Strandapósturinn - 01.06.2013, Síða 128

Strandapósturinn - 01.06.2013, Síða 128
126 draum æðri en þann að geta eignast slíkt verkfæri. Nú voru efni mín orðin þau að ég taldi mig vel geta greitt gripinn af inneign minni í versluninni á Norðurfirði en verð byssunnar var 40 krón- ur. Skorti þá aðeins leyfi föður míns til kaupanna en nú reyndist pabbi tregur til frekari veitingar byssuleyfa og var víst ekki undar- legt sé litið til aldurs míns sem þá var. Loks kom þó þar að hann hét mér byssunni í fermingargjöf er þar að kæmi. Fannst mér nú óbærilegt að bíða þess dags afturhlaðningslaus, eða um tvö ár, þar eð samkvæmt kirkjubókum skyldi ég ekki „ganga fyrir gafl“ fyrr en vorið 1913. Varð mér það að ráði eftir miklar vangaveltur að ná tali af prestinum okkar og biðja hann að ferma mig ári fyrr en til stóð enda mundi mig ekki vanta nema svona hálft ár í réttan fermingaraldur ef ég yrði fermdur á hvítasunnu 1912. Lét ég hann jafnvel á mér skilja að ég hygði á suðurferð til framhalds- náms næsta haust ef ég næði að fermast áður. Prestur kvað þetta ekki hægt nema með biskupsleyfi. Bað ég hann þá blessaðan að sækja fyrir mig um þetta dýrmæta leyfi. Þannig tókst mér að slá tvær flugur í einu höggi, losna við frekara vafstur með kver og biblíusögur og verða eigandi að afturhlaðningi ári fyrr en ætlað var. Af því sem hér hefur verið skráð um byssuævintýri mín má sjá að við krakkarnir höfðum allmikið frjálsræði í uppvexti okkar, líklega meira en almennt hefur verið á þeirri tíð. Sjálfur var pabbi mjög gætinn maður og gerði sér jafnan sem ljósasta grein fyrir hættum, hvar þær gætu leynst og við hvaða aðstæður. Hann skýrði líka rækilega fyrir okkur hvernig við skyldum meðhöndla þau tæki eða áhöld sem hætta gat stafað af í notkun og jafnframt treysti hann okkur merkilega vel til að fara eftir þeim ráðum er hann gaf okkur. Líkamlegar refsingar þurftum við aldrei að óttast enda held ég að mér sé óhætt að fullyrða að hinn gamalkunni og þjóðfrægi „klóalangur“ hafi verið alveg óþekkt uppeldistæki á þessu heimili síðan löngu fyrir mitt minni og mína daga. Á árunum fyrir 1914 voru engar hömlur á innflutningi til lands- ins, þörfum né óþörfum, af hálfu hins opinbera. Hann takmark- aðist aðeins af óskum manna og greiðslugetu og opinberra tolla gætti lítt fyrir almannasjónum. Þá tíðkaðist töluvert að einstak- lingar, jafnvel unglingar, pöntuðu sér frá útlöndum eitt og annað eftir verðlistum og fengu vöruna senda sér gegn póstkröfu. Þá var
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.