Saga - 2016, Síða 149
geymir 110 kvæði og vísur. Mest fer fyrir Jónasi Hallgrímssyni og
Bjarna Thorarensen en eftir Jón sjálfan eru þar „Búðarvísur“ sem
einnig birtust í Pilti og stúlku.13
Til er krafa sem prentarinn Sören Lauritz Møller sendi í dánarbú
Jóns, 1. júní 1868, og varðaði bæði síðara tölublað Norðurfara og Pilt
og stúlku. Upplag tímaritsins, prentað í september 1849, var 600 ein-
tök og nam prentkostnaður 128 rd. með kápunni. Gísli Brynjúlfsson
hafði borgað sinn hluta að fullu og Jón skuldaði 28 rd. Skáldsagan
var prentuð í 500 eintökum í apríl 1850. Prentkostnaður nam 64 rd.
48 sk. og skuldaði Jón ennþá 44 rd. 48 sk.14 Hann skuldaði Møller
því samanlagt 72 rd. 48 sk. og hafði borgað 56 rd. Það gerði hann þó
að hluta til ekki fyrr en hann var kominn til Íslands, því 24. janúar
1851 útskýrði hann fyrir Gísla að egill Jónsson, bókbindari í Reykja -
vík, myndi senda honum tvær ávísanir upp á 20 og 30 dali: „Þessa
upp á 30 dali ætla ég til að þú takir til þinna umráða upp í eitthvað
sem okkur á milli fer; hvort þú borgar Vancher eða ekki læt ég mér
liggja á sama því hann mun að þér ganga. Hina ávísunina bið ég þig
að fá prentara Möller sem ég samstundis skrifa til og segi honum frá
því.“15 Vancher var pappírskaupmaður og hjá honum höfðu þeir
keypt pappír í fyrra tölublað Norðurfara, eins og Gísli skrifaði í dag-
bók sína 7. mars 1848: „Til Jóns Þórðarsonar og með honum til
Möllers prentara og samið við hann um prentan á kveri okkar. Til
Wanchers að fá pappír.“16 ekki er krafa frá honum í dánarbúi Jóns,
en hafi pappírskostnaður numið nærri 40% af útgáfukostnaði, eins og
árið 1867 (sjá hér á bls. 161), hefur pappírinn kostað 43 rd. og útgáfan
á Pilti og stúlku samanlagt 107 rd. 48 sk. Það gerir 21 sk. á hvert eintak,
rétt um þriðjung af söluverði (sjá hér á bls. 152 og 158). Ávísun in
handa Møller hefur verið vegna þeirrar bókar og Jón þá ekki verið
búinn að borga neitt af henni þegar hann fór frá Danmörku.
Almennt er talað um Pilt og stúlku sem fyrstu íslensku nútíma-
skáldsöguna í þeim skilningi að hún tók mið af og líktist tilþrifum
fremstu rithöfunda samtímans sem mikið var þýtt af á dönsku, ein-
skáldsagan pil tur og stúlka 147
13 Snót. Nokkur kvæði eptir ýmiss skáld. Útg. Gísli Magnússon og Jón Þórðar son
Thóroddsen (kaupmannahöfn: útgefendur 1850), bls. 185; Jón Thor odd sen,
Piltur og stúlka. Dálítil frásaga (kaupmannahöfn: höfundur 1850), bls. 77, fram-
vegis Piltur og stúlka (1850).
14 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Borgarfjarðar- og Mýrasýsla (Borg.Mýr.). eD2/8. Dánarbú
Borgarfjarðarsýslu 1868, örk 1, bl. 225.
15 Bréf Jóns Thoroddsens, bls. 117.
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 147