Strandapósturinn - 01.06.2006, Page 52
árið 1956 og lánaði RARIK þá 30 kW dísilvélasamstæðu til afnota
í rafstöðinni. Vél þessi var síðan í notkun á Drangsnesi þar til
þorpið fékk rafmagn frá Þverárvirkjun og RARIK yfirtók rafveit-
una. Árið 1954 var dreifikerfið á Drangsnesi orðið svo lélegt að
við lá að Rafmagnseftirlit ríkisins bannaði notkun þess. Frestur
var veittur enda vitað að RARIK ætlaði að leiða rafmagn frá
Þverárvirkjun til staðarins.
Tekið var að leggja háspennulínur frá Þverárvirkjun til nær-
liggjandi byggðarlaga fljótlega eftir að virkjunin tók til starfa í
árslok 1953. Hinn 5. nóvember 1956 var háspennustrengur lagð-
ur frá landtaki rétt innan við Hólmavík og yfir Steingrímsfjörð
á Selströnd við Sandnes, 1,67 km, 11 kW. Þetta var annar sæ-
strengurinn hér á landi, hinn fyrsti var lagður tveimur dögum
fyrr til Hríseyjar. Árið 1957 var 12 km löng háspennulína lögð
út eftir Selströndinni til Drangsness, 3-fasa, 11 kW. RARIK lagði
nýtt innanbæjarkerfi á Drangsnesi þetta sumar og var það tengt
við háspennulínuna frá Þverárvirkjun í septembermánuði 1957.
Þá hafði RARIK keypt gamla innanbæjarkerfið af Björg sf. fyrir
2.100 krónur. Fyrstu árin eftir tenginguna við Þverárvirkjun voru
dísilvélar ekki tiltækar á rafstöðinni á Drangsnesi, en í ljós kom
þegar fram í sótti að Þverárvirkjun hafði ekki nægilegt afl tiltækt
vegna stækkunar á orkuveitusvæði hennar og vaxandi orkunotk-
unar. Einnig juku bilanir í sæstrengnum yfir Steingrímsfjörð á
vandann. Af þessum ástæðum þótti nauðsynlegt að setja upp
100 kW dísilvél á Drangsnesi í nóvembermánuði árið 1970 og
var henni komið fyrir í spennustöðvarhúsi á staðnum. Vél þessi
var flutt burt í febrúarmánuði árið 1974 og ný 458 kW vél sett
upp í staðinn. Greinarhöfundi er kunnugt um að sú vél var enn
á Drangsnesi á árinu 1986.
Þórarinn Reykdal Ólafsson, rafveitustjóri á Hólmavík, hafði
umsjón með Drangsnesveitu 1957–1985. Þá lét hann af störf-
um og Þorsteinn Sigfússon tók við. Vélgæslumenn verulegan
hluta þess tímabils voru þeir Kristján Loftsson, Jón H. Elíasson
og Tryggvi Ólafsson. Tryggvi var eftirmaður Elíasar. Orkubú
Vestfjarða yfirtók Drangsnesveitu 1. janúar 1978.
50