Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 20214
Línur eru nú að skýrast varðandi
afurðir einstakra kúabúa á þessu
ári. Enn vantar þó tölur fyrir
nóvember og desember en þegar
eru samt mjög sterkar líkur á að
búið Búrfell í Svarfaðardal verði
nythæsta búið í ár eins og 2020.
Samkvæmt heimildum Bænda
blaðsins voru bændur á Búrfelli, þau
Guðrún Marinósdóttir og Gunnar
Þór Þórisson, í efsta sæti í lok
október með 8.873 kg í meðalnyt
á hverja árskú. Þau eru með 40,4
árskýr í nýju fjósi sem rúmað getur
64 kýr auk smákálfa. Þá eru þau líka
með Lely mjaltaþjón. Ef þeim tekst
að halda þessari stöðu þá yrði það
nokkur aukning í nyt frá síðasta ári
þegar meðalnytin á árskú var 8.579
kg. Miðað við stöðu efstu tíu kúabúa
í lok október, þá verður að teljast
ólíklegt að nokkurt annað bú geti
skákað þeim úr þessu. Öll eru búin
samt að ná yfir 8.000 kg í meðalnyt.
Hjónin á Hraunhálsi að
gera góða hluti ár eftir ár
Í öðru sæti í lok október voru líka
þekktir afburða kúabændur, en það
eru hjónin Guðlaug Sigurðardóttir
og Jóhannes Eyberg Ragnarsson á
Hraunhálsi í Helgafellssveit. Þau eru
með 24,7 árskýr sem hafa skilað að
meðaltali 8.634 kg eins og staðan
er nú. Þau nota rörmjaltakerfi í
sínu fjósi, enda búið varla með það
margar kýr að það réttlæti kaup á
mjaltaþjóni. Enda hafa þau verið að
skila afbragðsútkomu árum saman
svipað og í sauðfjárræktinni. Líkt
og með búið á Búrfelli þá er harla
ólíklegt að önnur bú á topp tíu list
anum í október takist að skáka þeim
Guðlaugu og Jóhannesi Eyberg úr
öðru sætinu.
Í þriðja sæti í októberlok var
búið SyðriHamrar 3 í Ásahreppi
austan Þjórsár sem er með 43,7
árskýr. Þar eru ábúendur Guðjón
Björnsson og Helga Björg Helga
dóttir. Meðalnytin hjá þeim í
októberlok var 8.386 kg sem telst
mjög gott.
Í fjórða sæti koma svo Stóru
Reykir þar sem árskýr eru 54,1.
Þar var meðalnytin 8.337 kg. Á
StóruReykjum búa Gísli Hauks
son og Jónína Einarsdóttir, en
bærinn er í Flóahreppi skammt
frá Selfossi. Jörðin tilheyrði áður
Hraungerðishreppi.
Í fimmta sæti er búið í Skolla
gróf í Hrunamannahreppi sem er
með 36,5 árskýr. Þar eru ábúendur
Sigurður Haukur Jónsson og Fjóla
Helgadóttir. Þar var meðalnytin í
októberlok orðin 8.323 kg.
Í sjötta sæti er Grund í
Svarfaðar dal sem er með 56,1
árskýr. Þar var meðalnytin
8.288 kg. Þar eru ábúendur þau
Friðrik Þórarinsson og Sigurbjörg
Karlsdóttir.
Í sjöunda sæti voru YtriSkógar
undir AusturEyjafjöllum sem er
með 25,4 árskýr. Meðalnytin
á þeim bæ var 8.256 kg. Þar
er reksturinn í félagsbúi undir
nafninu Skógabúið sf. (Bændur,
Ingimundur Vilhjálmsson og
Margrét H. Jónsdóttir og Sigurður
Sigurjónsson og Kristín Elínb.
Þorsteinsdóttir)
Í áttunda sæti í októberlok var
bærinn Votmúlastaðir í Austur
Landeyjum sem er með 41,2 árskýr.
Meðalnytin þar var 8.254 kg. Þar eru
ábúendur Hlynur Snær Theodórsson
og Guðlaug Björk Guðlaugsdóttir.
Í níunda sæti voru Svertingsstaðir
2 í Eyjafjarðarsveit sem er með
62,2 árskýr. Meðalnytin í október
lok var 8.252 kg. Ábúendur á
Svertingsstöðum 2 eru Hákon
Bjarki Harðarson og Þorbjörg Helga
Konráðsdóttir.
Í tíunda sæti var svo bærinn
SyðriGrund í Höfðahverfi skammt
frá Grenivík. Þar eru 49,5 árskýr
sem skiluðu 8.185 kg í meðalnyt.
Ábúendur og skýrsluhaldarar á þeim
bæ eru Stefán Rúnar Sævarsson og
Steinunn Harpa Jónsdóttir.
Lítil munur á mörgum búum
Ljóst er af þessari upptalningu sem
sett er hér fram til fróðleiks, að ekki
munar ýkja miklu í nyt á átta af tíu
kúabúum á topp tíu listanum. Vel er
því hugsanlegt að röðin í þeim hópi
eigi eftir að riðlast eitthvað fram að
áramótum. Eins gætu næstu bú þar
á eftir blandað sér í leikinn, enda
er þeir orðnir margir kúabændurnir
á Íslandi sem kalla má afburða
bændur.
Gælt við 9.000 kílóa markið
Það er hreint með ólíkindum hvað
nytin hjá þessum smágerða íslenska
kúastofni hefur aukist mikið á til
tölulega fáum árum. Þó fjölmargar
kýr hafi verið með mun hærri nyt
en meðalnytin segir til um, þá bíða
eflaust margir spenntir eftir því að
metið í meðalnytinni á einhverju
búinu slái 9.000 kílóa markið. Það
næst trúlega ekki í ár, en nokkrum
sinnum hafa bændur þó komist ná
lægt því marki. /HKr.
FRÉTTIR
Þriðji og síðasti tilboðsmarkað
ur með greiðslumark mjólkur
var haldinn 1. nóvember. Fjöldi
gildra tilboða um sölu greiðslu
marks voru 13, eða alls 1.135.858
lítrar mjólkur. Það er mun meira
en á síðasta tilboðsmarkaði frá
1. september síðastliðnum þegar
fjögur gild sölutilboð bárust fyrir
109 þúsund lítra.
Enn er í gildi ákvörðun ráðherra
um hámarksverð, sem skuli vera
þrefalt afurðastöðvaverð – en það
var við lok tilboðsfrests 305 krónur
fyrir hvern lítra sem reynist einnig
jafnvægisverð.
Viðskipti að andvirði tæpra
350 milljóna króna
Fjöldi gildra tilboða um kaup
voru 174 þar sem óskað var eftir
8.565.000 lítrum. Alls áttu sér stað
viðskipti með 1.135.725 lítra að
andvirði 346.396.125 króna.
Samkvæmt reglum er sérstök
úthlutun til nýliða fimm prósent af
sölutilboðum sem nú reyndist vera
56.784 lítrar. Fjöldi gildra kaup
tilboða frá nýliðum voru að þessu
sinni alls 16.
Taka breytingarnar gildi 1. jan
úar 2022. /smh
Staða afurðahæstu kúabúa á Íslandi í lok október 2021
Bú - október 2021 Skýrsluhaldarar Árskýr Afurðir í kg
Búrfell í Svarfaðardal Guðrún og Gunnar 40,4 8.873
Hraunháls í Helgafellssveit Guðlaug og Eyberg 24,7 8.634
Syðri-Hamrar 3 í Ásahreppi Guðjón og Helga 43,7 8.386
Stóru-Reykir í Flóahreppi Gísli og Jónína 54,1 8.337
Skollagróf í Hrunamannahreppi Sigurður og Fjóla 36,5 8.323
Grund í Svarfaðardal Friðrik Þórarinsson 56,1 8.288
Ytri-Skógar í Austur-Eyjafjöllum Skógabúið sf. 25,4 8.256
Voðmúlastaðir í Austur-Landeyjum Hlynur og Guðlaug 41,2 8.254
Svertingsstaðir 2 í Eyjafjarðarsveit Hákon og Þorbjörg 62,2 8.252
Syðri-Grund í Höfðahverfi Eyjafirði Stefán og Steinunn 49,5 8.185
Heimild: Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins - RML
Miðað við 8.000 kg á árskú í meðalnyt og þar yfir
Íslensku kýrnar á afurðahæstu kúabúum landsins standa sig vel:
Búrfellsbúið í Svarfaðardal líklegt með að
verða nythæsta kúabúið annað árið í röð
– Búið á Hraunhálsi í Helgafellssveit með mjög sterka stöðu í annað sætið
Gunnar Þór Þórisson og Guðrún Marinósdóttir, bændur á Búrfelli í
Svarfaðardal, eru greinilega að ná góðum árangri í mjólkurframleiðslunni
i nýja fjósinu sínu. Þau eru búin að vera með mesta meðalnyt eftir hverja
árskú nánast allt árið og eru með hæsta meðalnyt allra kúabúa landins eftir
að 10 mánuðir voru liðnir af árinu, eða 8.873 kg eftir hverja árskú.
Tilboðsmarkaður með greiðslumark mjólkur:
Viðskipti með rúma
1,1 milljón lítra
Fjöldi gildra tilboða um sölu greiðslumarks 1. nóvember voru 13, eða alls
1.135.858 lítrar mjólkur. Það er mun meira en á síðasta tilboðsmarkaði frá 1.
september síðastliðnum.
Hrossabændur samþykktu til
lögu um að sameinast Bænda
samtökum Íslands á aðalfundi
Félags hrossabænda sem haldinn
var 13. nóvember sl. á fjarfunda
formi.
Til stóð að fundurinn yrði haldinn
sem staðarfundur en horfið var frá
þeim áformum vegna stöðu Covid
19 smita á landinu.
Fundinum var frestað um 23
vikur, þegar fundinum verður
fram haldið verða lagðar fram til
afgreiðslu breytingar á samþykkt
um Félags hrossabænda.
Félagsgjald í Bændasamtökin er
veltutengt búsgjald. Hver félags
maður þarf að gefa upp veltu af
sínum rekstri sem tekur mið af
svokallaðri frumframleiðslu, fyr
irkomulagið var kynnt fyrir félags
mönnum á fundaferð formanns um
landið í síðasta mánuði.
„Hagsmunamál hrossabænda
eru nú eins og ávallt kynbótastarf
ið, skýrsluhaldið, WorldFengur sem
og það að vera í fararbroddi í ræktun
íslenska hestsins á heimsvísu. Þá
þarf að leggja áherslu á markaðs
setningu, bæði með reiðhesta sem
og hrossa afurðir, en gaman er að
geta sagt frá því að árið í ár stefnir
að því að verða algert metár hvað
útflutning varðar. Búgreinadeild
hrossabænda innan BÍ mun koma
til með að fást við öll þessi mál sem
og halda utan um eignir og sjóði sem
Félag hrossabænda á,“ segir Sveinn
Steinarsson, formaður FHB.
Um 630 manns eru skráðir félagar
hjá Félagi hrossabænda. „Auðvitað
vonast ég til að sem flestir gangi í BÍ
en þannig munum við ná slagkrafti í
okkar starf,“ segir Sveinn.
Félagið hefur ekki verið með
starfsmann um nokkurt skeið en
Sveinn segir að nú verði ákveðin
breyting á þar sem starfsmenn BÍ
verði starfsmenn þvert á bú greinar.
„Það nýtist jafnt okkur í hrossabú
skapnum eins og þá öðrum búgrein
um.“
Nánari upplýsingar varðandi
skráningu félagsmanna FHB í
BÍ verða sendar félagsmönnum á
næstu dögum en sameining félag
anna er hugsuð frá 1. janúar 2022.
Öll búgreinafélög, utan Æðar
ræktarfélagsins, hafa nú samþykkt
samruna í Bændasamtökin en til
laga þess efnis verður tekin fyrir í
Æðarræktarfélaginu á næsta aðal
fundi. /ghp
Félag hrossabænda sameinast Bændasamtökunum:
Leggja áherslu á markaðsstarf
Félagsgjald verður veltutengt búsgjald. Hver félagsmaður þarf að gefa upp
veltu af sínum rekstri sem tekur mið af svokallaðri frumframleiðslu. Mynd/ghp