Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202132 HROSS&HESTAMENNSKA Einstakur hrossastofn í Skaftárhreppi: Einangruð í sjötíu ár – Botnahrossin eru menningarleg heimild og erfðafræðileg auðlind Botnahrossin voru afskaplega róleg og gæf, auk þess að vera litfögur, en flest eru jarpskjótt. Mynd/ghp Hópur bænda, áhuga- og vís- indamanna hélt að Botnum í Meðallandi í byrjun mánaðarins að sækja átta hross. Væri það varla í frásögur færandi nema fyrir þá staðreynd að um einstak- an hrossahóp er að ræða, stofn sem hefur verið einangraður frá öðrum hrossum í landinu í sjötíu ár. Botnahrossin svokölluðu eru bæði menningarleg heimild um íslenska hestinn og hrossarækt en einnig eru þau erfðafræðileg auð- lind að mati doktors í erfðafræði og einum af hinum nýju eigendum hrossanna. Hrossin átta eru, eftir því sem næst verður komist, út af tveim- ur hryssum sem komu folöld að Botnum í kringum 1950. Önnur þeirra var jarpskjótt frá Bakkakoti í Meðallandi og hin rauð frá Langholti í Meðallandi. Þær fyljuðust síðan við fola frá sömu slóðum og eignuðust folöld og lögðu þannig grundvöll að núverandi hópi, en samgangur við önnur hross hefur ekki átt sér stað, að því best er vitað. Hafa hrossin því fjölgað sér og gengið frjáls um í aflokuðu landi Botna, sem er vin í Skaftáreldahrauni. Því er um að ræða erfðafræði- lega einangraðan hóp, sem í dag eru sjö hryssur og einn stóðhestur. Hópurinn er einsleitur, stóðhestur- inn og sex hryssanna eru jarptopp- skjótt og ein hryssan rauð. „Ég hef vitað af þessum hross- um lengi, fór þangað fyrst fyrir um 12-14 árum síðan, en aldrei gert neitt í þessu. Páll og Freyja Imsland hafa einnig haft mikinn áhuga á þeim og skoðað þau öðru hvoru. En Kjartani Ólafssyni bónda fannst nú kominn tími á að losa sig við hrossin og var tilbúinn til að selja okkur þau,“ segir Kristinn Guðnason frá Skarði, bóndi í Árbæjarhjáleigu. Hrossin voru því sótt á dögun- um en með í för voru Halldór að Ytri Ásum, Vilhjálmur Svansson dýralæknir ásamt aðstoðarfólki, þeim Páli Imsland og Kristni og aðstoðarfólki hans, auk Ásmundar Friðrikssonar alþingismanns. Toppa frá Botnum. Mynd/Páll Imsland Guðrún Hulda Pálsdóttir gudrunhulda@bondi.is Rauða hryssan virðist vera aldursforseti hópsins, önnur hryssa, líklega 7-10 vetra, fær enn sopa frá henni. Mynd/ghp Nös frá Botnum. Mynd/Páll Imsland Toppur frá Botnum er stóðhesturinn í hópnum. Mynd/Ásmundur Friðriksson Hrossin hafa hafa gengið sjálfala í eingangruðu Botnalandi kynslóðum saman. Þrátt fyrir það tóku þau meðhöndlun og flutningum í Árbæjarhjáleigu með stökustu ró og una sér nú vel í beit- arhólfi við Rangá, þar sem Kristinn getur fylgst með þeim út um stofugluggann hjá sér. Mynd/ghp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.