Strandapósturinn - 01.06.2006, Blaðsíða 142
IS: Já, hér hefði enginn maður getað lifað af málmsmíðum.
Indriði hefur frá mörgu að segja úr sinni sveit. Drepum nú
aðeins á það í lokin:
Sögu samgangnanna í sveitinni á síðustu öld kann hann utan-
bókar. Sjálfur ók hann vörubíl eftir stríðslokin. Vegurinn lá þá
víða með fjöruborðinu. Þá þótti sko stórkostlega fínt að fara frá
Eyri5 kl. 8 og vera kominn í hádegismatinn í Fornahvammi og til
Reykja víkur um 5-leytið. Það var bara hraðferð! Hann var ekki
hrifinn af fyrri vegagerðinni yfir Slitrin 1945. Taldi hana eintóma
vitleysu, það skóf uppi á fjallinu og snjórinn datt svo í logni ofan
á veginn svo að hann varð ófær bílum með öllu.
GB: Já, þarna voru snjóskaflarnir yfir veginn hver við annan
með stuttu millibili. Maður varð að gefa vel í til að komast gegn-
um þann fyrsta og nota svo ferðina yfir þann næsta.
Indriði hafði póstflutninga í Bitrunni með höndum ein 15–18
ár, hætti 1994.
IS: Þá var oft seinfarið vegna snjóa, en aldrei þurfti ég að
sofa í bílnum. Síðan ég hætti hefur aldrei komið bylur hér nema
1995, þegar slysin urðu í Súðavík. Ég man aldrei eftir öðru eins
veðri í annan tíma. Allt var á kafi hérna megin við ána, en rifið
af öllu uppi á fjallinu. Hinum megin á Eyrarfjallinu kom alveg
hroðalegt snjóflóð. Gríðarstór skál er þarna uppi í hlíðinni. Hún
hefur verið orðin full af snjó. Flóðið fór yfir klettinn sem er við
gömlu fjárréttina við fjarðarbotninn og náði fram fyrir Sandhóla.
Kjartan heitinn (Ólafsson) sagði mér að verið hefðu 200 metrar
frá Sandhólabænum að snjóflóð inu. Borgnesingar komu strax og
ætluðu að ryðja þessu burt með blásara. Þeir komust út á miðja
brúna á ánni. Þar var allt fullt af vír, símalínan, rafmagnslínan og
girðingadræsur í einni bendu. Þetta var svakalegt veður.
Pabbi átti aldrei bát, svaraði Indriði fyrirspurn um það efni.
Hann var þó ekki í vandræðum með að verða sér úti um fisk.
Hann fékk skektur lánaðar, ýmist á Eyri eða í Hvítuhlíð. Þá var
nóg af fiskinum, maður. Og síldinni. Það var aldeilis magnað,
þegar hún var að ryðjast inn seinni part sumars. Þegar logn
140
5 Óspakseyri.