Saga - 2016, Qupperneq 8
skáldsögunnar Piltur og stúlka. Umfjöllun sína byggir Már meðal annars á
bréfum Jóns Thoroddsen sem hann gaf nýlega út í ritröðinni Smárit
Sögufélags. Síðari greinin er eftir Sól veigu Ólafsdóttur og segir þar frá litlum
legsteini í Hólavallakirkjugarði. Steinninn prýðir einnig kápu tímaritsins.
einar Laxness, sagnfræðingur og heiðursfélagi Sögufélags, lést í maí á
þessu ári. einar var ritstjóri Sögu frá 1973 til 1978 og eftir það forseti Sögu -
félags til ársins 1988. Sem höfundur fræðirita á sviði sagnfræði, einkum
Íslandssögu a-ö, átti einar stóran þátt í að móta söguvitund bæði leikra og
lærðra Íslendinga eins og Sverrir Jakobsson rekur í ítardómi þessa heftis. Að
lokum birtir Saga nokkra ritdóma um bækur sem komu út á árinu. enn bíða
þó nokkur mikilvæg rit umfjöllunar fram á vor.
Með þessu hausthefti Sögu 2016 læt ég af störfum sem ritstjóri tímarits -
ins en ég hef gegnt því starfi frá árinu 2008. Nýir ritstjórar eru þau erla Hulda
Halldórsdóttir, lektor í kynjasögu við Háskóla Íslands, og Vilhelm Vilhelms -
son sagnfræðingur. Ég vil nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem
komu að útgáfu tímaritsins á þessum árum fyrir samstarfið. Fyrst ber að
nefna þrjá forseta Sögufélags, þau Önnu Agnarsdóttur, Guðna Th. Jóhannes -
son og Hrefnu Róbertsdóttur, og að auki Ragnheiði Þorláksdóttur, starfs-
mann Sögufélags. eftir að Ragnheiður lét af störfum árið 2012 hafði Ólöf
Dagný Óskarsdóttir, fyrir hönd Bókmenntafélagsins, veg og vanda af ýms -
um þáttum í útgáfu tímaritsins. Ritnefnd, skipaðri þeim Davíð Ólafssyni,
erlu Huldu Halldórsdóttur, Helga Skúla kjartanssyni, Má Jónssyni, Páli
Björnssyni, Ragnheiði kristjánsdóttur og Sveini Agnarssyni, þakka ég góð
ráð, ánægjulegar stundir og yfirlestur prófarka sem annars var í höndum
Ingrid Markan. Henni eru hér með þökkuð vel unnin störf. Umbrot Sögu
hefur egill Baldursson annast allt frá árinu 2003 og þakka ég honum fyrir
ótal úrræði og lausnir á þeim fjölmörgu vandamálum sem upp geta komið
við útgáfu tímarits eins og Sögu. Þá er ónefndur allur sá fjöldi fræðimanna
sem lagt hefur útgáfunni lið með yfirlestri og ritrýni. Sá hópur hefur að
stærstum hluta komið úr háskólasamfélaginu og blessunarlega hefur það
fólk litið á þetta mikilvæga framlag sem hluta af starfsskyldum sínum, því
allt er það starf ólaunað. Þeir sem standa utan þess samfélags eiga því ekki
síður þakkir skildar fyrir óeigingirni og örlæti í garð Sögu. Síðast en ekki síst
vil ég þakka öllum höfundum Sögu samstarfið. Það eru forréttindi að fá að
ritstýra íslenskum sagnfræðingum og öðrum fræðimönnum á sviðum sem
tengjast sagnfræði. Reyndar hefur höfundahópurinn orðið fjölbreyttari með
árunum og er það í samræmi við þróun sagnfræðinnar, tengsl hennar við
aðrar fræðigreinar og þá hugsun sem upphaflega lá til grundvallar útgáfu
tímaritsins.
Sigrún Pálsdóttir
formáli ritstjóra6
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 6