Morgunblaðið - 02.10.2021, Side 22

Morgunblaðið - 02.10.2021, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kínverjar hafa undan- farin ár verið mjög aðsóps- miklir í uppbygg- ingu innviða í fá- tækari löndum heims. Á meðan aðkoma vestrænna ríkja hef- ur verið háð ýmiss konar skilmálum, meðal annars í sambandi við mannréttindi, hafa Kínverjar ekki sett nein slík skilyrði. Undir yfir- skriftinni „belti og braut“ hefur Kínverjum tekist að snarauka ítök sín og áhrif um allan heim. Í vikunni birtust niður- stöður rannsóknar á þessum fjárfestingum og sýnir hún að þeim hefur fylgt gríðar- leg skuldsetning fyrir fá- tæku ríkin. Talað er um „faldar skuldir“ upp á um 380 milljarða Bandaríkja- dollara eða tæplega 50 billj- ónir króna. Yfir rúmlega þriðjungi verkefnanna hvílir skuggi ásakana um spillingu, brot á rétti vinnandi fólks og mengun og iðulega hafa þau orðið tilefni til mótmæla. Rannsóknin var gerð á vegum AidData, sem er hluti af alþjóðastofnun Willam & Mary-háskóla í Bandaríkj- unum. Samkvæmt rannsókninni eru tugir lágtekjuríkja hlaðnir skuldum, sem ekki koma fram í bókhaldi þeirra. Kínverjar hafa lagt rúm- lega 843 milljarða í að leggja vegi, smíða brýr og hafnir og reisa sjúkrahús í 163 löndum frá því að Kínverjar hleyptu belti og braut af stokkunum árið 2013. Hafa þeir verið sérstaklega at- kvæðamiklir í Afríku og Mið-Asíu. Næstum 70% fjárins voru lánuð ríkisbönkum eða til samvinnuverkefna kín- verskra fyrirtækja og fyrir- tækja á staðnum í löndum sem fyrir skulduðu Kínverj- um háar fjárhæðir, sam- kvæmt rannsókninni. Brad Parks, framkvæmda- stjóri AidData, sagði við fréttaveituna AFP að mörg ríki hefðu ekki getað tekið meiri lán og þá hefðu menn virkjað hugmyndaflugið. Lánin hefðu verið veitt ýms- um öðrum en stjórnvöldum, en hins vegar hefði ríkið gengið í ábyrgð og heitið að greiða lánið ef lántakinn brygðist. Hann bætti því við að samningarnir væru oft óljósir þannig að iðulega vissu stjórnvöld viðkomandi landa ekki hversu mikið þau skulduðu Kín- verjum. Andvirði þessara földu skulda væri eins og áður segir um 380 milljarðar dollara. Í gögnum Aid- Data eru talin 45 lönd þar sem tekjur teljast lágar eða í meðallagi og skulda Kínverjum rúmlega 10% af vergri landsfram- leiðslu. Áður en belti og braut kom til sögunnar ríkti nokk- urn veginn jafnræði á milli Bandaríkjanna og Kína í út- gjöldum utan landsteinanna, en samkvæmt útreikingum AidData eru Bandaríkin og önnur helstu stórveldi heims nú aðeins hálfdrættingar á við Kínverja. Eftir að belti og braut kom til hafa Kín- verjar varið að meðaltali 85 milljörðum dollara í þróun- arverkefni erlendis, en Bandaríkin 37 milljörðum. Hlutföllin á milli lána og styrkja hjá Kína eru 31 á móti einum. Fram kemur að eftir því sem peningarnir hafi verið settir í áhættu- samari verkefni hafi Kín- verjar heimtað traustari tryggingar, færi eitthvað úr- skeiðis. Þá eru kjörin mun verri en hjá þróunaraðstoð- arnefnd Efnahags- og fram- farastofnunarinnar (OECD- DAC). Dæmigert lán frá Kína ber samkvæmt Aid- Data 4,2% vexti og skal greiðast á innan við tíu ár- um. Til samanburðar eru vextir lána frá OECD-DAC- lánardrottni á borð við Þýskaland, Frakkland eða Japan 1,1% og greiðast á 28 árum. Í sumum löndum hefur innflæði kínverskra peninga vakið andúð. Þá eru leiðtog- ar, sem áður hlupu til þegar peningar buðust frá Kína, orðnir varir um sig og eru dæmi um að hætt hafi verið við innviðaverkefni eða framkvæmdir stöðvaðar af ótta við að verða skulda- þrælar Kínverja og ógern- ingur verði að standa undir skuldunum. Leiðtogar sjö helstu iðn- ríkja heims ákváðu á fundi sínum í sumar að efna til samstarfs sem ætlað er að skáka innviðafjárfestingum Kínverja í fátækari löndum heims. Það var tímabært. Kínverjar hafa of lengi haft frítt spil í þessum efnum og úttekt AidData sýnir að fjöldi ríkja er orðinn háðari Kínverjum en hingað til hef- ur verið. Kína hefur aukið ítök sín í fátækari löndum heims með lánum sem gætu orðið þeim fjötur um fót} Á skuldaklafa R íkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók formlega til starfa hinn 30. nóvember 2017. Síðan er nú liðið heilt kjörtímabil, næstum fjögur ár, og ríkisstjórnin sem sat fram að kosningum 25. september er fyrsta þriggja flokka ríkisstjórnin á Íslandi sem situr heilt kjörtímabil – og sú fyrsta til að klára kjör- tímabil sitt frá árinu 2013. Stjórnin var mynd- uð þvert á hið pólitíska litróf með skýra sýn á uppbyggingu og umbætur á fjölmörgum svið- um almannaþjónustunnar. Af hálfu VG var á kjörtímabilinu lögð áhersla á umhverfisvernd, kvenfrelsi, alþjóð- lega friðarhyggju og félagslegt réttlæti og að- gerðir sem eru til þess fallnar að auka jöfnuð í samfélaginu. Það voru Vinstri-græn sem settu þau málefni á oddinn og komu verkefnum þeim tengdum til framkvæmda. Á kjörtímabilinu kláruðust mörg verkefni sem eru til þess fallin að auka lífsgæði almennings og gera Ísland betri stað til að búa á, og sem endurspegluðu jafnframt grunnstoðirnar í stefnu VG. Þar má til dæmis nefna nýtt og réttlátara skattkerfi sem tryggir aukinn jöfnuð og eykur ráðstöfunartekjur hinna tekjulægstu, styttingu vinnuvikunnar, lengingu fæðingarorlofs, eflingu fé- lagslega húsnæðiskerfisins, umbætur í mannréttinda- málum, t.d. með lögum um kynrænt sjálfræði og rétt- arstöðu trans og intersex barna og nýrri löggjöf um þungunarrof, forvarnaáætlun gegn kynbundnu og kyn- ferðislegu ofbeldi og áreitni og átaksverkefni í uppbyggingu innviða sem sést í stórfelldum framkvæmdum í samgöngumálum og orku- málum um land allt. Ef við skoðum heilbrigðismálin sérstaklega gerðist margt jákvætt á þeim vettvangi á kjörtímabilinu. Heilbrigðiskerfið sjálft var eflt fjárhagslega svo um munar og ýmsar nýj- ungar í stefnumótun, skipulagi og framboði þjónustu voru gerðar. Við settum heilbrigðis- stefnu, lækkuðum greiðsluþátttöku sjúklinga verulega, felldum niður komugjöld í heilsu- gæslunni fyrir aldraða og öryrkja og efldum heilsugæsluna sem fyrsta viðkomustað. Framkvæmdir við nýjan Landspítala við Hringbraut voru fjármagnaðar og fjölbreytt þjónusta við aldraða efld. Geðheilbrigðisþjón- usta var efld á landsvísu, sérstaklega með efl- ingu geðheilbrigðisþjónustu á heilsugæslum og stofnun geðheilsuteyma á landinu öllu, svo dæmi séu tekin. Styrkingu heilbrigðiskerfisins þarf að halda áfram, bæði með auknu fjármagni og með því að halda áfram að innleiða heilbrigðisstefnu á öllum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Verkefnunum á öðrum svið- um samfélagsins er heldur ekki lokið og Vinstri-græn vilja halda áfram að vinna að umbótum og styrkja al- mannaþjónustuna, og stuðla þannig að betra og jafnara samfélagi fyrir okkur öll. Svandís Svavarsdóttir Pistill Að loknu kjörtímabili Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Þ essar nýju reglur einfalda lífið klárlega. Sérstaklega fyrir farþega sem koma hingað til lands,“ segir Arngrímur Guðmundsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Í gær gengu í gildi nýjar reglur um komur íslenskra ferðamanna til landsins. Felld hefur verið niður krafa um að fólk sem hefur tengsl við Ísland þurfi að framvísa nei- kvæðu kórónuveiruprófi við kom- una. Það þarf þó eftir sem áður að fara í sýnatöku innan 48 tíma frá heimkomu. Óbólusettir þurfa að sæta fimm daga sóttkví eftir sýna- töku auk þess að fara í PCR-próf þegar sóttkví lýkur. Arngrímur minnir á að ferða- mönnum er enn þá skylt að forskrá sig fyrir komuna til landsins á vefn- um Covid.is. „Við þurfum svo enn þá að taka á móti öllum farþegum og staðfesta hvort viðkomandi sé skráð- ur í kerfin. Það þarf áfram að kanna alla,“ segir hann. Hvað varðar sýnatöku við kom- una segir Arngrímur að þó farþegar hafi um það val kjósi flestir að fara í sýnatöku í Leifsstöð. „Og það geng- ur mjög vel fyrir sig,“ segir hann. 100 þúsund króna sektir Morgunblaðið hefur fengið ábendingar þess efnis að farþegar sem eiga bókað flug hingað til lands með erlendum flugfélögum hafi rek- ið sig á vegg í samskiptum við flug- félögin. Þegar þeir hafi reynt að upplýsa flugfélögin um þessar breyttu reglur hafi virst sem svo að félögin hafi engar upplýsingar feng- ið. Guðjón Helgason, upplýsinga- fulltrúi Isavia, segir að allir tengilið- ir félagsins, þar með hjá erlendu flugfélögunum, hafi verið upplýstir um breytingarnar þegar þær voru kynntar í vikunni. „Við veitum okkar viðskipta- vinum alltaf upplýsingar þegar það verða breytingar. Það er svo þeirra að taka það áfram,“ segir Guðjón. Hann bætir við að Isavia bendi öll- um farþegum sem þangað leita á að ítarlegar upplýsingar sé að finna á covid.is. Lögreglan hefur frá því í byrjun árs haft heimild til að sekta þá far- þega sem hingað hafa komið án vott- orðs um neikvæða niðurstöðu úr skimun sem framkvæmd var mest 72 tímum fyrir brottför. Sektin hef- ur numið 100 þúsund krónum. Sam- kvæmt upplýsingum frá Arngrími aðstoðaryfirlögregluþjóni hafa 276 mál komið upp frá 1. janúar og fram til dagsins í dag. Sektað var í 118 til- vikum en rannsókn 90 mála var hætt. Eitt mál er í ákærumeðferð og 67 bíða afgreiðslu. Í 160 tilvikum af 276 var um fólk með íslenskt ríkis- fang að ræða en 116 voru með erlent ríkisfang. Hafa sektað 118 próf- lausa komufarþega Óljóst var um tíma hvort lagastoð væri fyrir því að meina fólki að koma til landsins ef það framvísaði ekki neikvæðu kórónuveiruprófi eins og reglur kváðu á um. Arngrímur aðstoðaryfirlögregluþjónn segir við Morgunblaðið að hann geti ekki svarað til um hvort dæmi séu um að fólki hafi verið vísað frá þar eð ábyrgðin hafi verið lögð á flugfélög að tryggja að far- þegar framvísuðu neikvæðum prófum fyrir brottför til Íslands. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að í fyrstu hafi reglurnar verið þannig að flug- félögum bæri að tryggja það við innritun að farþegar væru með nei- kvætt Covid-próf meðferðis. Þó hafi flugfélögum í raun ekki verið heim- ilt samkvæmt reglunum að meina íslenskum ríkisborgurum að koma til landsins án þess. Síðar hafi þessi skylda verið afnumin og flugfélögin hafi ekki þurft að bera ábyrgð á prófunum. Hins vegar hafi Icelandair frá upphafi kannað hvort fólk hefði próf og hvatt það til þess að fara í próf á flugvöllum ef svo var ekki. Hún kveðst ekki þekkja dæmi þess að Íslendingum hafi verið meinað að koma hingað til lands vegna þess að þeir hafi ekki framvísað neikvæðu kórónuveiruprófi. Engum meinuð heimkoma REGLUR UM COVID-PRÓF VIÐ KOMU TIL ÍSLANDS Ásdís Pétursdóttir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leifsstöð Miklar annir hafa verið á flugvellinum síðustu mánuði enda þarf að kanna alla farþega. Reglum var breytt nú um mánaðamótin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.