Saga - 2016, Blaðsíða 36
Wide Open Town, sem fjallar um hinsegin (e. queer) sögu San Fran -
cisco til ársins 1965, og gagnrýnir fræðimenn á borð við John
D’emilio fyrir að einblína fyrst og fremst á þátt fyrstu samtaka sam-
kynhneigðra í að skapa grundvöll fyrir frelsishreyfingu homma og
lesbía. 95
Öldurhúsum og heimapartíum er lýst sem „forpólitískum“ vett-
vangi, hugtak sem fengið er að láni frá eric Hobsbawm og notað til
að greina á milli pólitískra aðgerða sem eru hluti af vandlega skil-
greindum pólitískum stofnunum og gjörða sem flokkast undir andóf
en hefur ekki enn verið fundinn stofnanalegur farvegur.96 Þar var
lagður grunnur að sjálfsmyndarsköpun og félagslegri sam heldni, og
jafnvel andófi gagnvart lögreglunni í tilfelli baranna, sem allt voru
forsendur þess að umfangsmikil alþjóðleg baráttuhreyfing gæti
orðið til.97 Með því að leggja áherslu á hið forpólitíska hafa fræði -
menn eins og kennedy, Davis og Boyd reynt að minnka áhersluna á
formleg félagasamtök í sagnritun um réttindabaráttu samkyn-
hneigðra á 20. öld og skapa þannig möguleika á að fjalla um bari og
samkvæmi sem vettvang fyrir menningarlegt andóf.
Vissulega bendir ýmislegt til þess að lesbíur á Íslandi hafi farið
að hópa sig saman og mynda lítil samfélög á sjöunda eða áttunda
áratugnum, áður en formleg félagasamtök voru stofnuð um rétt-
indabaráttu homma og lesbía árið 1978.98 Mánudagsblaðið greinir
t.a.m. í tvígang frá „kynvillingaveislum“ á þeim tíma, fyrst árið 1970
í áðurnefndri grein þar sem sagt er frá því að lesbíur vaði uppi í
höfuðborginni, „bæði á tilteknum veitingastöðum og svo í „partí“ -
um, sem gjarna eru eftirleikur dvalar á vínstað“ og „leita fyrir sér
aðallega hjá stökum stúlkum og konum, sem slæðast á þessa staði
einar eða í hópi kynsystra sinna.“99 Árið 1977 birtist síðan önnur
grein þar sem sagt er frá því að hommar og lesbíur haldi „sameig-
inlegar svallveislur“.100 Mánudagsblaðið kom út vikulega á árunum
íris ellenberger34
Gold. The History of a Lesbian Community. 2. útg. (New york: Routledge 2014),
bls. 378; Nan Alamilla Boyd, Wide Open Town. A History of Queer San Francisco
to 1965 (Berkeley: University of California Press 2003), bls. 11–13.
95 elizabeth Lapovsky kennedy og Madeline D. Davis, Boots of Leather, bls. 9–11.
96 Sama heimild, bls. 2, 390; Nan Alamilla Boyd, Wide Open Town, bls. 11.
97 elizabeth Lapovsky kennedy og Madeline D. Davis, Boots of Leather, bls. 29–
30.
98 Viðtal. Anni Haugen 10. maí 2016.
99 Mánudagsblaðið 9. febrúar 1970, bls. 1.
100 Mánudagsblaðið 7. mars 1977, bls. 1.
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 34