Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 81

Strandapósturinn - 01.06.2013, Page 81
79 mig í æsku minni sem varð til þess að rótfesta í mér þennan sí- fellda ótta við að eitthvað svona lagað yrði á vegi mínum þegar síst skyldi enda allt af verri tegundinni sem mér birtist þannig. Þó var það eitt sinn að ég sá gamla konu í lifenda lífi rétt við hlið mér þar sem engin kona var, sú gamla lá þá í rúmi sínu uppi í baðstofu er ég sá hana frammi í skemmu. Mér brá ónotalega við þetta er hún eins og þurrkaðist burtu fyrir augum mínum. Datt fyrst í hug að hún væri nú skilin við en reyndar lifði hún á annað ár eftir þetta. Já, margt er skrýtið í kýrhausnum, segir þar. Öll svona fyrirbæri hurfu mér gjörsamlega upp úr 10–12 ára aldri en martröðin hef- ur alltaf angrað mig til þessa dags, svona öðru hvoru. Þó er hér ein undantekning en þá mun ég hafa verið orðinn 17 ára gamall. Ég lá þá úti fyrir tófum norður á svokallaðri Strönd en á þeim árum voru refaveiðar töluvert stundaðar þarna á vetrum og hafði lengi verið. Lágum við þá á nóttum við klettatanga eða hleinar hér og þar norður með sjónum eftir því hvar veiðilegast þótti í það og það sinnið, stundum allt að tveggja stunda gang frá bæn- um. Einnig höfðum við tvö skothús sérstaklega til þess búin að sitja í þeim fyrir tófum ef þær fengjust til að sækja í agn sem lagt var út fyrir þær. Verð var þá hátt á fallegum refaskinnum, allt að 300 krónur fyrir gott mórautt skinn en það voru miklir peningar á þeim árum þegar kaup, t.d. hjá verslunum, var ekki nema 25 aurar fyrir tímann. Jæja, ég stóð nú þarna í klettaskoru þar sem lítið bar á mér skammt ofan við fjöruna. Norðaustanstormur var af hafi og nokkurt brim sem hafði barið upp krap og snjó í allháa hrönn við efsta flæðarmál en slíka hrönn kölluðum við móð eða fjörumóð. Þegar ég hafði staðið þarna í skorunni 3–4 tíma sá ég hvar mórauð tófa kom valhoppandi eftir móðnum og fór mjög krókótt, ég þreif byssuna en lágfótu bar hratt að og var komin í dauðafæri er ég var tilbúinn að skjóta en þá er hún allt í einu horfin og á þeim stað er hún gat ekki hafa skotist bak við neitt. Ég varð mjög undrandi en þaut svo niður á móðinn til að svipast um eftir förum í snjónum og hvert hún hefði getað farið úr sjónmáli en þar sáust engin för sem hefðu þó átt að sjást því snjór var þarna nýfallinn og mjúkur. Þegar ég er rétt kominn upp í skoruna mína aftur og er að velta þessum undrum fyrir mér birtist mér þá ekki sama sýnin aftur, mórauð tófa kemur valhoppandi sömu leið og hin fyrri og þræðir nákvæmlega sömu krókana að því er virðist.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.