Strandapósturinn - 01.06.2013, Qupperneq 52
50
í för með sér. Í Norðanfara árið 1872 er birt kvæði í tíu erindum
sem ber nafnið „Ávarp frá Húnvetningi“. Það varpar skemmtilegu
ljósi á vangaveltur manna um verslunina og frelsishugmyndir á
þessum tíma. Þriðja og fjórða erindið eru á þessa leið:
Hollar lifna hagsumbætur Pjetur fannst á framkvæmd laginn,
Húnaþings um víða byggð; fór því sendur Norveg að,
komin er á frjálsa fætur oss að búa bezt í haginn
fjelags verzlun lögum trygð, Björgvinar í háum stað;
nú sem alltaf dag frá degi hann að sumri – vjer þess vonum –
drjúgri framför getur náð, völdum hingað stýrir knör;
skörungsstjórn því skortir eigi, árnum beztu heilla honum,
skynsamleg og forsjál ráð. heilög gæfan beini för!21
Félagsfundur var haldinn á Þingeyrum 24. júní 1872. Af reikn-
ingum sem fram voru lagðir sást að ágóði hluthafa var tuttugu af
hundraði. Ríkti mikil ánægja og bjartsýni á fundinum. Þótt allt
hefði gengið heldur seint þá voru vörurnar yfirleitt betri en menn
áttu að venjast og verulegur ágóði. Var því ákveðið að safna enn
800 nýjum hlutum. Á fundinum var einnig samþykkt tillaga um
að reyna að fá bændur til að lofa að versla eingöngu við félagið í
fimm ár.
Árið 1872 kom Björgvinjargufuskipið Jón Sigurðsson þrjár
ferðir með vörur til íslensku félagsverslananna, þar á meðal til
Borðeyrar og Grafaróss. Í fyrstu ferð þess var Pétur Eggerz með
en hann fór jafnan sjálfur utan til vörukaupa. Um þriðju ferð
skipsins er sagt að nú sé „sá munrinn, að þar sem hann hafði farið
tómskipa héðan, sem næst, í 2 fyrri ferðunum, þá fór hann nú
með hlaðfermi af alskonar íslenzkri vöru, saltfiski, lýsi, æðardún
og ull …“.22 Félagssvæðið breiddist út og náði fljótlega norður í
Skagafjörð og til Siglufjarðar, og suður um Mýrar og Borgarfjörð.
Meginhluta af vörum var afskipað á Borðeyri en einnig voru vörur
fluttar til Grafaróss fyrir Skagafjörð og austurhluta Húnavatns-
sýslu. Þá voru pantaðar vörur fluttar á Sigríðarstaðaós í Þverár-
hreppi í Vestur-Húnavatnssýslu og afhentar þar. Kaupmenn á
Skagaströnd og Hólanesi töldu þá verslun óleyfilega og urðu
málaferli milli þeirra og félagsins.
21 Norðanfari, 19. mars 1872. „S.J.J.“ stendur undir kvæðinu.
22 Þjóðólfur, 29. ágúst 1872.