Strandapósturinn - 01.06.2013, Side 112

Strandapósturinn - 01.06.2013, Side 112
110 andi við þessar kosningar var þá ný stjarna á stjórnmálahimnin- um, Ari Jónsson frá Hjöllum í Þorskafirði er síðar tók sér ættar- nafnið Arnalds. Óþarft er mér að kynna þessa menn frekar svo kunnir voru þeir og eru þjóðinni en Ari var fjölmörg ár sýslu- maður, fyrst Húnvetninga og seinna Norðmýlinga og bæjarfógeti á Seyðisfirði. Það sem mér er minnisstæðast við þessar kosningar er hvað mikið var um þær talað, framkomu og viðbrögð fram- bjóðenda í þessu eða hinu tilfellinu og ræður þeirra á framboðs- fundum. Flestum mun hafa fundist meira til um hæverska fram- komu og málflutning Ara en Guðjóns enda mun Ari hafa unnið sér traust og fylgi fjölmargra með yfirlætislausri og alþýðlegri framkomu sinni í kosningaleiðangri sínum um sýsluna nokkru fyrir kosningarnar. Guðjón var aftur á móti talinn nokkuð bráð- lyndur og ekki ætíð sem aðgengilegastur hverjum sem væri ef skapið var ekki í lagi þá stundina þótt hann að öðru leyti væri mikill mannkostamaður. Orð var á því haft að þetta bráðlyndi hans hefði síst orðið honum til framdráttar á fyrsta fundi þeirra í Árnesi er Ara hafði tekist að hleypa honum upp heldur óþyrmi- lega með því að geyma sér að minnast á eina mikilvægustu at- hugasemd sína við Uppkastið þar til í næstsíðustu ræðu sinni en sú athugasemd var um þá grein þess er ákvað um jafnan rétt Ís- lendinga og Dana til fiskveiða í landhelgi beggja þjóðanna. Hafði Ari, eftir að hafa svarað síðustu ræðu Guðjóns, snúið sér að því í ræðu þessari að útskýra í ítarlegu máli fyrir fundarmönnum hve skaðlegt þetta ákvæði mundi verða þjóðinni í framtíðinni en því kom hann svo seint að þessum lið að þar vissi hann að Guðjóni mundi erfiðast um vörnina. Hafði Guðjón orðið svo ofsalega reiður andstæðingi sínum fyrir að hafa ekki komið fyrr að þessu efni en komið væri að lokum þessa langa fundar fyrst hann teldi það svo mikilvægt að sagt var að ræða hans hefði að mestu orðið óbótaskammir um Ara og orðbragðið þannig að jafnvel einlæg- ustu fylgismönnum hans hefði ofboðið. Fólk var mjög spennt um úrslit þessara kosninga. Svo var æs- ingurinn mikill að andstæðingar máttu varla hittast án þess að fara í hár saman ef á stjórnmál var minnst. Langflestir töldu þó allt til síðustu stundar að Guðjón mundi sigra en með litlum at- kvæðamun. Þegar atkvæði voru talin hjá sýslumanninum á Óspaks- eyri, Marinó Hafstein, var sími ekki kominn lengra norður en til
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.