Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 57

Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 57
55 björg Kristjánsdóttir. Hún varð seinna kona Thors Jensen en kynni þeirra hófust á Borðeyri. Eftir að Steinunn flutti með börn sín til Akraness 1883 festi Thor ekki lengur yndi á Borðeyri og flutti þaðan ári síðar en bar þó jafnan ræktarhug til staðarins. Verslunarsvæði Borðeyrar var afar stórt á þessum árum. Þangað sóttu bændur úr suðurhluta Strandasýslu, úr Dalasýslu allt vestur í Saurbæ, úr Norðurárdal og Þverárhlíð í Borgarfirði og úr Húna- vatnssýslu austur að Vatnsdal. Útflutningur frá Borðeyrarverslun- um var á næstu árum talinn mestur allt að 1200 ballar af ull. Eftir því ætti sauðfjáreign viðskiptamanna Borðeyrarverslana að hafa verið um 90 þúsund fjár en þá er talið að í landinu séu alls 454 þúsund sauðfjár. Haustið 1878 komu fleiri en eitt af skipum enska fjárkaup- mannsins Slimons til Borðeyrar og tóku fé svo þúsundum skipti bæði úr fjarlægum og nærliggjandi sveitum. Eitthvað var tekið af hrossum í skip á Borðeyri en oftar munu þau hafa verið rekin suður. John Coghill fjárkaupmaður var vel kunnur hér um sveitir sem víðar. Hann keypti fé og hross fyrir Slimon í Leith. Fannst mörgum gott við hann að skipta, hann greiddi fyrir í ensku gulli og þótti áreiðanlegur í viðskiptum. Coghill varð þeim sem hann hittu mjög minnisstæður. Thor Jensen lýsir honum þannig: Coghill lærði fljótt graut í íslenzku á ferðum sínum, svo að hann gat gert sig skiljanlegan við hvern sem var. En sérstaklega lærði hann til fullnustu að blóta á íslenzku. Fléttaði hann blótsyrðunum innan um allt sitt tal, við hvern sem hann ræddi, eins og hann héldi, að þetta væri málskrúð hið mesta og kurteisi.25 Í kringum 1880 fóru bændur í grennd við Borðeyri að panta vörur með Coghill og fljótlega upp úr því mynduðust víðar pönt- unarfélög í sambandi við hrossa- og sauðakaupin. Aðallega voru pantaðar byggingavörur og korn frá Englandi. Verðið þótti hag- stæðara en hjá dönsku kaupmönnunum og vörurnar betri. Talið er að Coghill sé með þeim fyrstu er fluttu þakjárn til landsins. Alla tíð meðan lifandi fé var flutt út voru aðalútflutningshafnir fyrir Norðurland á Borðeyri og á Akureyri. Í fyrstu mun fénu hafa verið skipað út í bátum en svo var sett upp fjárbryggja. Ekki þurfti 25 Thor Jensen, Reynsluár (Minningar, 1. b.), Reykjavík, 2. pr. 1983, bls. 104.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.