Bændablaðið - 18.11.2021, Qupperneq 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 20218
FRÉTTIR
Pura Natura á Sauðárkróki:
Framleiðslan á bætiefnum úr innmat
sauðfjár mun tvöfaldast á milli ára
– Fyrirtækið hefur reynt að kaupa ónýttar hliðarafurðir en fá ekki hljómgrunn meðal sláturleyfishafa
Nýsköpunarfyrirtækið Pura
Natura var stofnað í byrjun árs
2017. Það býr til verðmæti úr inn-
mat sauðkindarinnar og fram-
leiðir fæðubótarefni úr þessu
vannýtta hráefni. Viðskiptalegar
horfur fyrirtækisins hafa vænkast
stig af stigi og stefnt er á tvö-
földun í framleiðslu á næsta ári.
Þá er fyrirtækið farið að skila
hagnaði.
Höfuðstöðvar framleiðslunnar
eru á Íslandi á Sauðárkróki og þar
fer fram grunnvinnsla á hráefninu
sem síðan er flutt til Bretlands
til fullvinnslu með frostþurrkun.
Hluti framleiðslunnar er svo send
ur heim á Íslandsmarkað, en hluti
framleiðslunnar er seldur áfram frá
Bretlandi.
Stórir viðskiptavinir sækjast eftir
ófáanlegum hliðarafurðum
Hildur Þóra Magnúsdóttir er stofn
andi og framkvæmdastjóri fyrir
tækisins og segir hún að eftir mjög
erfið fyrstu ár og talvert rekstrar
legt basl í byrjun þá séu viðskipta
horfurnar nokkuð góðar í dag. „Við
erum reyndar í dálítið sérstakri
stöðu um þessar mundir svo ekki sé
meira sagt, því fyrirtækið er komið
með gullið tækifæri í hendurnar
til að auka umsvif sín allnokkuð
með því að seilast enn lengra inn í
hliðarafurðir sauðfjárslátrunar. Við
erum komin með kauptilboð frá
stórum viðskiptavinum okkar sem
vilja fá nokkur tonn af tilteknum
hliðarafurðum, sem eru fullunnar
með okkar aðferðum. Ég fæ hins
vegar lítil eða jafnvel engin við
brögð frá sláturleyfishöfum við
beiðni minni um þessar afurðir. Í
dag fáum við hjá þeim hefðbundnar
afurðir eins og lifur, hjörtu, nýru,
eistu og milta. En kaupendur okkar
hafa lýst yfir áhuga á fjölmörgu
öðru hráefni, eins og t.d brisi,
hóstakirtlum, mjólkurkirtlum, bein
merg, barka, fylgju, skjaldkirtlum,
legi, eggjastokkum og fleira. Ég fæ
engin verðtilboð frá sláturhúsunum
sem ég hef reynt að tala við þannig
að maður verður að ætla að þeim
finnist ekki taka því að selja okkur
þetta og kjósi frekar að henda þessu
því þetta er ekki nýtt í dag.“
Hún segir að það sem hún eigi erfið
ast með að skilja í þessu sé að það
geti verið vilji afurðastöðva, sem
eru að stórum hluta í eigu bænda, að
vilja frekar henda þessum afurðum
en að reyna að selja þær þegar
tækifæri gefst. „Maður skyldi ætla
að bændur myndu vilja að afurðir
þeirra væru nýttar eins og hægt er
til verðmætasköpunar. Mér finnst
lágmark að afurðastöðvarnar setji
upp verð sem þeir þurfa til að dekka
kostnað við þetta og bjóði okkur
til kaups.“
Talsvert fjárhagslegt tjón
„Svo höfum við verið að glíma
við talsverð vandamál á þessu ári
vegna útgöngu Breta úr Evrópu
sambandinu,“ segir Hildur. „Þar
með eru lagðar á okkur kröfur um
heilbrigðisvottorð frá breskum
dýralæknum þegar íslensku afurð
irnar okkar eru sendar aftur heim
frá Bretlandi.“
Hún segir að á þessu ári hafi fyrir
tækið lent í talsverðu fjárhagslegu
tjóni, í kjölfar þessara breytinga á
reglum sem tóku gildi hér á landi
um innflutning á dýraafurðum frá
Bretlandi. „Við vorum ekki með
þessar breytingar á hreinu og var
fyrsta sendingin sem við fengum
hingað til lands frá Bretlandi í ár
endursend til Bretlands að ósk
Matvælastofnunar. Breytingarnar
tóku gildi um áramótin en enginn að
lögunartími var á þessu ári, eftir að
breytingarnar tóku gildi. Ákvörðun
Matvælastofnunar um að láta senda
um 800 kíló af fullunnum vörum
okkar aftur til Bretlands til að láta
breskan dýralækni heilbrigðisvotta
vörurnar reyndist okkur þungt högg.
Við vorum vörulaus hér á Íslandi
í heilan mánuð þannig að þetta
kostaði okkur einhverjar milljónir.
Við reyndum að fá undanþágu og
höfðuðum til þess að við ákvörðun
yrði gætt meðalhófs, en allt kom
fyrir ekki.
Eins höfum við verið að berjast við
það að fyrirtækið sem pakkar vör
unum okkar í hylki virðist ekki mega
hylkja hreinan innmat, þar sem þau
hafa ekki kjötvinnsluleyfi, og því
verður að blanda jurtum saman við
innmatinn til að við fáum leyfi til
að „hylkja þær hjá þeim“, en ein af
okkar fimm vörutegundum er alveg
hreinn innmatur,“ segir Hildur. „Það
er súrrealísk staða að nú þurfi ég að
blanda einhverju saman við þessa
vörutegund sem ég hef framleitt í
fjögur ár, til að fá leyfi til að setja
hana í hylki til inntöku,“ bætir hún
við.
Horft til Danmerkur með
fullvinnsluna
Hildur segir að fyrirtækið hafi í
nýliðinni sláturtíð keypt 26 tonn
af innmatnum sem fyrirtækið
hefur notað í framleiðslu sína á
undanförnum árum – sem sé nærri
tvöfalt það magn sem var keypt í
fyrra. Því sé engan bilbug á þeim
að finna varðandi framleiðsluna.
Hins vegar þurfi fyrirtækið að taka
inn í myndina að um mitt næsta ár
mun þurfa heilbrigðisvottorð fyrir
útflutninginn til Bretlands.
Því beinast augu Pura Natura
að Danmörku varðandi frostþurrk
unina, til að gera flutningana á
milli landa hagkvæmari – þangað
til Íslendingar hafa fjárfest í full
nægjandi tækjabúnaði.
/smh
Horfti inn í vinnslusalinn á Sauðárkróki. Hildur Þóra Magnúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Pura Natura, er
hér við úrvinnslu á innmat. Myndir / Pura Natura
Hildur pakkar hráefninu inn, áður en
það er sent til Bretlands.
Vörutegundirnar fimm sem Pura Natura framleiðir.
Ágúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar Kaupfélags Skagfirðinga:
Náðum ekki að manna allar stöður í sláturtíðinni
Ágúst Andrésson, forstöðumað-
ur kjötafurðastöðvar Kaupfélags
Skagfirðinga, segir að ástæða þess
að ekki hafi verið hægt að sinna
beiðni Pura Natura um að fá að
kaupa hliðarafurðirnar, sé fyrst
og fremst mannekla í sláturhús-
inu.
„Ég held að það hafi verið sama
sagan hjá öllum sláturleyfishöfum í
haust að við náðum ekki að manna
allar stöður, hvað þá einhver til
raunaverkefni,“ segir Ágúst.
„Við höfum boðið þessum aðila í
gegnum tíðina að koma inn í afurða
stöðina og hirða þessar afurðir. En
vegna farsóttarinnar þá hefur það
ekki verið hægt síðustu tvær slát
urtíðar.
KS hefur stutt vel
við verkefnið
Ágúst segir að Kaupfélag
Skagfirðinga hafi stutt
vel við þetta verkefni frá
upphafi.
„Ég minnist þess ekki
að hafa fengið erindi frá
Hildi á þessu ári, en það
má vera að einhver annar
hafi móttekið það. Það
hefði hins vegar ekki
breytt neinu um það í haust, að við
réðum einfaldlega ekki við meira,“
segir Ágúst. /smhÁgúst Andrésson, forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS. Mynd / HKr.
Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki.