Bændablaðið - 18.11.2021, Side 63

Bændablaðið - 18.11.2021, Side 63
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 63 Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 Lely Center Ísland Grammer sæti Glerárgata 34b, 600 Akureyri • S4611092 • asco@asco.is Alternatorar og startar í miklu úrvali Hægt er að skrá eigin auglýsingar með auðveldum hætti á bbl.is Farið inn á vefsíðuna bbl.is, smellið þar í efstu röðina á Smáauglýsingar, þá opnast annar gluggi og þar er grænn reitur Setja inn auglýsingu. Þegar smellt er á hann opnast nýr gluggi með reitum til að skrá inn auglýsinguna og um greiðslufyrirkomulag. Auglýsendur athugið! Skráning smáauglýsinga á vefinn Varahlutir í lyftara - Toyota - Hyster - Yale - Jungheinrich - OO. Alþjóðlegt teymi sem keppti fyrir hönd Íslands sigraði í Evrópukeppni Cassini-hakkaþonsins – Tóku áskorun Landgræðslunnar um að finna og meta landsvæði í hnignun LÍF&STARF Sigurlið Cassini-hakkaþonsins 2021. F.v. Roman Spechenkin, Christina Guadalupe Rodrigue, Marco Pozzolato, Cécile Chauvat og Filomena Cerniute. Á myndina vantar Söndru Rós Hrefnu Jónsdóttur. Alþjóðlegt teymi sex keppenda sem keppti fyrir hönd Íslands í Cassini-hakkaþoninu, sem haldið er á vegum Evrópusambandsins, vann fyrstu verðlaun fyrir hugmynd sína á því hvernig nota mætti gervitunglamyndir til að meta landrof og landhnignun. Hakkaþon, sem einnig hafa verið nefnd lausnakeppnir, eru nýsköpunarkeppnir þar sem þverfagleg lið vinna saman í afmarkaðan tíma við að finna lausnir á raunverulegum áskorunum sem lagðar eru fram. Liðunum býðst gjarnan ráðgjöf frá sérhæfðum leiðbeinendum sem hjálpa þeim í gegnum ferlið. Það var fyrirtækið Startup Iceland sem sá um að styðja við íslenska liðið og sá einnig um framkvæmd keppninnar á Íslandi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Cassini-hakkaþonið er nefnt eftir fransk-ítalska stjörnufræðingnum Giovanni Cassini sem átti merkar uppgötvanir á sviði stjörnufræði á 17. öld og uppgötvaði m.a. fjögur fylgitungla Satúrnusar. Tilgangur Cassini-hakkaþonsins er að nýta þá möguleika sem evrópsk geimtækni býður upp á til að takast á við umhverfisáskoranir samtímans. Þrjú meginviðfangsefni voru upplegg keppninnar að þessu sinni; Öryggi á sjó, Líf á landi og Verndun náttúrulegs umhverfis. Áskorunin sem Landgræðslan lagði fram féll undir flokkinn Líf á landi og var skrifuð af þeim Jóhanni Þórssyni, Kristínu Svavarsdóttur og Bryndísi Marteinsdóttur. Vöktu í 40 tíma Hakkaþonið var annað í röðinni af sex sem eru haldin á vegum framkvæmdastjórnar ESB. Að lokinni undankeppni áttu vinningslið þeirra tíu landa sem kepptu í lokakeppninni að skila sínum hugmyndum og útfærslum þann 7. nóvember sl. Alls kepptu 70 sprotafyrirtæki og 300 einstaklingar í 10 löndum á meðan keppninni stóð. Lokaspretturinn tók á, sumir keppenda sigurteymisins þurftu að leggja á sig 40 tíma samfellda vöku til að ná settum skilafresti. Verðlaunin eru um 5.000 evrur auk 100 klukkustunda ráðgjöf til þróunar verkefnisins frá umhverfis- og tæknisérfræðingum framkvæmdastjórnarinnar. Íslenska liðið samanstendur af líffræðingi, sérfræðingi í landfræðilegum upplýsingakerfum, frumkvöðli og þremur forriturum. Auk Íslands koma meðlimir frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Sviss, Svíþjóð og Rússlandi. Framför í rannsóknum og mælingum Úrlausn liðsins snýst um að nýta landfræðileg gögn og myndir sem koma frá gervitunglum Evrópsku geimvísindastofnunarinnar til að greina frumstig landeyðingar og hnignunar á heimskautaslóðum. Einnig að geta metið breytingar á ástandi lands. Sú nálgun gefur möguleika á að nálgast upplýsingar um landeyðingu og uppblástur sem hingað til hafa að mestu verið aðgengilegar í gegnum hefðbundnar rannsóknir og mælingar á jörðu niðri. Með því að nýta gervitunglamyndir og gögn á þennan hátt getur sparast mikill tími og kostnaður og matsferlið orðið skilvirkara. Cassini-hakkaþonið var haldið samtímis í 10 löndum í nóvember.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.