Morgunblaðið - 02.10.2021, Page 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2021
Í LAUGARDAL
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Breiðablik er bikarmeistari
kvenna í knattspyrnu í þrettánda
sinn eftir öruggan 4:0-sigur gegn
Þrótti úr Reykjavík í úrslitaleik á
Laugardalsvelli í gær.
Karitas Tómasdóttir kom Breiða-
bliki yfir á 26. mínútu þegar hún
vann boltann á miðsvæðinu og
sendi boltann út á vinstri kantinn á
Öglu Maríu Albertsdóttur. Agla
María átti hnitmiðaða sendingu á
Karitas sem átti viðstöðulaust skot
úr teignum og boltinn söng í netinu.
Tiffany McCarty bætti við öðru
marki Blika á 39. mínútu þegar
Þrótturum mistókst að hreinsa frá
marki. Íris Dögg Gunnarsdóttir
misreiknaði boltann, missti hann
beint fyrir fætur McCarty sem
skoraði af öryggi í tómt markið.
Hildur Antonsdóttir bætti við
þriðja marki Blika á 63. mínútu
þegar Þróttarar töpuðu boltanum
klaufalega í öftustu víglínu. Selma
Sól Magnúsdóttir átti laglega send-
ingu á Hildi sem var ein á auðum
sjó í vítateig Þróttara og hún skor-
aði af öryggi í hornið fjær.
Karitas Tómasdóttir innsiglaði
svo sigur Blika á 83. mínútu með
frábærum skalla eftir laglega auka-
spyrnu Öglu Maríu Albertsdóttur
frá vinstri.
Blikar slökktu í Þrótturum
Leikurinn fór rólega af stað og það
var alveg ljóst að spennan var mikil
hjá báðum liðum. Nokkurt jafnræði
var með liðunum til að byrja með og
það voru Þróttarar sem voru hættu-
legri sóknarlega en Andrea Rut
Bjarnadóttir komst næst því að skora
fyrir Þróttara á 16. mínútu þegar hún
slapp ein í gegn en Telma Ívarsdóttir
í marki Blika varði vel frá henni.
Þegar líða fór á leikinn fór Blikum
að líða betur á vellinum og eftir að
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
13 Breiðablik hóf bikarinn á loft í þrettánda sinn í sögu félagsins á Laugardalsvelli í gær eftir öruggan sigur gegn Þrótti úr Reykjavík í úrslitaleik. Með
sigrinum jafnaði Breiðablik Íslandsmeistara Vals í fjölda bikarmeistaratitla en þetta eru sigursælustu félögin í íslenskri kvennaknattspyrnu.
Kópavogsliðið skoraði fyrsta markið
á 26. mínútu tóku þær öll völd á vell-
inum. Liðið fór að spila eins og það á
að sér að gera en Þróttarar virkuðu
slegnir. Það kom meira óöryggi í spil
Þróttara á meðan Blikum óx ásmeg-
in. Þróttarar gerðu sig svo seka um
slæm mistök í öðru marki Blika og
eftir það var leikurinn svo gott sem
búinn.
Það ber hins vegar að hrósa Þrótt-
urum fyrir þeirra leik enda tókst
Blikum aldrei að opna vörn þeirra af
neinu viti. Tvö af fjórum mörkum
Blika komu eftir klaufaskap í öftustu
víglínu Þróttara og fjórða markið
kom eftir fast leikatriði þegar leik-
urinn var svo gott sem búinn.
Blikar eru svo sannarlega verðugir
bikarmeistarar. Liðið var vissulega
óstöðugt þegar mest á reyndi í sumar
en þær hafa sýnt frábæra spila-
mennsku í undanförnum leikjum sín-
um og það verður afar áhugavert að
fylgjast með liðinu í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar sem hefst strax
í næstu viku.
Þá má hrósa Karitas Tómasdóttur
sérstaklega fyrir hennar spila-
mennsku í sínum öðrum bikar-
úrslitaleik en hún varð bikarmeistari
með Selfossi í fyrsta sinn í sögu fé-
lagsins árið 2019. Karitas var al-
gjörlega frábær á miðjunni í gær og
tapaði ekki tæklingu. Hún leiddi með
sönnu fordæmi þegar mest á reyndi í
leiknum og dreif sitt lið áfram með
frábæru vinnuframlagi allan tímann.
Þetta er fyrsti bikarúrslitaleik-
urinn í sögu Þróttara en liðið hefur
verið í stöðugum framförum und-
anfarin ár undir stjórn Niks Cham-
berlains og ef fram heldur sem horfir
verður þetta bara einn af mörgum
úrslitaleikjum Þróttara í náinni fram-
tíð.
Breiðablik og Valur hafa nú unnið
bikarkeppnina oftast allra liða eða
þrettán sinnum hvort. KR og ÍA
koma þar á eftir með fjóra bikar-
meistaratitla hvort og Stjarnan hefur
þrívegis fagnað sigri í keppninni.
Blikar verðugir meistarar
- Breiðablik er bikarmeistari kvenna í þrettánda sinn eftir sigur gegn Þrótti
- Karitas Tómasdóttir átti stórleik á miðsvæðinu og skoraði tvö frábær mörk
Ragnhildur Kristinsdóttir sigraði á
Missouri’s Johnie Imes-háskóla-
mótinu í golfi í Columbia í Banda-
ríkjunum í fyrrakvöld. Ragnhildur
tryggði sér sigur á lokabrautinni
þegar hún vippaði snyrtilega ofan í
holuna og bætti um leið skólametið
hjá Eastern Kentucky-liðinu á 54
holu höggleiksmóti. Hún lék á 12
höggum undir pari en hún lék síð-
ustu níu holurnar á sex höggum
undir pari. „Þetta er ein besta
frammistaða sem ég hef séð á golf-
vellinum,“ sagði Mandy Moore,
yfirþjálfari golfdeildar skólans.
Glæsilegur sig-
ur Ragnhildar
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Sigraði Ragnhildur Kristinsdóttir
lék mjög vel í Columbia.
Glódís Perla Viggósdóttir skoraði í
öðrum leiknum í röð með Bayern
München í þýsku 1. deildinni í
knattspyrnu í gærkvöld. Hún skor-
aði þá fimmta mark meistaraliðsins
í stórsigri á Köln á útivelli, 6:0.
Glódís, sem kom til Bayern frá Ros-
engård í sumar, skoraði líka gegn
Freiburg í síðustu umferð en lið
Bayern hefur unnið alla fjóra leiki
sína í deildinni á tímabilinu og skor-
að 21 mark gegn engu. Karólína
Vilhjálmsdóttir kom líka við sögu
hjá Bayern sem varamaður í leikn-
um.
Skoraði aftur
fyrir Bayern
Morgunblaðið/Eggert
Skoraði Glódís Perla Viggósdóttir
fer vel af stað með Bayern.
BREIÐABLIK – ÞRÓTTUR 4:0
1:0 Karitas Tómasdóttir 26.
2:0 Tiffany McCarty 39.
3:0 Hildur Antonsdóttir 64.
4:0 Karitas Tómasdóttir 83.
Breiðablik: (4-3-3) Mark: Telma Ívars-
dóttir. Vörn: Ásta Eir Árnadóttir,
Kristín Dís Árnadóttir, Heiðdís Lillýj-
ardóttir, Hafrún Rakel Halldórsdóttir.
Miðja: Karitas Tómasdóttir, Taylor
Ziemer (Vigdís Edda Friðriksdóttir
86), Hildur Antonsdóttir (Margrét
Brynja Kristinsdóttir 90). Sókn: Selma
Sól Magnúsdóttir (Vigdís Lilja Krist-
jánsdóttir 90), Tiffany McCarty (Birta
Georgsdóttir 81), Agla María Alberts-
dóttir.
Þróttur R.: (4-3-3) Mark: Íris Dögg
Gunnarsdóttir. Vörn: Elísabet Freyja
Þorvaldsdóttir (Sigmundína Sara Þor-
grímsdóttir 78), Sóley María Steinars-
dóttir, Jelena Tinna Kujundzic, Lorena
Yvonne Baumann (Mist Funadóttir
87). Miðja: Álfhildur Rósa Kjartans-
dóttir, Shea Moyer (Tinna Dögg Þórð-
ardóttir 87), Katherine Cousins (Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir 90). Sókn:
Andrea Rut Bjarnadóttir, Ólöf Sigríð-
ur Kristinsdóttir, Dani Rhodes (Hildur
Egilsdóttir 87).
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Áhorfendur: 2.385.
Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi
landsliðsfyrirliði í knattspyrnu,
þykir mjög líklegur til að taka við
þjálfun síns gamla félags, ÍBV.
Hann hefur þjálfað Þrótt í Vogum í
hálft annað ár og stýrði liðinu upp í
1. deild í fyrsta skipti í sögu þess í
vor en Þróttarar tilkynntu í gær að
Hermann væri hættur störfum hjá
félaginu. Hermann þjálfaði áður
Eyjamenn keppnistímabilið 2013,
hefur þjálfað bæði karla- og
kvennalið Fylkis og var síðan um
nokkurt skeið á Englandi sem að-
stoðarstjóri hjá Southend.
Hermann á
leið til Eyja?
HANDKNATTLEIKUR
Bikarúrslitaleikur kvenna:
Ásvellir: Fram – KA/Þór................... L13.30
Bikarúrslitaleikur karla:
Ásvellir: Valur – Fram ........................... L16
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Eyjar: ÍBV – FH ................................ S13.30
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, undanúrslit:
Norðurálsvöllur: ÍA – Keflavík ............. L12
Meistaravellir: Vestri – Víkingur R. L14.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
TM-hellirinn: ÍR – Stjarnan .................. L15
Akranes: Aþena-UMFK – Vestri.......... L17
Hveragerði: Hamar-Þór – Tindastóll ... L18
Meistaravellir: KR – Snæfell................. L18
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – SR............................. L16.45
UM HELGINA!
_ Hollenski knattspyrnumarkvörð-
urinn Guy Smit er genginn til liðs við
Valsmenn og hefur samið við þá til
tveggja ára. Valsmenn staðfestu þetta
á samfélagsmiðlum sínum í gær en
Leiknismenn höfðu áður skýrt frá því
að Smit væri á leiðinni á Hlíðarenda.
Smit er 25 ára gamall og hefur varið
mark Leiknis í Breiðholti undanfarin
tvö ár. Fyrst í 1. deildinni og svo í úr-
valsdeildinni á þessu ári þar sem hann
lék alla 22 leiki liðsins og átti drjúgan
þátt í halda því í deildinni.
_ Framarar, sem verða nýliðar í úr-
valsdeild karla í fótboltanum á næsta
ári, tilkynntu í gær að þeir hefðu sam-
ið til tveggja ára við tvo af sínum
mönnum. Skagamaðurinn Albert Haf-
steinsson verður áfram í Safamýri en
hann var markahæsti leikmaður liðs-
ins í 1. deildinni í ár. Framherjinn Alex-
ander Már Þorláksson sem einnig var
drjúgur í markaskorun fyrir liðið verð-
ur líka áfram hjá félaginu.
_ Kári Árnason stað-
festi í viðtali við
mbl.is í gær að ferli
hans með ís-
lenska landslið-
inu í knattspyrnu
væri lokið en
hann gaf ekki
kost á sér í leik-
ina gegn Armeníu
og Liechtenstein.
Kári kvaðst ætla að
eyða síðustu kröft-
unum í að verða
bikarmeistari með
Víkingi sem mætir
Vestra í undan-
úrslitum bikarsins í
dag.
Eitt
ogannað