
var á stafnþil útihúsa og var notað til að hengja á það beisli,
reiðver og fleira, uglur gengdu sama hlutverki og snagar. Uglur
voru þannig að neðst var flötur sem féll að þilinu og var hann
festur á þilið upp frá festingunni gekk sívalur stautur eða súla er
vísaði út frá þilinu svo mjög auðvelt var að hengja á hana.
Eitt af þeim áhöldum til heimilisnota er voru ómissandi voru
hjólbörur þær voru heimasmíðaðar eins osfsöll önnur áhöld.
Þessar hjólbörur voru að ýmsu leyti líkar þeim hjólbörum sem
nú eru notaðar, þó voru kjálkarnir með breytilegra sniði, bilið
milli þeirra að framan var jafnbreitt öxullengd hjólböruhjólsins
að aftan var bilið milli kjálkanna það breitt að fullorðinn maður
gat staðið milli þeirra og tekið sitt með hvorri hendi undir þá og
ýtt börunum á undan sér, kassinn ofan á kjálkunum var með
svipuðu lagi og enn er á hjólbörum, það er að allar hliðar hans
21