Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 46
44
Eggerz. Hann var fæddur 11. apríl 1832 í Akureyjum, sonur
Friðriks Eggerz, prests í Skarðsþingum, og konu hans, Arndísar
Pétursdóttur. Pétur fór ungur til Englands og lærði þar versl-
unarfræði. Tuttugu og fjögurra ára að aldri fluttist hann norður
í Hrútafjörð og settist að á Borðeyrarbæ. Þá bjó þar Ragnheiður,
ekkja Vigfúsar Thorarensens sýslumanns. Voru þær systur,
Jakobína, fyrri kona Péturs Eggerz, og Ragnheiður, dætur Páls
Melsteð amtmanns. Jakobína lést haustið 1870 en Pétur kvæntist
aftur fjórum árum síðar Sigríði Guðmundsdóttur frá Kollsá.
Árið 1857 tók Pétur Borðeyrarbæ til ábúðar og sama ár fékk
hann verslunarleyfi. Árið eftir setti hann ráðsmann fyrir búið en
flutti sjálfur á Borðeyrartanga, í lítinn torfbæ er hann byggði þar
og bjó í fyrstu árin. Fljótlega gerðist hann mikill athafnamaður
um byggingar. Árið 1860 reisti hann 12 × 24 álna vörugeymslu-
hús, vandað að viðum og öllum frágangi, enda var hann þá farinn
að versla með vöruleifar frá lausakaupmönnum, mest frá skipum
Clausens.
Hús þetta stóð í nær 100 ár og muna það margir í dag sem
pakkhús Kaupfélagsins. Yfir því var loft eða rishæð, oftast kallað
Langaloft, og var síðar um hríð notað sem svefnloft fyrir starfsfólk
í sláturtíð. Fóru sögur af galsafengnum uppátektum manna sem
þar söfnuðust saman á haustin. Meira að segja rosknir og virðu-
legir bændur áttu til að sýna af sér hinn mesta strákaskap, flugust
á og glímdu og höfðu frammi hrekkjabrögð hver við annan í
græskulausu gamni. Gamla pakkhúsið var rifið 1958. Það vék fyrir
nýju verslunarhúsi Kaupfélagsins.
Á árunum 1862–64 reisti Pétur vandað timburhús sem stendur
enn, járnklætt á hlöðnum grunni. Hús þetta er ein hæð og ris-
hæð. Í því hafði hann krambúð í suðurendanum um hríð, þá
fyrstu sem getið er um á Borðeyri, og er hún komin þar 1864. Að
öðru leyti var þetta fyrst og fremst íbúðarhús og mun hafa verið
kallað faktorshús í fyrstu en síðar Riishús og undir því nafni er
það skráð í dag. Þetta er eina byggingin á Borðeyri frá þessum
tíma sem enn stendur og eflaust eitt elsta hús við Húnaflóa.
Fyrir árið 1868 var Pétur Eggerz búinn að reisa þriðja húsið,
eina hæð og ris í svipuðum stíl og Riishúsið. Þetta hús var vöru-
geymsla og krambúð og komst síðar í eigu Clausenverslunar sem