Strandapósturinn - 01.06.1983, Page 92
staði á landinu. Matbjörg er þar meiri að fá en víðar annars-
staðar, hvort sem er á sumri eða vetri, utan þess að hafís iægi þar
fyrir landi.
Hinsvegar er því ekki að leyna að lífsbaráttan var hörð í
þessum landshluta, sem er einangraður meira en annarsstaðar
þekkist.
Aðstæður landfræðilega séð gerði út um að byggð gæti haldist
áfram og vó þar þyngst samgöngueinangrun og að landið bjó
ekki yfir nútíma búskapar fyrirkomulagi. Niðurstaðan varð sú að
nú er þetta nokkurskonar þjóðgarður fólkinu í landinu til handa.
Undantekning er veðurathugunarstöðin á Horni, en þar utan
girðingar frá grösin að gróa í allri þeirri fjölbreytni sem moldin
býður uppá, og öldur hafsins fleyta staurum og sprekum upp í
fjöruna til að veðrast þar um ókomin ár aungvum til gagns. Það
merkilegasta við þetta land er að loksins fékk tófan griðland og
hefur aldrei fyrr í sögunni verið friðuð.
Á meðan mannlíf stóð enn í blóma á Hornströndum fæddist
og uppólst á fyrstu tugum þessarar aldar maður sem samkvæmt
kirkjubókum Staðarkirkju hlaut nafnið Betúel Jón Betúelsson. I
Aðalvík var hans heimili fram yfir miðjan aldur, en fluttist þá til
Reykjavíkur og bjó þar til þess hann fór til feðra sinna. Eftir að
suður kom vann hann hjá Pósti og síma þar til Elli kerling sótti
hann heim.
Nokkru áður en það var, kynntist ég Betúel, og sú kynning er
einn af þeim sólskinsblettum sem á mig hafa skinið, og tel mig
fátækari ef svo hefði ekki verið.
Betúel var ekki einn þeirra manna sem hreykti sér í kynnum
við fólk. Nei síður en svo. Hreinskilinn og mannúðlegur var hann
meira en almennt gerist. Þannig átti orðtækið góða vel við hann.
„Hann var einn þeirra manna sem mátti ekki vamm sitt vita.“ Ef
hann lofaði einhverju stóð það sem stafur á bók.
Þegar okkar leiðir lágu saman, var hann búinn að leggja á
hilluna fyrir mörgum árum þessa kunnu hluti úr hans heima-
bvggð. — Handfæri — byssu og sigvað. Fyrir þetta þrennt var
hann þekktastur í Aðalvík. Róa með handfæri úti á víkina eða
vestur fyrir straumræsið. — Handleika byssu á þann veg að
90