Saga - 2016, Síða 106
ist á Breiðabólsstað í Fljótshlíð 122131 og í Bæjarbardaga í Borgarfirði
1237,32 og tvisvar vígbúast Haukdælir þannig í Skálholti, Þorvaldur
Gissurarson 122133 og Gissur Þorvaldsson 1242.34 Frásagnir Sturlu
eru hlutdrægar, hliðhollar vinum hans og halla á andstæðinga.
Þannig er tíundað að Björn Þorvaldsson dró Austmann úr kirkju á
Bjargi í Miðfirði og lét drepa hann 121935 eða að rænt var mat úr
kirkju í Stafholti 1236.36 Gleggst er þetta í frásögnunum þegar vinir
Sturlu, eða hann sjálfur, komast í hann krappan sem flóttamenn í
kirkjum. Þannig heituðust menn að brenna kirkjuna í Miklabæ fulla
af flóttamönnum eftir Örlygsstaðabardaga 123837 og Tumi Sighvats -
son og Snorri Sturluson leita skjóls í Þingvallakirkju 1241 fyrir fimm
hundruð manna liði kolbeins unga.38 Sömuleiðis er sagt frá því að
„blóð hraut“ um Flugumýrarkirkju 1253 þegar bær var brenndur
þar.39
en þó er, af frásögnunum að dæma, eins og kirkjugrið séu frekar
virt af höfðingjum laust fyrir miðja 13. öld en fyrr, þ.e. eftir dráp
þeirra Skúla hertoga og Snorra Sturlusonar. Þegar Skúli hertogi var
drepinn 1240 var heiftin slík í hópi andstæðinga hans að klaustrið í
elgisetri fyrir utan Niðarós, þar sem Skúli hafði leitað skjóls, var
brennt til grunna. Samkvæmt Hákonar sögu er að sjá sem Hákon
konungur hafi reynt að bæta fyrir brunann40 og víst er að upp úr
þessu vingast Hákon, og þá auðvitað hirð hans líka, við kirkjunnar
menn í Noregi. Það verður svo síðar til þess að Vil hjálmur kardínáli
er af páfa sendur til Noregs að kóróna Hákon konung 1247.
Þessi umskipti í afstöðu konungs og hirðar koma ef til vill fram
í Þórðar sögu kakala. Þar segir frá því að Þórður strengdi þess heit í
jólaveislu á Mýrum í Dýrafirði 1243, og allir hans menn, „að láta
aldrei taka mann úr kirkju, hverjar sakir sem sá hefði til við hann,
sveinbjörn rafnsson104
31 Sama heimild, bls. 281.
32 Sama heimild, bls. 405.
33 Sama heimild, bls. 283.
34 Sama heimild, bls. 461.
35 Sama heimild, bls. 271.
36 Sama heimild, bls. 392.
37 Sama heimild, bls. 437.
38 Sama heimild, bls. 450.
39 Sama heimild, bls. 492.
40 Hákonar saga Hákonarsonar II. Magnúss saga lagabætis. Útg. Sverrir Jakobs son,
Þorleifur Hauksson og Tor Ulset. Íslenzk fornrit 32 (Reykjavík: Fornritafélagið
2013), bls. 114–117.
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 104