Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 23
JÓLAGJÖF
HESTAMANNSINS
516-2600
vorukaup@vorukaup.is
• Loft í loft
• Loft í vatn
• Vatn í vatn
Verulegur áburðarskortur fyrirsjáanlegur í kjölfar hækkunar orkuverðs:
„Ég er hræddur um að við stefnum
inn í matvælakreppu“
– Spurning um líf eða dauða, segir forstjóri Yara í samtali við Fortune
Heimurinn stendur frammi fyrir
stórkostlegum skorti á matvæla
framleiðslu þar sem hækkandi
orkuverð hefur áhrif á alþjóð
legan landbúnað, sagði forstjóri
norska áburðarrisans Yara
International í samtali við fjár
málaritið Fortune þann 4. nóv
ember síðastliðinn.
„Ég vil segja þetta hátt og skýrt
núna, að við erum að hætta á að fá
mjög lélega uppskeru í næsta upp-
skerutímabili,“ sagði Svein Tore
Holsether, forstjóri fyrirtækisins í
Osló.
„Ég er hræddur um að við
munum lenda í matvælakreppu.“
Holsether ræddi við Fortune á
hliðarlínunni á COP26 loftslags-
ráðstefnunni í Glasgow og sagði að
mikil hækkun á orkuverði í sumar
og haust hefði þegar leitt til þess
að áburðarverð hefði um það bil
þrefaldast.
Í Evrópu náði jarðgasviðmiðið
sögulegu hámarki í september, þar
sem verðið meira en þrefaldaðist
frá júní til október eingöngu. Yara
er stór framleiðandi á ammoníaki,
sem er lykilefni í tilbúnum áburði
til að auka uppskeru. Ferlið við að
búa til ammoníak byggir nú á vatns-
afli eða jarðgasi.
„Að framleiða eitt tonn af
ammoníaki síðasta sumar kostaði
110 dollara,“ sagði Holsether.
„Núna kostar það 1.000 dollara.
Svo það er bara ótrúlegt.“
Matarverð hefur einnig hækkað,
sem þýðir að sumir bændur hafa efni
á dýrari áburði. En Holsether heldur
því fram að margir smábændur hafi
ekki efni á hærri kostnaði, sem
muni draga úr því sem þeir geta
framleitt og afraksturinn verður
minni. Það mun síðan skaða
fæðuöryggi á viðkvæmum svæðum
á tímum þegar aðgengi að mat er
ógnað af Covid-19 heimsfaraldri og
loftslagsbreytingum. Þar á meðal
víðtækum þurrkum.
Stærsti hluthafinn í Yara er norska
ríkið. Það hefur gefið bændum sem
átt hafa undir högg að sækja andvirði
25 milljóna dala af áburði, sagði
Holsether. Hann segir að Yara sé
samt ekki fært um að bera kostnaðinn
af svo stórkostlegum hækkunum
sem orðið hafa á orkuverði.
40% samdráttur í
ammoníakframleiðslu
Frá því í september hefur Yara verið
að draga úr ammoníakframleiðslu
sinni um allt að 40% vegna
orkukostnaðar. Aðrir stórir
framleiðendur hafa gert slíkt
hið sama. Með því að draga úr
framleiðslu á ammoníaki mun draga
úr framboði áburðar, auk þess sem
hann verður dýrari. Það grefur síðan
undan matvælaframleiðslu.
Matvælaskortur er ekki bara
pirrandi, heldur spurning
um líf og dauða
Seinkuð áhrif orkukreppunnar
á fæðuöryggi yrði ekki ósvipað
áhrifunum sem orðið hafa á
örflöguframleiðsluna, sagði Hol-
sether. Þar hafa einmitt orðið víðtæk
áhrif sem dregið hefur úr margháttaðri
iðnaðarvöruframleiðslu, eins og á
raftækjum og bílum.
„Þetta er allt tengt því að
verksmiðjum var lokað í mars, apríl
og maí á síðasta ári og við erum
að uppskera afleiðingarnar af því
núna,“ sagði hann.
„En ef við fáum jafngildi svona
ástands inn í matvælakeðjuna ... og
fáum ekki mat, þá er það ekki bara
pirrandi, heldur spurning um líf eða
dauða.“ /HKr.
UTAN ÚR HEIMI
Svein Tore Holsether, forstjóri Yara.
International.
Framleiðlsuverð á ammóníaki, sem er uppistaðan í áburðarframleiðslu,
hefur nær tífaldast vegna hækkunar á orkuverði. Það hefur leitt til um 40%
samdráttar í ammoníaksframleiðslu Yara í haust.
FJÓSAINNRÉTTINGAR
DSD fjósainnréttingar sem
framleiddar eru í Hollandi eru
sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi
sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar
og prófaðar eftir ströngustu
gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng
reynsla hefur leitt af sér
innréttingakerfi sem auðvelt er
að aðlaga nánast öllum þörfum
nútímafjósa.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
Til á lager
Þar sem allt
óvenjulegt er venjulegt
og leiðinlegt skemmtilegt