Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 20218 FRÉTTIR Pura Natura á Sauðárkróki: Framleiðslan á bætiefnum úr innmat sauðfjár mun tvöfaldast á milli ára – Fyrirtækið hefur reynt að kaupa ónýttar hliðarafurðir en fá ekki hljómgrunn meðal sláturleyfishafa Nýsköpunarfyrirtækið Pura Natura var stofnað í byrjun árs 2017. Það býr til verðmæti úr inn- mat sauðkindarinnar og fram- leiðir fæðubótarefni úr þessu vannýtta hráefni. Viðskiptalegar horfur fyrirtækisins hafa vænkast stig af stigi og stefnt er á tvö- földun í framleiðslu á næsta ári. Þá er fyrirtækið farið að skila hagnaði. Höfuðstöðvar framleiðslunnar eru á Íslandi á Sauðárkróki og þar fer fram grunnvinnsla á hráefninu sem síðan er flutt til Bretlands til fullvinnslu með frostþurrkun. Hluti framleiðslunnar er svo send­ ur heim á Íslandsmarkað, en hluti framleiðslunnar er seldur áfram frá Bretlandi. Stórir viðskiptavinir sækjast eftir ófáanlegum hliðarafurðum Hildur Þóra Magnúsdóttir er stofn­ andi og framkvæmdastjóri fyrir­ tækisins og segir hún að eftir mjög erfið fyrstu ár og talvert rekstrar­ legt basl í byrjun þá séu viðskipta­ horfurnar nokkuð góðar í dag. „Við erum reyndar í dálítið sérstakri stöðu um þessar mundir svo ekki sé meira sagt, því fyrirtækið er komið með gullið tækifæri í hendurnar til að auka umsvif sín allnokkuð með því að seilast enn lengra inn í hliðarafurðir sauðfjárslátrunar. Við erum komin með kauptilboð frá stórum viðskiptavinum okkar sem vilja fá nokkur tonn af tilteknum hliðarafurðum, sem eru fullunnar með okkar aðferðum. Ég fæ hins vegar lítil eða jafnvel engin við­ brögð frá sláturleyfishöfum við beiðni minni um þessar afurðir. Í dag fáum við hjá þeim hefðbundnar afurðir eins og lifur, hjörtu, nýru, eistu og milta. En kaupendur okkar hafa lýst yfir áhuga á fjölmörgu öðru hráefni, eins og t.d brisi, hóstakirtlum, mjólkurkirtlum, bein­ merg, barka, fylgju, skjaldkirtlum, legi, eggjastokkum og fleira. Ég fæ engin verðtilboð frá sláturhúsunum sem ég hef reynt að tala við þannig að maður verður að ætla að þeim finnist ekki taka því að selja okkur þetta og kjósi frekar að henda þessu því þetta er ekki nýtt í dag.“ Hún segir að það sem hún eigi erfið­ ast með að skilja í þessu sé að það geti verið vilji afurðastöðva, sem eru að stórum hluta í eigu bænda, að vilja frekar henda þessum afurðum en að reyna að selja þær þegar tækifæri gefst. „Maður skyldi ætla að bændur myndu vilja að afurðir þeirra væru nýttar eins og hægt er til verðmætasköpunar. Mér finnst lágmark að afurðastöðvarnar setji upp verð sem þeir þurfa til að dekka kostnað við þetta og bjóði okkur til kaups.“ Talsvert fjárhagslegt tjón „Svo höfum við verið að glíma við talsverð vandamál á þessu ári vegna útgöngu Breta úr Evrópu­ sambandinu,“ segir Hildur. „Þar með eru lagðar á okkur kröfur um heilbrigðisvottorð frá breskum dýralæknum þegar íslensku afurð­ irnar okkar eru sendar aftur heim frá Bretlandi.“ Hún segir að á þessu ári hafi fyrir­ tækið lent í talsverðu fjárhagslegu tjóni, í kjölfar þessara breytinga á reglum sem tóku gildi hér á landi um innflutning á dýraafurðum frá Bretlandi. „Við vorum ekki með þessar breytingar á hreinu og var fyrsta sendingin sem við fengum hingað til lands frá Bretlandi í ár endursend til Bretlands að ósk Matvælastofnunar. Breytingarnar tóku gildi um áramótin en enginn að­ lögunartími var á þessu ári, eftir að breytingarnar tóku gildi. Ákvörðun Matvælastofnunar um að láta senda um 800 kíló af fullunnum vörum okkar aftur til Bretlands til að láta breskan dýralækni heilbrigðisvotta vörurnar reyndist okkur þungt högg. Við vorum vörulaus hér á Íslandi í heilan mánuð þannig að þetta kostaði okkur einhverjar milljónir. Við reyndum að fá undanþágu og höfðuðum til þess að við ákvörðun yrði gætt meðalhófs, en allt kom fyrir ekki. Eins höfum við verið að berjast við það að fyrirtækið sem pakkar vör­ unum okkar í hylki virðist ekki mega hylkja hreinan innmat, þar sem þau hafa ekki kjötvinnsluleyfi, og því verður að blanda jurtum saman við innmatinn til að við fáum leyfi til að „hylkja þær hjá þeim“, en ein af okkar fimm vörutegundum er alveg hreinn innmatur,“ segir Hildur. „Það er súrrealísk staða að nú þurfi ég að blanda einhverju saman við þessa vörutegund sem ég hef framleitt í fjögur ár, til að fá leyfi til að setja hana í hylki til inntöku,“ bætir hún við. Horft til Danmerkur með fullvinnsluna Hildur segir að fyrirtækið hafi í nýliðinni sláturtíð keypt 26 tonn af innmatnum sem fyrirtækið hefur notað í framleiðslu sína á undanförnum árum – sem sé nærri tvöfalt það magn sem var keypt í fyrra. Því sé engan bilbug á þeim að finna varðandi framleiðsluna. Hins vegar þurfi fyrirtækið að taka inn í myndina að um mitt næsta ár mun þurfa heilbrigðisvottorð fyrir útflutninginn til Bretlands. Því beinast augu Pura Natura að Danmörku varðandi frostþurrk­ unina, til að gera flutningana á milli landa hagkvæmari – þangað til Íslendingar hafa fjárfest í full­ nægjandi tækjabúnaði. /smh Horfti inn í vinnslusalinn á Sauðárkróki. Hildur Þóra Magnúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Pura Natura, er hér við úrvinnslu á innmat. Myndir / Pura Natura Hildur pakkar hráefninu inn, áður en það er sent til Bretlands. Vörutegundirnar fimm sem Pura Natura framleiðir. Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga: Náðum ekki að manna allar stöður í sláturtíðinni Ágúst Andrésson, forstöðumað- ur kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, segir að ástæða þess að ekki hafi verið hægt að sinna beiðni Pura Natura um að fá að kaupa hliðarafurðirnar, sé fyrst og fremst mannekla í sláturhús- inu. „Ég held að það hafi verið sama sagan hjá öllum sláturleyfishöfum í haust að við náðum ekki að manna allar stöður, hvað þá einhver til­ raunaverkefni,“ segir Ágúst. „Við höfum boðið þessum aðila í gegnum tíðina að koma inn í afurða­ stöðina og hirða þessar afurðir. En vegna farsóttarinnar þá hefur það ekki verið hægt síðustu tvær slát­ urtíðar. KS hefur stutt vel við verkefnið Ágúst segir að Kaupfélag Skagfirðinga hafi stutt vel við þetta verkefni frá upphafi. „Ég minnist þess ekki að hafa fengið erindi frá Hildi á þessu ári, en það má vera að einhver annar hafi móttekið það. Það hefði hins vegar ekki breytt neinu um það í haust, að við réðum einfaldlega ekki við meira,“ segir Ágúst. /smhÁgúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS. Mynd / HKr. Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.