Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 63
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland Grammer sæti
Glerárgata 34b, 600 Akureyri • S4611092 • asco@asco.is
Alternatorar og startar í miklu úrvali
Hægt er að skrá eigin auglýsingar með auðveldum hætti á bbl.is
Farið inn á vefsíðuna bbl.is, smellið þar í efstu röðina á Smáauglýsingar, þá opnast
annar gluggi og þar er grænn reitur Setja inn auglýsingu. Þegar smellt er á hann opnast
nýr gluggi með reitum til að skrá inn auglýsinguna og um greiðslufyrirkomulag.
Auglýsendur athugið!
Skráning smáauglýsinga á vefinn
Varahlutir í lyftara
- Toyota
- Hyster
- Yale
- Jungheinrich
- OO.
Alþjóðlegt teymi sem keppti fyrir hönd Íslands
sigraði í Evrópukeppni Cassini-hakkaþonsins
– Tóku áskorun Landgræðslunnar um að finna og meta landsvæði í hnignun
LÍF&STARF
Sigurlið Cassini-hakkaþonsins 2021. F.v. Roman Spechenkin, Christina Guadalupe Rodrigue, Marco Pozzolato,
Cécile Chauvat og Filomena Cerniute. Á myndina vantar Söndru Rós Hrefnu Jónsdóttur.
Alþjóðlegt teymi sex keppenda
sem keppti fyrir hönd Íslands í
Cassini-hakkaþoninu, sem haldið
er á vegum Evrópusambandsins,
vann fyrstu verðlaun fyrir
hugmynd sína á því hvernig nota
mætti gervitunglamyndir til að
meta landrof og landhnignun.
Hakkaþon, sem einnig hafa
verið nefnd lausnakeppnir, eru
nýsköpunarkeppnir þar sem
þverfagleg lið vinna saman í
afmarkaðan tíma við að finna
lausnir á raunverulegum áskorunum
sem lagðar eru fram. Liðunum býðst
gjarnan ráðgjöf frá sérhæfðum
leiðbeinendum sem hjálpa þeim í
gegnum ferlið. Það var fyrirtækið
Startup Iceland sem sá um að
styðja við íslenska liðið og sá
einnig um framkvæmd keppninnar
á Íslandi, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Cassini-hakkaþonið er nefnt eftir
fransk-ítalska stjörnufræðingnum
Giovanni Cassini sem átti merkar
uppgötvanir á sviði stjörnufræði á
17. öld og uppgötvaði m.a. fjögur
fylgitungla Satúrnusar. Tilgangur
Cassini-hakkaþonsins er að nýta þá
möguleika sem evrópsk geimtækni
býður upp á til að takast á við
umhverfisáskoranir samtímans.
Þrjú meginviðfangsefni voru
upplegg keppninnar að þessu sinni;
Öryggi á sjó, Líf á landi og Verndun
náttúrulegs umhverfis. Áskorunin
sem Landgræðslan lagði fram féll
undir flokkinn Líf á landi og var
skrifuð af þeim Jóhanni Þórssyni,
Kristínu Svavarsdóttur og Bryndísi
Marteinsdóttur.
Vöktu í 40 tíma
Hakkaþonið var annað í röðinni
af sex sem eru haldin á vegum
framkvæmdastjórnar ESB.
Að lokinni undankeppni áttu
vinningslið þeirra tíu landa sem
kepptu í lokakeppninni að skila
sínum hugmyndum og útfærslum
þann 7. nóvember sl. Alls kepptu 70
sprotafyrirtæki og 300 einstaklingar
í 10 löndum á meðan keppninni
stóð. Lokaspretturinn tók á, sumir
keppenda sigurteymisins þurftu að
leggja á sig 40 tíma samfellda vöku
til að ná settum skilafresti.
Verðlaunin eru um 5.000 evrur
auk 100 klukkustunda ráðgjöf
til þróunar verkefnisins frá
umhverfis- og tæknisérfræðingum
framkvæmdastjórnarinnar.
Íslenska liðið samanstendur
af líffræðingi, sérfræðingi í
landfræðilegum upplýsingakerfum,
frumkvöðli og þremur forriturum.
Auk Íslands koma meðlimir frá
Bandaríkjunum, Frakklandi, Sviss,
Svíþjóð og Rússlandi.
Framför í rannsóknum
og mælingum
Úrlausn liðsins snýst um að nýta
landfræðileg gögn og myndir sem
koma frá gervitunglum Evrópsku
geimvísindastofnunarinnar til að
greina frumstig landeyðingar og
hnignunar á heimskautaslóðum.
Einnig að geta metið breytingar
á ástandi lands. Sú nálgun
gefur möguleika á að nálgast
upplýsingar um landeyðingu og
uppblástur sem hingað til hafa
að mestu verið aðgengilegar í
gegnum hefðbundnar rannsóknir og
mælingar á jörðu niðri. Með því að
nýta gervitunglamyndir og gögn á
þennan hátt getur sparast mikill tími
og kostnaður og matsferlið orðið
skilvirkara.
Cassini-hakkaþonið var haldið samtímis í 10 löndum í nóvember.