Morgunblaðið - 21.08.2021, Blaðsíða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2021
✝
Aðalsteinn
Smárason
fæddist í Reykja-
vík þann 30. júlí
1977. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans
þann 19. júlí 2021.
Aðalsteinn átti
tvö börn, þau
Benedikt Emil, f.
14.1. 2005, móðir
Bryndís Kolbrún
Sigurðardóttir, og Tanyu
Ruth, f. 2.6. 2006, móðir
Hrefna Ýr Guðjónsdóttir. Fað-
skóla, hann fór ungur að
vinna, m.a. hjá Toppfiski, Lýsi
og HB Granda, þar sem hann
vann í bræðslunni í Reykjavík
og á Akranesi, einnig fór
hann til sjós á Faxa og Engey.
Besti tíminn hans til sjós var
á Christinu þar sem hann
gekk um borð einn, en kom
frá borði með fulla rútu af
góðum vinum sem hann hélt
góðu sambandi við alla tíð.
Alli hafði mikinn áhuga á fót-
bolta, hélt upp á KR og Liver-
pool og stundaði pílu. Að-
alsteinn greindist með
sortuæxli árið 2013.. Hann
lést á krabbameinsdeild Land-
spítalans eftir þriggja vikna
dvöl þar.
Útförin fór fram í kyrrþey
á afmælisdegi hans þann 30.
júlí 2021.
ir Aðalsteins var
Smári Að-
alsteinsson, f.
20.6. 1946, d. 9.11.
2001, og móðir
Sigrún Þorbjörns-
dóttir, f. 18.2.
1953. Systur hans
Ásta Bára Smára-
dóttir, f. 11.9. 74,
og Sigríður
Reykjalín, f.
20.11. 1970.
Aðalsteinn, eða Alli eins og
hann var oftast kallaður,
gekk í Melaskóla og Haga-
Elsku fallegi Alli minn bróð-
ir minn og besti vinur, ég
hugsa til þín þegar ég vakna á
morgnana og þegar ég fer að
sofa á kvöldin, af hverju ég get
ekki hitt þig lengur eða hringt
í þig og spjallað við þig lengur,
það er svo sárt. Við vorum svo
sterk saman og náin, treystum
hvort öðru fyrir öllu, þú varst
svo stór hluti af mínu lífi,
hjartað mitt er brostið og mun
aldrei verða heilt aftur.
Ég reyni að hugsa um allar
góðu stundirnar og öll árin sem
við áttum saman til þess að
þrauka daginn. Þú varst svo
miklu meira en bróðir, mágur
eða frændi barnanna minna, þú
varst einn af fjölskyldunni. Það
var alltaf fjör í kringum þig og
stutt í húmorinn og gleðina.
Þegar við vorum krakkar var
alltaf stemning þegar mamma
og pabbi gerðu bílinn kláran
fyrir sumarfrí. Sólin réð því
hvert var farið en það var
ferðast mikið innanlands og
mörg yndisleg sumur sem við
áttum í Skaftafelli. Þegar við
vorum orðin eldri lá leið okkar
með mömmu til Costa del Sol á
Spáni þar sem við fórum saman
á tónleika með Rolling Stones.
Þegar pabbi okkar lést langt
fyrir aldur fram styrktum við
böndin enn meir og áttum ófá-
ar ferðir til Sísíar systur okkar
með mömmu og börnunum
okkar á pallinn hjá henni þar
sem börnin hoppuðu á trampól-
íni allan daginn og við höfðum
gaman saman. Börnin þín
elsku bróðir, Benni og Tanya,
voru þér svo dýrmæt, það voru
ófáar heimsóknir á milli okkar
þar sem börnin okkar hittust
og léku sér saman, það er svo
dýrmætt hversu góðir vinir
þau eru í dag. KR, Liverpool
og píla voru í miklu uppáhaldi
hjá þér elsku bróðir, það var
svo gaman að hlusta á þig tala
um það sem þér þótti skemmti-
legt og gaman.
Þú barðist eins og hetja í
gegnum þín erfiðu veikindi og
lifðir lífinu lifandi í faðmi fjöl-
skyldunnar og með þínum góðu
vinum. Elsku bróðir, ég veit að
pabbi tekur vel á móti þér og
þið hugsið vel hvor um annan.
Þín systir,
Ásta Bára.
Fyrsta ástin, barnsfaðir og
vinur, nú ertu farinn á vit æv-
intýranna. Eftir erfið veikindi
fékkstu friðinn í faðmi allra
þeirra sem elskuðu þig. Ég á
svo margar fallegar minningar
um þig. Þú hefur verið hluti af
lífi mínu í um 23 ár. Við höfum
upplifað margt bæði sundur og
saman. Við rembdumst í rúm
10 ár við það að ganga saman í
gegnum lífið með þó nokkrum
pásum en játuðum okkur sigr-
uð, saman gátum við ekki ver-
ið.
Þú eignaðist yndislegan
dreng, Benedikt Emil, sem
hefur dafnað og þroskast svo
fallega. Hann er orðinn að svo
flottum ungum manni. Síðar
eignuðumst við dóttur okkar,
Tönyu Ruth, þvílík gleðigjöf og
hjartað mitt sprakk. Í gegnum
hennar fimmtán ár hef ég
fylgst með fallega sambandinu
ykkar. Hún sá ekki sólina fyrir
þér, þú varst líka svo nenninn.
Þú hugsaðir vel um hana og
gafst henni alla þá ást og um-
hyggju sem þú best kunnir.
Síðustu tæp sex árin náðum
við samheldni í uppeldi dóttur
okkar, tókum saman ákvarðan-
ir og er ég endalaust þakklát
fyrir hvað við vorum samstiga.
Systkini Tönyu þekkja þig sem
Alla-pabba og fannst þeim
mikið sport að hlaupa út í
glugga og fylgjast með þér
sækja Tönyu. Þau fengu
ósjaldan vink eftir bank á
gluggann. Guðni Berg hefur
mikið talað um þig í gegnum
stutta ævi sína og fannst oft
ósanngjarnt að Tanya ætti tvo
pabba og var það því á döfinni
að hann fengi að gista hjá þér
með Tönyu. Það kætti þig
mikið þegar Tanya var að
segja þér frá uppátækjum
Guðna og fannst Tönyu gaman
að segja þér frá. Litlu systkini
Tönyu viku ekki frá þér
páskana í fyrra þegar þú varst
með okkur og er ég svo glöð
með að Guðni Berg bað um að
tekin yrði mynd, sem þér
fannst góð hugmynd. Ásgrím-
ur opnaði faðm sinn er þið
hittust og öll samskipti ykkar
á milli svo falleg. Það sem ég
er þakklát fyrir þessi fallegu
samskipti sem við gátum búið
til fyrir elsku bestu dóttur
okkar.
Við áttum svo sannarlega
okkar góðu stundir sem ég
mun geyma í hjarta mínu um
ókomna tíð. Síðustu stundirn-
ar með þér voru mér svo dýr-
mætar elsku Alli minn. Þetta
er allt svo óraunverulegt en ég
mun sakna þín og ég veit að
þín verður saknað af mörgum.
Ég veit að það var tekið vel
á móti þér bæði af Smára föð-
ur þínum og móður minni. Við
gerum okkar besta við að
halda í og styrkja samband
barnanna þinna og við hlúum
að mömmu þinni. Ég ætla að
láta fylgja sama ljóð og fylgdi
minningargrein minni um
pabba þinn.
Hvíldu í friði elsku vinur, ég
elska þig.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
(Valdimar Briem)
Hrefna Ýr.
Aðalsteinn
Smárason
✝
Ólafur Þór
Kristjánsson
fæddist í Reykja-
vík 9. janúar 1938.
Hann lést 30. júlí
2021 á Hrafnistu
Laugarási.
Foreldrar Ólafs
voru Kristján Hall-
dórsson sjómaður,
f. 20. mars 1906, d.
11. janúar 1944, og
Anna Vilmund-
ardóttir, húsfreyja og verka-
kona, f. 30. júlí 1916, d. 7. jan-
f. 23. júlí 1900, d. 15. febrúar
1980. Kjördóttir þeirra var
Ólöf Geirsdóttir, f. 4. desember
1935, d. 9. júlí 2016.
Ólafur Þór giftist Erlu Svan-
hildi Ingólfsdóttur 9. janúar
1956. Börn þeirra eru:
1) Kristján Geir, f. 2. júní
1963, sambýliskona hans er Ei
Amm. 2) Þórdís, f. 11. janúar
1966, sambýlismaður hennar er
Þorgrímur Friðrik Jónsson.
Börn hennar eru: a) Erla Björk
Guðjónsdóttir, f. 1986, eig-
inmaður hennar er Kristmann
Jónsson. Börnin þeirra eru
Bjarki Freyr, f. 2010, og Erik
Fannar, f. 2020. b) Aníta Rut
Guðjónsdóttir, f. 1988, sam-
býlismaður hennar er Halldór
Guðni Traustason. Börnin
þeirra eru Katrín Eva, f. 2014,
og Elfa Björk, f. 2019. c) Snæ-
dís Sara Guðjónsdóttir, f. 1994,
sambýlismaður hennar er
Breki B. Sigurgeirsson. 3)
Katrín, f. 11. júlí 1972, eig-
inmaður hennar Ástvaldur Jó-
hannesson. Þeirra börn eru:
Ólafur Þór, f. 2010, og Hilmir
Steinn, f. 2012.
Ólafur Þór var búfræðingur
frá Bændaskólanum á Hvann-
eyri og lærði svo skipasmíði og
trésmíði á Akranesi. Hann vann
lengst af sjálfstætt sem smiður
í Reykjavík en eftir miðjan ald-
ur vann hann við húsvörslu á
Aflagranda 40. Ólafur Þór var
formaður Hamonikufélags
Reykjavíkur og stjórnar-
formaður í fjöldamörg ár.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
úar 2003. Bræður
Ólafs voru Lúther
Steinar, f. 9. jan-
úar 1938, d. 31.
janúar 2016, og
Halldór Kristján, f.
7. júlí 1936, d. 27.
desember 2016.
Fósturforeldrar
Ólafs voru Geir
Guðmundsson
bóndi frá Lundum í
Stafholtstungum, f.
20. mars 1904, d. 21. mars 1986,
og Þórdís Ólafsdóttir húsfreyja
Það er svo skrítið hvernig lífið
byrjar allt í einu að fara allt of
hratt og áður en maður veit af
eru þeir farnir sem eru manni
kærastir; mamma fyrir fjórum
árum og núna elsku pabbi.
Einungis viku áður en þú
veiktist snögglega kom ég til þín
og þú varstu allt í einu orðinn svo
hress og skýr. Ég ætlaði að fara
með þig í sumarfríinu á rúntinn
og loksins að fara með þér á kaffi-
hús eftir þennan langa covid-vet-
ur.
Þegar ég horfi til baka þá eru
minningarnar mikið tengdar
sumarbústaðnum sem þið
mamma byggðuð. Þú flaggaðir
alltaf þegar gesti bar að garði og
mamma var búin að baka eitt-
hvað ljúffengt og hella upp á ný-
lagað kaffi. Það var alltaf yndis-
legt að koma til ykkar í sveitina
og barnabörnin muna eftir afa
sem sagði langar sögur með mikl-
um útúrdúrum, afa að smíða eitt-
hvað úti í skúr og afa spilandi á
harmóníkuna.
Þú varst eins og klettur við
hlið mömmu í hennar veikindum
og eftir að hún lést og þín veik-
indi fóru að ágerast hélstu alltaf í
góða skapið og húmorinn þinn,
elsku pabbi. Við yljum okkur við
minningarnar og vitum að
mamma er búin að taka á móti
þér og þið eruð laus frá ykkar
þrautum og dansið saman við
harmóníkutóna í sumarlandinu
góða.
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur elsku pabbi.
Hvíl í friði.
Katrín og fjölskylda.
Ólafur Þór
Kristjánsson
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Ástkær faðir minn, stjúpi, tengdafaðir og afi,
ÁRNI ÓLASON,
Austurbrún 2,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 15. ágúst.
Útför hans fer fram í Fossvogskirkju
þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 15.
Valgerður Árnadóttir Karl Fannar Sævarsson
Þórunn Brandsdóttir
Benjamín Árni Ásgrímur Guðmundsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma
SIGRÍÐUR LÁRUSDÓTTIR,
Sirrý,
frá Vestmannaeyjum,
andaðist á líknardeild Landspítalans að
morgni 10. ágúst. Jarðsett verður frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 28. ágúst
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild
Landspítalans eða Kvenfélagið Heimaey.
Ágústa Guðmarsdóttir Gísli Gíslason
Tómas Guðmarsson Erla Helgadóttir
Lárus Bergþór Guðmarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÐUR ÓLAFSSON,
Lyngbergi 6, Þorlákshöfn,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 17. ágúst. Útförin fer fram
frá Þorlákskirkju miðvikudaginn 25. ágúst klukkan 14.
Athöfninni verður streymt á promynd.is/thordur
Guðný Björg Óskarsdóttir
Ólafía Helga Þórðardóttir Brynjar Birgisson
Óskar Þórðarson Anna María Björnsdóttir
Sigrún Dögg Þórðardóttir Haraldur Þorvarðarson
Eyjólfur Þórður Þórðarson
Ólöf Arnbjörg Þórðardóttir Pétur Ragnar Pétursson
Aðalheiður Elín Þórðardóttir Halldór Hafsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Frændi og vinur,
JÓN OTTI JÓNSSON,
Dvalarheimilinu á Dalbraut,
andaðist á LHS mánudaginn 9. ágúst.
Útför fór fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Gíslason
Jón Otti Ólafsson
Elskulegur bróðir okkar,
ÁSMUNDUR JAKOBSSON,
Barmahlíð 22,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
17. ágúst.
Jakob Jakobsson
Aðalbjörg Jakobsdóttir
Steinunn S. Jakobsdóttir
Okkar ástkæri
STEFÁN BRYNJÓLFSSON
sjómaður,
Brávallagötu 16, Reykjavík,
lést á Grund 4. ágúst. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Grund.
Rósa Kristín Stefánsdóttir
Heiðrún Ólafsdóttir
Guðlaug Helga Stefánsdóttir
og fjölskyldur