Saga - 2016, Page 37
1948–1982 og var í æsifréttastíl svo gera má ráð fyrir að það hafi
farið nokkuð óvarlega með staðreyndir. en slúður, eða sagnir, veitir
okkur ákveðinn aðgang að hinsegin veruleika fortíðar, eins og áður
hefur verið fjallað um, og því gefa greinar Mánudagsblaðsins ákveðn -
ar vísbendingar um að í Reykjavík hafi verið vísir að félagslífi sam-
kynhneigðra karla og kvenna á áttunda áratugnum. Aðrar heim -
ildir styðja sögusagnir Mánudagsblaðsins um að lesbíur hafi skapað
sér félagslegan vettvang á börum og í partíum á þessum tíma. Haft
hefur verið eftir Láru Marteinsdóttur, annarri þeirra kvenna sem
stigu fram í Helgarpóstsviðtalinu frá 1983, að um miðjan áratuginn
hafi hommar haldið til á diskótekinu Sesari en lesbíur hafi byrjað
að sækja Stúdentakjallarann þegar hann tók til starfa árið 1975:
„Þarna var sambland af stúdentum, listamönnum og leikurum og
mikið um tónleika og uppákomur. Jafnvel kom fyrir að lesbíur
tróðu upp. Gestirnir voru líka það opnir og frjálslyndir að þeir tóku
okkur afar vel og við urðum hluti af hópnum.“101 Í kringum 1980
varð Hótel Borg síðan griðastaður lesbía sem blönduðu geði við
„hugsjónafólk úr pólitík og listum“. einnig minnast Anni Haugen
og Ragnhildur Sverrisdóttir þess að lesbíur hafi stundað Café Gest
á Laugavegin um um miðjan níunda áratuginn en sá bar hafði á
sér orð fyrir að laða til sín bóhema, listamenn og annað frjálslynt
fólk.102
Lesbíur höfðu þannig sinn félagslega vettvang, a.m.k. í Reykja -
vík, og bjuggu yfir tengslaneti sem síðan varð forsenda fyrir stofnun
félaga á borð við Íslensk-lesbíska. Þó er ýmislegt sem gefur til kynna
að þetta lesbíska samfélag hafi verið frekar lítið og einangrað eins
og kemur fram í viðtali við ónefnda konu sem birtist í Veru árið
1983, sama ár og fyrstu íslensku lesbíurnar stigu fram undir nafni í
Helgarpóstinum. Þar var hún spurð hvort það væri erfitt að vera
lesbía á Íslandi og svar hennar gefur innsýn í umfang lesbíusam-
félagsins á þessum tíma: „Já, lesbíusamfélagið er svo lítið. Þær eru
allar svo hræddar að það er engu lagi líkt. ef lesbía er á lausu þá fara
hinar að óttast um sín sambönd. Svo mæta þær auðvitað fordómum
lesbía verður til 35
101 Hilmar Magnússon, „Drottningar á djamminu. Molar úr skemmtanalífi hin-
segin fólks á Íslandi“, 30: Afmælisrit Samtakanna ’78, bls. 50–69, einkum bls.
54.
102 Viðtal. Anni Haugen 10. maí 2016; Viðtal. Ragnhildur Sverrisdóttir 23. maí
2016; Jóhanna Sveinsdóttir, „Sukkbúlla eða sælureitur?“, Mannlíf 3. árg. 3. tbl.
(maí 1986), bls. 46–51.
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 35