Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 73

Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 73
71 þær miklu þrautir er hún hafði þurft að líða og þær voru býsna einkennilegar hugmyndirnar sem fóru um mitt litla höfuð í sam- bandi við allt þetta, en sorgin var sár. Bærinn okkar Hann samanstóð að segja má af fjórum húseiningum þannig að framþil voru fjögur og sneru mót um það bil suðaustri. Næst suðvestri var baðstofuhúsið en því var þrískipt undir lofti. Við framþil var tveggja stafgólfa (eða rúmlega það) gestastofa, lýst af tveimur sex rúða gluggum á framþili. Þar inni var gestarúm sem draga mátti sundur til hliðanna svo að tveir eða jafnvel þrír gætu sofið í því. Borð var þar sem lengja mátti til endanna, einnig dragkista (kommóða), nokkrir stólar og veggspegill. Þá var eld- hús, um 2,5 stafgólf, með tveimur gluggum til suðvesturs. Stór eldavél stóð við stofuþilið til hægri handar stofudyrum. Borð var þar til að matast við með fram gluggavegg og annað lítið við búrþil undir skilvindu. Niðurgrafinn kjallari var undir eldhúsinu og voru þar hafðar slátur- og sýrutunnur ásamt fleiru matarkyns. Hleri á hjörum var yfir stiganum niður í kjallarann en yfir hlera þeim lá stigi upp í baðstofuna og þiljað kringum stigaopið og gengið um dyr, sem hurð var fyrir, inn á baðstofuloftið. Við norð- vesturgafl var búr, um 1,5 stafgólf, með sams konar glugga og í stofu og eldhúsi. Í búrinu var ýmiss konar góðgæti. Man ég að þar voru skyr- og súrmetissáir með sviðum, sauðarbringum, mag- álum, lundaböggum, æðareggjum og fleiru. Stór kista var innan við búrdyrnar. Í henni voru geymd brauð, kökur, sykur, ýmsar kryddvörur og fleira. Einnig voru þar oft ein eða tvær áfengis- flöskur, var það þó ekki mikið haft til daglegrar notkunar utan hvað pabbi fékk sér stundum út í kaffið að morgni dags. Undir glugganum var búrborðið en á því var brauð og annar matur sneiddur niður til málsverða. Baðstofunni var skipt í tvennt. Tvö stafgólf voru þiljuð af í suðausturenda hennar og voru þar fjögur tveggja manna rúm. Sváfu þar foreldrar okkar, elsta systir mín, Jensína, [og] nokkur börnin ásamt vinnukonu er Jórunn hét og fylgt hafði móður okkar er hún kom, hið ágætasta dyggðahjú sem var með okkur til dauðadags. Á stafnþili var sex rúða gluggi, nokkru minni en stofugluggarnir, sem opna mátti. Laust borð var undir glugganum og við það fjórir stólar. Einnig var minni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.