Strandapósturinn - 01.06.2006, Page 66
Árið 1949 fóru fimm Strandamenn á skíðamót sem haldið
var á Kolviðarhóli, þetta var all sögulegt ferðalag. Þeir sem fóru
voru þeir bræður Jóhann og Áskell Jónssynir frá Kaldrananesi,
Ari Jónsson frá Asparvík, Bjarni Loftsson frá Bólstað og ég
sögumaður sem þá var til heimilis í Odda hjá þeim ágætu hjón-
um Arngími Ingimundarsyni og hans konu Þórdísi Loftsdóttur.
Ferðin hófst á Hólmavík síðdegis, mánudaginn 19. apríl. Ástæða
fyrir því var sú að við ætluðum að fara með flugvél suður á
sunnudag en veður hamlaði flugi svo við urðum að taka strand-
ferðaskipið Skjaldbreið sem var á leið til Hvammstanga, þangað
komum við um kl. 9 um kvöldið, en við fengum engan mat á
hótelinu bara kaffi. Við gistum þar um nóttina, búið var að hafa
samband við bílstjóra á staðnum til að keyra okkur eins langt
og hann kæmist áleiðis suður í Fornahvamm. Um morguninn
mætir bílstjórinn, á vörubíl með drifi á öllum hjólum, engin
yfirbreiðsla var á bílnum svo heldur var vistin köld á pallinum,
því norðan nepja var og kalt í veðri. Ekki komust við langt á
bílnum, rétt upp að Grænumýrartungu, þar hafði skafið mikið
64
Áskell Jónsson keppti á Skíða-
landsmótum 1949 og 1950 á
Ísafirði, Kol viðar hóli og Siglu-
firði.
Bjarni Loftsson keppti á
Skíðalandsmóti 1949 á Kol-
viðarhóli.