Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202156
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Jörðin Arnþórsholt hefur
verið í eigu og ábúð sömu fjöl-
skyldu síðan 1919 þegar hjónin
Magnús Sigurðsson og Jórunn
Guðmundsdóttir fluttust þangað
búferlum frá Vilmundarstöðum í
Reykholtsdal.
Jónmundur Magnús er barnabarn
þeirra hjóna og varð þriðji ættliður
sem stundar búskap í Arnþórsholti
þegar hann og kona hans tóku við
búi af foreldrum Jónmundar árið
2015.
Býli: Arnþórsholt.
Staðsett í sveit: Arnþórsholt er í
Lundar reykjadal, hjarta Borgar
fjarðar.
Ábúendur: Hjónin Jónmundur
Magnús Guðmundsson (Mangi)
og Ragnhildur Eva Jónsdóttir.
Einnig búa á bænum foreldrar
Jónmundar, hjónin Guðmundur
Magnússon (Dúddi) og Elva Björk
Jónmundsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Í
Arnþórsholti búa hjónin Jónmundur
og Ragnhildur ásamt börnum sínum
þrem, Skarhéðni Jóni, níu ára,
Ellý Stefaníu, sjö ára og óskírðri
Jónmundsdóttur, tæplega tveggja
mánaða. Hundurinn Gáta og kisan
Lísa.
Stærð jarðar? 356 ha.
Gerð bús? Sauðfjárbú, taðhús og öllu
gefið á garða.
Fjöldi búfjár og tegundir? Á
fóðrum í vetur verða um 190 eldri
ær, um 50 gemlingar og 10 hrútar. Því
til viðbótar eru 7 hross og 2 folöld.
Einnig bættist í hópinn 2 geitur þegar
húsfreyjan varð þrítug í haust.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hefðbundinn vinnudagur, eftir
að kindurnar eru komnar á gjöf,
hefst stundvíslega kl. 7. Þá hendir
Mangi sér út í hús að gefa og
Ragnhildur fer í að vekja krakkana
og koma þeim í skólabíl. Eftir
gjöf er tekinn morgunmatur og
kaffibolli. Eftir það er farið í vinnu
utan bús, Mangi er húsasmiður svo
hann er oftast nær að smíða fram
til um fimm á daginn. Ragnhildur
er lögfræðingur svo hún tekur að
sér verkefni sjálfstætt og starfar
í hlutastarfi hjá Búhag ehf. sem
bókari. Ragnhildur er komin heim
fyrir skólabíl, þegar börnin koma
heim með bílnum, til að taka á
móti þeim. Aðra daga er hún að
sækja á æfingar seinnipartinn.
Að vinnu lokinni hjá Manga, um
fimm, þá taka við seinni gjafir og
vinnudagurinn er að klárast upp
úr sex.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegustu bústörf
in í huga bóndans eru leitir, réttir
og fjárrag að hausti. Leiðinlegustu
bústörfin eru tiltekt og hreingerning
eftir sauðburð.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir fimm ár?
Mjög líklegt er að búskapurinn verði
í sömu mynd eftir 5 ár en vonir standa
til að hagur sauðfjárbænda fari að
vænkast og hægt verði að byggja og
bæta aðstöðu samhliða því að fjölga í
stofninum. Draumurinn er að Mangi
geti haft sauðfjárrækt að fullu starfi.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í framleiðslu íslenskra búvara?
Helsta tækifærið er að fá neytendur
til að átta sig betur á því hversu mikla
gæðavöru íslenskir bændur eru að
framleiða. Einnig væri gott að sjá
innfluttar búvörur standast sömu
kröfur og vera í sama gæðaflokki
og framleiðslan hér innanlands. Þó
það sé dýrt að framleiða matvöru á
Íslandi þá myndi þetta skapa réttlátari
samkeppnisstöðu gagnvart innflutt
um matvælum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Smjör og sulta.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Heimatilbúið slátur með
íslenskum rófum og íslenskum kart
öflum slær alltaf í gegn.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það vekur alltaf gleði
að sjá kindurnar koma niður í rétt
á hverju hausti og þar standa upp úr
fyrstu réttirnar eftir að við fórum að
reka upp á Oddstaðaafrétt og áttum
fé að ráði í réttum.
Kryddjurtahjúpaður lambahryggvöðvi
– með grænkáli, brokkolí og ratatouille
Kryddjurtahjúpaður lamba-
hryggvöðvi
› 1-2 stk. lambafille
› Marinering:
› 1 stk. sítrónubörkur af einni sítrónu
› 2 stk. grein rósmarín
› nokkrar greinar timian
› 3 g geirar hvítlaukur
› 50 ml olía
› smá pipar
› hunang og sinnep eftir smekk
Aðferð
Vinnið saman kryddið í mat
vinnsluvél eða mortéli og krydd
leggið kjötið í allt að 24 klst.
Brúnað 70 prósent á fituhliðinni á
pönnu, kryddað með salti og pipar.
Penslið með hunangi og sinnepi.
Bakið í ofni í 90 gráður eða þar til
kjötið nær 55 í kjarna, svo skotið á
kjötið í þrjár mínútur á hærri hita
(130 gráður) – eða þar til kjötið
nær 60 gráðum í kjarna.
Setjið svo fullt af íslensku
grænmeti og notið tækifærið á
meðan það er enn til í verslunum.
Grænkál og brokkolí gefa
fallegan lit, eða notið grænmeti
úr gróðurhúsum sem hægt er að
fá íslenskt allt árið. Til dæmis er
ratatouille mjög gott sem meðlæti.
Ratatouille:
› ½ stk. grænn kúrbítur
› ½ stk. gulur kúrbítur
› ½ stk. eggaldin
› 3 stk. paprika blandaðir litir
› Tómatmauk eða niðursoðnir tómatar
› salt og pipar
› 1 búnt basil
Aðferð
Paprikan smurð með olíu og
ristuð í ofni á 230 gráðum í um 10
mínútur eða þangað til hún verður
vel gullbrúnuð að utan. Þá er hún
sett í dall og lokað með plastfilmu,
skræld og skorin í teninga – um tvo
sentímetra á kant.
Allt grænmetið er skorið í eins ten
inga og paprikan, svo er það létt
steikt, hver tegund sér til að halda
litnum, á pönnu í olíu þar til það
verður al dente, því haldið aðskildu
og snöggkælt á bakka og látið leka
allan umfram safa úr.
Rétt áður en leggja á upp þá er
grænmetinu blandað og kryddað
til með tómat purra, basil, salti og
pipar. Og setjið fallega á diska.
Superfood blá spirulina smoothie-
skál
Hlaðin ofurfæði og ávöxtum, skál
sem er ljúffeng og orkuhlaðin, hollur
morgunverður sem er mjög auðvelt að
búa til sjálfur. Hollir bláþörungar gefa
fallegan lit og fullt af næringarefnum,
fæst í heilsubúðum og á netinu.
› 1 bolli bananar, frosnir, skornir í bita
› 2 bollar mangó, frosið, skorið í bita
› 1/2 tsk. blátt spirulina duft
› 3/4 bolli möndlumjólk, ósykruð,
óbragðbætt (meira ef þörf krefur til að
fá þá þykkt sem þú vilt.)
› Möndlur, granóla, jarðarber, bláber,
hindber, kókos, hampfræ og ögn af
hunangi til að nota sem álegg ef vill.
Bætið öllu hráefninu í
matvinnsluvél eða öflugan
blandara. Púlsið þar til það er
blandað og slétt.
Hellið í skál og toppið ef vill með
áleggi að eigin vali. Til dæmis eru
möndlur, granóla, jarðarber, bláber,
hindber, kókos, hampfræ og ögn af
hunangi.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
bjarnigk@gmail.com
Arnþórsholt