Morgunblaðið - 21.08.2021, Side 43
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég hef fylgst með Viktori Orra sem
tónlistarmanni síðan hann var smá-
strákur. Ég sá sveit hans, Búdrýg-
indi, vinna Músíktilraunir fyrir nítján árum
þegar hann var á fimmtánda ári og ég dæmdi
frábæran frumburð hennar, Kúbakóla. Seinna
fylgdist ég opinmynntur með Viktori og fé-
lögum í Hjaltalín vaxa upp í að vera ein merk-
asta sveit sem starfað hefur á Íslandi, fyrr og
síðar. Ég hef augu – og eyru – með pilti og hef
glaðst yfir því hversu vel honum hefur gengið
að fóta sig í alþjóðaheimi tónlistarinnar. Bæki-
stöðin til þess hefur lengi vel verið Berlín, sú
mikla menningar- og listaborg, hvar Viktor
nam við hin virta Hanns Eisler-skóla. Í kjölfar
náms fór hann m.a. að vinna með Jóhanni
heitnum Jóhannssyni.
Það var því sannkölluð gæðastund er
Viktor heimsótti mig á dögunum á heimili
mitt, fúlskeggjaður og
fullorðinn! Ég hafði ekki
séð hann í árafjöld og
hvað þá sest niður með
honum og spjallað, en
þarna sátum við eins og
tveir gamlir vinir. Hann
er þá fluttur heim, á
æskuslóðirnar í Kópavogi,
og þegar kominn með vinnuaðstöðu sem hann
deilir með öðrum íslenskum tónlistar-
eldhugum.
Ég skrifaði um plötuna VAST sem Viktor
gerði ásamt Yair Elazar Glotman fyrir tveim-
ur árum. Á einu kvöldi léku þeir af fingrum
fram, á fiðlu, lágfiðlu og kontrabassa. Tónlist-
in drungaleg þar sem hún „hendist fram og til
baka og veltist upp og niður, en er formuð
engu að síður … sumt af þessu er skítugt,
hrátt, „ekki í lagi“,“ eins og ég reit á sínum
tíma. Tilraunaverk.
Eilífur, sem er fyrsta sólóplata Viktors,
er með allt öðrum hætti. Þetta er stóreflis-
Og amen eftir efninu
verk, tónlistin samin og kirfilega frágengin
þar sem kórar og sinfóníusveitir koma að mál-
um. Útgefandi er hið virta Pentatone. Ef ég
ætti að fara að þylja eitthvað upp myndi ég
klára mitt naumt skammtaða pláss en ég
bendi lesendum á að heimsækja prýðilega
heimasíðu Viktors, viktorarnason.com, þar
sem hægt er að fá ítarupplýsingar. Gaman
samt að sjá að gamli vinur hans, gítarleikari
Búdrýginda, Benedikt Smári Skúlason, leggur
til gítar í einu verkanna og þá stýrði Viktor
sjálfur Budapest Art Orchestra fyrir plötuna.
Karlakórinn Fóstbræður kemur meira að
segja við sögu. Já, það er allt undir!
Pælingar um eilíft líf liggja verkinu til
grundvallar eins og segir í kynningu, stórt
tema sem tónar við mikilfengleik tónlistar-
innar sjálfrar. Viktor leggur hins vegar á
heimasíðu sinni áherslu á að fyrst og síðast sé
verið að fagna lífinu sem slíku og því sem ger-
ir það þess virði að lifa því. Og, nú ætla ég að
vona að fólk sé ekki komið með kvíðahnút
vegna þeirrar yfirþyrmandi epíkur sem ég er
hálfpartinn búinn að gefa í skyn, því að platan
er nefnilega ekki með þeim hætti. Hún er níu
laga, 43 mínútur, og traustar rætur Viktors í
poppi og rokki, ásamt með færni hans í klassík
sem nútímatónlist, styðja við verkið og gefa
því vængi. Hann veit hvenær skal fara á dýpt-
ina en líka hvernig beri að skila henni með
sem áhrifaríkustum þætti. Þetta er ekki ósvip-
að og var með Hjaltalín, hverrar andi gerir
vart við sig hér á köflum. Sprenglært fólk sem
nýtti sér kunnáttuna til að skila aðlaðandi,
áhrifaríkri tónlist.
Platan hefst með tíu mínútna verki
(„Var“), sem er það þyngsta hér, og karla-
kórsraddirnar fá mig til að hugsa um Arvo
Pärt. Það er dumbungur, sem fær að halda
sér, og er tilgangur með því. Tónmálið er svip-
að á „The Thread“ en Viktor hleypir okkur í
sólskinið á „Maiden“. Hér læðir undurblíð
melódía sér inn, já, hún er eiginlega ægifögur.
Hugsaði ég um Jóhann Jóhannsson? Auðvitað.
Á 0.57 opnast lagið og maður er hremmdur.
Hremmdur af fegurðinni. Við taka verk sem
flökta á milli þessara póla, „Er“ er dramatískt
á meðan „The Vision“ er snoturt. Viktor spilar
á hljóðverið, sinfóníusveitirnar, fiðluna sína og
sköpunarmáttinn af eftirtektarverðu listfengi
út í gegn og sem frumburður verður þessi
plata að teljast stórvel heppnuð. Það er bara
þannig.
»
Traustar rætur Viktors í
poppi og rokki, ásamt með
færni hans í klassík sem nú-
tímatónlist, styðja við verkið
og gefa því vængi.
Viktor Orri Árnason gaf ný-
verið út plötuna Eilífur sem
inniheldur samnefnt verk í níu
hlutum. Umfjöllunarefnið er
möguleiki mannsins á eilífu
lífi, hvorki meira né minna.
Metnaður Viktor Orri
Árnason slær hvergi af á
plötunni Eilífur.
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
TALI
THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL
RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI
GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND
DWAYNE JOHNSON
EMILY BLUNT
HUGH JACKMAN