Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 49 LCI Lely Center Ísland Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 // Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 – lci.is KEÐJUR OG KEÐJUEFNI GOTT ÚRVAL 30 % AFSLÁTTUR AF ÖLLUM HEILUM KEÐJUM Á LAGER ÚT OKTÓBER LESENDARÝNI Hin skítugu leyndarmál jarðefnaeldsneytis Í þessu blaði hafa komið innlegg í gegnum tíðina um einhver meint og skítug leyndarmál lausna í umhverfismálum. Þar hefur t.d. verið bent á ýmsa vankanta varðandi bæði rafbílarafhlöður og vindmyllur. Mikil þróun er reyndar í gangi í tengslum við bæði endurvinnslu rafhlaðna og vindmylluspaða, þannig að þetta horfir sem betur fer til betri vegar. Hafa ber þó í huga að enn er ekk­ ert að frétta varðandi endurvinnslu á jarðefnaeldsneyti og að því ég best veit, hefur ekki enn tekist að endur­ vinna brennt jarðefnaeldsneyti, þrátt fyrir rúmlega hundrað ára sögu. Það er mikilvægt að benda á ýmsa van­ kanta sem fylgja nýjum orkulausnum en það er líka gott að muna að notkun jarðefnaeldsneytis er alltaf mun verri. Það er því kannski við hæfi að rifja aðeins upp hin skítugu leyndarmál jarðefnaeldsneytis til að gæta sam­ ræmis í umræðunni. Jarðefnaeldsneyti er óendurnýjanlegt Kol og olía eru ekki endurnýjanleg auðlind og bruni þeirra því ósjálfbær í sinni tærustu mynd. Bruninn er ein­ skiptis aðgerð. Við erum sem sagt að tæma auðlind og þannig ræna henni frá næstu kynslóðum. Það má líkja jarðefnaeldsneytisauðlindinni við risastóran bankareikning sem hefur þann galla að hann er algerlega vaxta­ laus og það verður aldrei lagt inn á hann. Það þarf engan fjármálasnill­ ing til að átta sig á að gegndarlausar úttektir, úr jafn aumum bankareikn­ ingi, munu á endanum koma okkur í vandræði. Heilsuvandamál Bruni jarðefnaeldsneytis veldur mjög heilsuspillandi mengun. Þetta er alvöru mál sem allt of lítið er fjallað um. Í nýlegri rannsókn frá Harvard háskóla er áætlað að bruni jarðefna­ eldsneytis valdi ótímabærum dauða yfir 8 milljón jarðarbúa á ári hverju. Miklu fleiri verða svo fyrir óþarfa heilsubresti þó að bruninn komi þeim kannski ekki algerlega í gröfina. Hafa ber þetta í huga þegar talað er gegn innleiðingu á hreinni orku. Ójöfn skipting auðlinda Eitt af vandamálum jarðefnaeldsneytis er að auðlindin skiptist svo sannarlega ekki jafnt á milli jarðarbúa. Þessi staðreynd hefur valdið miklum óróa í gegnum tíðina og stundum hafa stríð, með tilheyrandi mannfalli, hreinlega snúist um olíuauðlindir. Raforka á rafbíla er að mestu framleidd í hverju landi fyrir sig og því mun minni hætta á alvarlegum átökum. Losun við framleiðslu og flutning Eitt af skítugu leyndarmálum olí­ unnar er sú staðreynd að olía verður ekki til á bensínstöðvum. Það þarf að bora eftir olíu erlendis, flytja hana í olíuhreinsistöðvar, dæla á skip, flytja til landsins, koma henni á flutninga­ bíla, keyra hana á stöðvarnar og dæla síðan í geymslutanka. Allt þetta bras kallar á orkunotkun og losun gróð­ urhúsalofttegunda. Bruni eldsneytis í bílnum þínum segir því ekki alla söguna þegar kemur að losun gróður­ húsalofttegunda og hluti losunar sem bíllinn þinn veldur verður til erlendis. Þó svo að sú losun lendi í loftslags­ bókhaldi annarra landa þá er hún á þinni ábyrgð og skilar sér í sameig­ inlegan lofthjúp okkar heimsborgar­ anna. Sama á við um rafbíla en öll framleiðsla raforkunnar á sér stað hér á landi og íslensk raforka losar þar að auki nánast ekkert. Mengun jarðvegs, sjávar og vatns Olía getur lekið og mengað vistkerfi. Einn lítri af olíu getur eyðilagt milljón lítra af drykkjarvatni. Ótal stór olíu­ slys hafa orðið í gegnum tíðina en minni lekar geta líka skemmt veru­ lega eins og nýlegt dæmi frá Hofsósi sýnir. Þar var íbúðarhús dæmt óí­ búðarhæft eftir leka frá nærliggjandi olíutanki. Eitthvað minna er t.d. um slíka leka frá hraðhleðslustöðvum. Olía er eldfim Það vita flestir að olía er eldfim en oft gleymist hversu alvarleg slys verða stundum við olíuflutninga, sérstaklega í þróunarlöndunum. Nú nýverið lést 131 í slíku slysi í Síerra Leóne en 85 létust í svipuðu slysi í Tansaníu árið 2019 og fimmtíu í Kongó árið 2018. Flutningur á raforku veldur sjaldnast slíkum slysum. Jarðefnaeldsneyti hefur lengi verið lykilþáttur í efnahags uppbyggingu þjóða síðustu hundrað ár enda lengi vel nánast eini orkukosturinn í boði. Nú eru hins vegar breyttir tímar með fjölbreyttum grænum orkulausnum. Margt þarf vissulega að bæta þegar kemur að grænum lausnum og sem betur fer er verið að vinna að því. Við hljótum þó að vera sammála um að þessar lausnir eru að lágmarki tals­ vert skárri kostur en ósjálfbær bruni jarðefnaeldsneytis. Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs Sigurður Ingi Friðleifsson. Frá Bændasamtökum Íslands: Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni. Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna í hrossarækt. Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans. Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar. Fagráð í hrossarækt Bændahöllinni v/Hagatorg 107 Reykjavík. Fagráð í hrossarækt. Fagráð tekur ákvörðun um styrkveitingar í desember 2020. Nánari upplýs- ingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins (elsa@rml.is). Frestur til að skila inn umsóknum er til 5. desember 2021 og skal umsóknum skilað til: Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta Bænda 2. desember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.