Strandapósturinn - 01.06.2013, Blaðsíða 58
56
mjög langa bryggju því aðdýpi er mikið. Lögðust skipin við hana
og var féð rekið viðstöðulítið um borð alla leið ofan í lest eftir
hlerum og brautum. Fjárbryggjan var tekin upp á hverju hausti.
Fyrstu ár níunda áratugar 19. aldar voru óvenju mikil harðindi
á Íslandi, og þá fækkaði um þriðjung í sauðfjárstofni landsmanna.
Eftir veturinn 1880–81, kaldasta vetur sem mælst hefur á landinu,
brást grasspretta um sumarið. Vorið 1882 rak síðan hafís að öllu
Norðurlandi. Lá hann landfastur frá Aðalvík og austur með öllu
landi fram í ágúst og tepptust allar siglingar þann tíma. Matar-
skortur var í öllum kaupstöðum norðanlands og vöruþurrð í
verslunum, einnig á Borðeyri. Þá var farið í kaupstað vestur í
Stykkishólm til að fá brýnustu nauðsynjar, en verulegir hvalrekar
björgðuðu mörgum íbúum við Húnaflóa um vorið.
Þetta sumar var það kaldasta sem komið hefur síðan mælingar
hófust. Um vorið varð skepnufellir og mikill lambadauði í vor-
hretum. Um sumarið var grasbrestur svo jörð greri varla í utan-
verðum Hrútafirði, ógnarkuldi af sífelldum ísþokum og norðan-
átt. Er sagt að á Norðurlandi hafi tíu sinnum orðið alsnjóa í
sveitum frá Jónsmessu til rétta. Ofan á allt bættist skæður misl-
ingafaraldur sem bæði olli manntjóni og töfum frá heyskap. Hinn
7. ágúst komst loks skip til Borðeyrar og varð þá annríki mikið,
öllum lá á. Víðast var ekki búið að hirða eitt einasta strá. Miklu af
búfé varð að farga vegna fóðurskorts. Þetta haust flutti Slimons
frá Borðeyri 7.498 fjár í tveim ferðum með skipinu Camoens. Fé
þetta var keypt af fjárkaupmanninum Coghill. Af landinu öllu
voru þá flutt 24.489 fjár.
Í vetrarbyrjun eða í nóvember 1882 kom til Borðeyrar enska
skipið Lylie hlaðið fóðurkorni og heyi sem keypt var í Englandi
en þar í landi fór fram mikil fjársöfnun vegna hallærisins á Ís-
landi. Með skipinu var Eiríkur Magnússon, prófessor í Cambridge
á Englandi, en hann hafði forgöngu um þessa söfnun. Á Borðeyri
var skipað upp 2.500 sekkjum af fóðurkorni og nær 700 böggum
af heyi. Hreppstjórar sáu um skiptingu kornsins eftir þörfum,
hver í sinni sveit. Af því fékk Strandasýsla 1000 sekki en Húna-
vatnssýsla afganginn en heyinu var skipt til helminga. Þetta hey
var vélbundið með vír og vakti það mikla athygli hér. Í mars kom
síðan gufuskipið Nephtun með gjafavöru frá samskotanefnd í
Danmörku. Það hafði áður komið á Reykjarfjörð og á Borðeyri