Strandapósturinn - 01.06.2006, Page 101
ríkti og hlýindi risu upp býli fram í dölum og upp á heiðum þar
sem grasnytjar voru góðar bæði til beitar og heyskapar, en þegar
harðnaði í ári og veðurfar kólnaði þá féll þessi byggð niður aftur
stundum tímabundið, reis svo aftur þegar betur áraði.
Mörg þessara býla virðast upphaflega hafa verið sel frá öðr-
um bæjum en síðan orðið að sjálfstæðum jörðum með fastri
búsetu allt árið og úrskiptu landi. Löngu horfin eru býli eins
og Skriðukot sem var rétt fyrir framan Skálholtsvík. Bollastaðir
sem voru austan ár nokkuð framan við Guðlaugsvík. Jónssel sem
líka er austanmegin ár í Guðlaugsvíkurlandi, fram undir miðjum
Víkurdal.
Á 20 öld voru aðeins tvö býli eftir í Víkurdal. Miðhús sem
standa í miðjum Víkurdal vestan ár og Heydalur en hann er
fremst í dalnum vestanvert þar sem mætast árnar Heydalsá og
Lauga. Samkvæmt jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalín
frá 1706 er getið um Miðhús, þá í eyði, en hafi verið brúkað sem
sel frá Skálholtsvík.
Eins segir í umsögn um Guðlaugsvík „... í heimalandi meinast
hafa verið gamalt býli, kallað Heidalur. Þar eru mörg gömul tótt-
arbrot en girðingar sjást ei gjörla. Veit enginn meira um að segja
eða nær byggst eða eyðilagst hafi.“
Trúlegast er að Heydalur hafi því upphaflega verið selstaða
frá Guðlaugsvík enda gengur býlið hér í sveit oft undir nafn inu
Heydalssel. Bæði þessi býli eru núna löngu fallin úr byggð, Hey-
dalur fór í eyði árið 1938, síðustu ábúendur þar voru Sæmundur
Guðjónsson og Jóhanna Brynjólfsdóttir og fluttu þau með fimm
ung börn að Borðeyrarbæ. Miðhús fóru í eyði árið 1946 er það-
an fluttu að Bæ tvær fjölskyldur með ung börn. Það voru Ólafur
Guð jónsson og kona hans Kristín Guðbjartsdóttir og Benóný
Guð jónsson og hans kona Laufey Dagbjartsdóttir.
Sá bær sem hér um ræðir Heydalur byggðist 1780 um nokkur
ár en 1810 byggðist hann aftur og er í samfelldri byggð til 1938
er jörðin fer í eyði. Núna er jörðin í eigu Bæjarhrepps og landið
nýtt sem sumarbeitiland en það er víðáttumikið og nær saman
við Ljárskógarfjall í Dölum.
Árið 1871 flytja að Heydal Sigvaldi Sigvaldason ættaður úr
Vatnsdal A-Hún. og fyrri kona hans Þórunn Magnúsdóttir frá
99