Strandapósturinn - 01.06.2013, Qupperneq 114
112
um fyrir lesturinn með handabandi. Ég kíkti oft milli fingranna
til að sjá hvort afi væri ekki búinn að bæna sig svo óhætt væri
að standa upp og þakka fyrir lesturinn. Okkur krökkunum var
einnig kennt að við skyldum signa okkur eða krossa á hverjum
morgni er við kæmum í fyrsta sinni út úr bænum og biðja guð
að vernda okkur um daginn. Sama skyldi gert er við höfðum
nærfataskipti, áður en við færum í nærskyrtuna, svo auðvitað á
kvöldin áður en við færum að sofa. Ég held að flestir á heimilinu
hafi haldið þessari venju meðan ég þekkti til eða til 1919 að ég
fór að heiman.
Matarhæfi var þannig að borðað var þrímælt nema um heyanna-
tímann þegar litla skatts var neytt strax og komið var á fætur en
hann samanstóð vanalega af graut, mjólk og súru slátri, oftast
blóðmör og lifrarpylsa, stundum súrsað æðaregg eða selshreifi.
Morgunmatur var á ellefta tímanum. Þá voru fleiri tegundir mat-
ar fram bornar svo sem rúgbrauð, hveitibrauð, stundum flatkökur
ásamt viðbiti (smjör, kæfa, flot), harðfiskur, súrsaður og reyktur
matur eftir ástæðum og grautur og mjólk. Miðdegisverður (nón-
verður) var kl. 3 síðdegis. Það var aðalmáltíð dagsins. Á sunnu-
dögum og miðvikudögum var alltaf soðið saltket til þeirrar mál-
tíðar væri ekki um nýtt ket að ræða sem sjaldan var. Var þá oftast
saltketssúpa og rúgbrauð eða baunir og rófur með ketinu. Kart-
öflur þekktust vart hjá okkur á fyrsta áratug aldarinnar en dálítill
rófugarður var ofan við bæinn sem venjulega fengust úr nokkrar
tunnur af rófum er árferði var ekki því verra. Aðra daga vikunnar
var saltaður fiskur eða selket og rúgbrauð borðað með. Útálát
brædd tólg eða flot, oft mörflot, en stundum borðað með saltað
selspik, soðið. Eftirmatur var tíðast mjólkurvellingur og kaffi síð-
ast. Ávaxtagrautar voru helst ekki nema á hátíða- eða tyllidögum.
Kvöldverður var kl. 9 eða þegar inn var komið að lokinni vinnu.
Hann var oftast svipaður morgunverðinum, tíðast hafragrautur
eða skyrhræringur ásamt heitri flóaðri mjólk, brauð og súrmeti
ýmiss konar.
Ég hefi nefnt hér nokkrar algengustu matartegundir sem neytt
var en auðvitað eru margar ónefndar, t.d. hákarl og hrognkelsi á
vorin og fleira. Auk morgunkaffis var kaffi drukkið kl. 12 á hádegi
og miðaftanskaffi kl. 6 á kvöldin, þess utan æði oft drukkinn auka-
sopi, einkum á kvöldin. Þegar ég man fyrst eftir mér var öllum