Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 64

Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 64
62 1911 til 1930 og ráku greiðasöluna til þess tíma er þau fluttu brott. Þá komst Tómasarbær í eigu Þórarins Lýðssonar frá Bakkaseli. Hann var smiður og stundaði smíðar á Borðeyri ásamt föður sín- um, Lýð Sæmundssyni, sem líka var smiður. Þeir feðgar breyttu Tómasarbæ í það horf sem sem hann er nú. Rifu burt torfið og gerðu bæinn að járnklæddu timburhúsi (sennilega 1935). Um tíma sat sýslumaður Strandasýslu á Borðeyri. Fyrstur var þar Marinó Hafstein (1867–1936), skipaður sýslumaður 1899 og gegndi því embætti til 1909. Hann sat fyrst á Borðeyri um skamm- an tíma en síðan á Óspakseyri. Halldór Kr. Júlíusson (1877–1976) var skipaður sýslumaður Strandamanna 1909 og bjó á Borðeyri alla sína sýslumannstíð eða til 1938 er hann flutti brott úr sýsl- unni. Eftir það hefur sýslumannssetur verið á Hólmavík. Halldór sýslumaður var röggsamt yfirvald og setti svip á mannlíf í héraði. Hann keypti Valdasteinsstaði árið 1921 og rak þar fjárbúskap. Halldór bjó og hafði skrifstofu í húsi því sem Bryde kaupmaður reisti fyrir verslun sína og fékk það þá nafnið sýslumannshús. Á árunum 1914–36 bjó á Borðeyri Ólafur Jónsson ættaður af Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann lærði trésmíði ungur og fór utan til Kaupmannahafnar til framhaldsnáms með stuðningi Riis kaupmanns. Úr náminu kom hann aftur með tilhöggna grindina í hið myndarlega sláturhús er Riis reisti á Borðeyri 1912. Ólafur þótti hinn ágætasti smiður og hafði jafnan nokkra lærlinga meðan hann var á Borðeyri. Hann var yfirsmiður við byggingu Reykjaskóla 1930–31. Ólafur var tvíkvæntur, fyrri konu sína, Jónu Þóreyju Sturlaugsdóttur, missti hann eftir skamma sambúð. Seinni kona hans var Elínborg Sveinsdóttir. Hún starfaði við sím- ann á Borðeyri og varð síðan símstöðvarstjóri á Þingeyri er þau hjón fluttu þangað 1936. Þau hjón áttu mörg börn og eru sum af þeim þjóðkunn svo sem Yngvi sýslumaður og Höskuldur banka- stjóri. Árið 1931, hinn 28. janúar, varð stórbruni á Borðeyri. Þá kvikn- aði í nýlegu þriggja hæða verslunarhúsi Kaupfélagsins en í því var sölubúð, skrifstofa, vörugeymsla og íbúð fyrir framkvæmdastjóra. Veður var hagstætt þennan dag en ella hefði varla tekist að verja næstu hús. Þá var lán í óláni að Goðafoss lá fyrir akkerum á Borð- eyri og komu farþegar og skipsmenn heimamönnum til hjálpar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.