Strandapósturinn - 01.06.2013, Blaðsíða 106
104
drykkjarfanganna. Var ég þá fljótlega tekinn (fastur fyrir drykkju-
læti) og háttaður niður í rúm og minni frammistöðu þar með
lokið.
Lesendur kunna að halda að ég ýki hér nokkuð um vínveiting-
arnar en þess ber þá að gæta að á þessum árum, er hér um ræðir,
var áfengi mjög ódýrt enda keypti pabbi þá alltaf lagartunnu af
brennivíni og 40 potta kút af rommi á hverju ári auk annarra
víntegunda. Drykkjuskapur var þó enginn á heimilinu og yfirleitt
ekki í sveitinni, vín sjaldan haft um hönd nema þá að eitthvað sér-
stakt bæri til. Faðir okkar var mikill hófsemdarmaður bæði við vín
og annað, drakk aldrei meira en svo að rétt mátti merkja á honum
áhrif þess en hann gaf oft flösku og flösku kunningjum sínum
sem voru margir. Romm var einnig mikið notað til að krydda með
selinn er saltaður var til hákarlabeitu. Annars var ekki undarlegt
þótt faðir okkar héldi rausnarlega upp á afmæli þessa mikla
happaskips, Ófeigs, sem enn um tíu ára skeið átti eftir að flytja
drjúgan feng að landi án þess að nokkurn tímann yrði alvarlegt
slys á áhöfn eða skipi. Auk þess var hann mikill rausnarmaður að
eðlisfari og hafði nokkur efni á að vera það þótt ekki væri neinn
stórauður þar í garði.
Ekki man ég eftir nema einni brúðkaupsveislu sem ég var í á
æskuárum mínum heima en talað heyrði ég um fleiri veislur í
sveitinni. Bar þar hæst veislan er þau voru gefin saman í hjóna-
band Hallfríður Jónsdóttir, frænka okkar í Stóru-Ávík, og Bene-
dikt Sæmundsson frá Finnbogastöðum. Þetta mun hafa verið um
1906–1908 og var lengi orð á því haft hve mikið fjölmenni hefði
þar verið, um 80 boðsgestir, veitingar rausnarlegar og mikill gleð-
skapur.
Heima hjá okkur var tvenndabrúðkaup sumarið 1911, 6. júlí.
Það var þegar hálfsystir okkar, Jensína, giftist Sigurgeiri Ásgeirs-
syni frá Heydalsá en hann var bróðir móður okkar yngri systkin-
anna og Pétur, bróðir okkar, kvæntist Ingibjörgu Ketilsdóttur frá
Ísafirði. Þennan júlídag var veður blítt, hæg vestlæg átt með sól-
skini. Var reist stór tjaldgrind á bæjarhólnum og tjaldað yfir með
seglum af Ófeigi og sexæringi. Þetta var allstórt tjald og rúmgott.
Langborði var slegið upp í tjaldinu ásamt bekkjum með fram
hliðum þess og innri gafli. Mjór gangur var hafður með fram
tjaldveggjum fyrir frammistöðustúlkur að ganga um með veiting-