Saga - 2016, Side 170
Aðeins eitt eintak af Pilti og stúlku kom fram á fyrra tímabilinu. Það
leyndist í dánarbúi Helgu Benediktsdóttur, sem lést í Reykjavík 6.
ágúst 1855. Hún var 55 ára og ekkja Sveinbjarnar egilssonar, rektors
við Lærða skólann. Dánarbúið var skráð 17. ágúst og námu eignir
Helgu 4783 rd. Piltur og stúlka var metin á 16 sk. og sömuleiðis
Örvar oddsdrápa, sem kom út í Reykjavík árið 1851 og var eftir son
hennar Benedikt Grön dal. Á uppboði, föstudaginn 28. september,
keypti Benedikt skáldsöguna á 48 sk. og drápuna á ríkisdal, auk
spegils á 14 rd.88 Svein björn maður Helgu lést 17. ágúst 1852 og átti
ekki Pilt og stúlku samkvæmt skráningu 22. september. Andvirði
eigna hans var 6626 rd.89 Við almenna skráningu á dánarbúum, án
þess að bókarinnar væri leitað sérstaklega, fannst annað eintak á
Arnheiðarstöðum í Val þjófs dal í Norður-Múlasýslu. kristín Jóns -
dóttir, húsfreyja þar, lést 25 ára hinn 26. júlí 1855, rúmu ári eftir að
hún gekk að eiga Guttorm Vigfússon bónda og alþingismann, sem
svo lést 14. september 1856, rétt rúmlega fimmtugur.90 Dánarbú
þeirra var skráð 21. október 1856, að andvirði 5571 rd. Þar voru um
60 bækur, allmargar danskar en líka sex bindi af Lovsamling for
Island, metin á 12 rd., og Odysseivs kvæði á 1 rd., en Árrit Prestaskólans
frá 1850, Piltur og stúlka og bæklingurinn Um sættamál á Íslandi eftir
Þórð Jónassen, frá 1847, saman á 48 sk. Á uppboði 14. maí 1857
keypti Arnfinnur Jónsson, þrítugur bóndi á Arnhólsstöðum, ritin
þrjú á 44 sk. en líka Þórðar sögu hreðu og Gísla sögu Súrssonar á 40
sk., áður metnar á 32 sk.91 Fyrri kona Guttorms var Halldóra
Jónsdóttir, sem lést 8. nóvember 1852. Dánarbú hennar var skráð 14.
júní 1854 að verðmæti 5506 rd. Þar voru um 50 bækur og margar
hinar sömu, meðal annars fyrsta bindi Lovsamling, en ekki Piltur og
stúlka eða kviða Hómers.92
Seinni útgáfan kom fyrir í tveimur dánarbúum og var hvorugt
eintakið í Reykjavík, heldur í uppsveitum Borgarfjarðar og á einni
már jónsson168
Prentaðar bækur Jóns eru nr. 198–476 í skiptabók og oft tvær bækur undir
hverju númeri, en ekki verður séð hvernig Steingrímur kemst að þeirri
niðurstöðu að skráin taki til „eitthvað milli 700 og 750 binda“; sjá bls. 85.
88 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Rvk. eD1/3, 1. Skiptabók 1852–1856, bls. 205; Rvk. eC1/5,
2. Uppboðsbók 1861–1865, bl. 48r. Spegillinn er á bl. 42r.
89 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. Rvk. eD1/3, 1. Skiptabók 1852–1856, bls. 3–12.
90 Vef. Alþingismannatal, www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=217
91 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. N-Múl. eD1/8, 1. Skiptabók 1853–1862, bls. 163; N-Múl.
eC1/1, 2. Uppboðsbók 1846–1871, bls. 100.
92 ÞÍ. Sýsluskjalasafn. N-Múl. eD2/5. Dánarbú 1853–1857, örk 2, bl. 151–152.
Saga haust 2016.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 17.5.2019 10:12 Page 168