Bændablaðið - 18.11.2021, Side 34

Bændablaðið - 18.11.2021, Side 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 202134 LÍF&STARF Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ZETOR VARAHLUTIR Það var hátíðarstund á Land­ búnaðar safni Íslands á Hvanneyri laugardaginn 6. nóvember þegar Kristján Helgi Bjartmarsson þúsund þjalasmiður kom með Centaur­dráttarvél á kerru á Hvann eyri og færði safninu vélina til varðveislu. Kristján Helgi hefur notað síðustu sjö ár við að gera vélina upp en hún var í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Dráttarvélin, sem hafði það hlutverk að leysa íslenska hestinn af hólmi í störfum sínum, kom fyrst að bænum Jódísarstöðum í Eyjafirði 1934 en fór síðan á Mælifell í Skagafirði þar sem Kristján Helgi ólst upp. „Það er ómetanlegt fyrir söfn- in að eiga slíka hagleiksmenn að eins og Kristján Helga, sem vinna óeigingjarnt starf til varð- veislu tækniminja landsins,“ segir RagnhildurHelga Jónsdóttir, for- stöðumaður safnsins. Áður en vélin var sett inn á sinn stað í Halldórsfjósi fengu nokkrir að aka henni á hlaðinu á Hvanneyri, þeirra á meðal var Ragnhildur Helga. Þess má geta að Kristján Helgi hélt skrá yfir vinnu við Centaurinn og skilaði Þjóðminjasafninu skýrslu um framvindu og lok uppgerðarinnar. Ótal myndir, bæði fyrir og eftir við- gerð fylgdu skýrslunni. /MHH Megn óánægja er meðal bæjar­ búa, verktaka og samfélagsins í Þingeyjarsýslum með þá ákvörðun Húsasmiðjunnar að loka verslun sinni á Húsavík um áramót, en einnig lokar fyrirtækið verslun sinni á Dalvík á sama tíma. Verið er að reisa nýja verslun á Akureyri sem verður opnuð eftir áramót. Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar stéttarfélags hefur sent frá sér álykt- un þar sem þessi ákvörðun er hörm- uð. Þar kemur fram að forsvars- menn Framsýnar hafi í samtölum við stjórnendur Húsasmiðjunnar ítrekað mikilvægi þess að fyrirtækið haldi starfseminni áfram á Húsavík, ekki síst þar sem mikil uppbygging hefur átt sér stað á svæðinu og fyr- irsjáanlegt er að svo verði áfram á komandi árum. „Lokunin hefur áhrif á aðra versl- un og þjónustu á svæðinu þar sem Húsasmiðjan hefur dregið að sér viðskiptavini úr nágrenninu sem um leið hafa nýtt sér aðra þjónustu á Húsavík,“ segir Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar. Reiðarslag að loka versluninni Kveðst hann ekki vita annað en rekstur Húsasmiðjunnar á Húsavík hafi gengið vel enda hafi um- fangsmiklar framkvæmdir verið á stór-Húsavíkursvæðinu undan- farin ár og fram undan frekari framkvæmdir á næstu árum sem kalli á öfluga byggingavöruverslun á svæðinu. Í því ljósi komi ákvörðun um lokun verslunarinnar verulega á óvart. „Það er eðlilegt að endurskoða rekstrarforsendur og bregðast við með t.d. breyttu fyrirkomulagi í verslun og þjónustu. En að loka versluninni er reiðarslag þar sem vitað er að góður rekstrargrundvöllur er fyrir því að reka byggingavöru- verslun á stað eins og Húsavík sem þjóni verktökum og öðrum við- skiptavinum í Þingeyjarsýslum. Verslun í dreifbýli flyst í stærri þéttbýliskjarna Bendir Aðalsteinn á að Húsasmiðjan hafi lagt í kostnaðarsamar fram- kvæmdir á Akureyri við byggingu á nýju verslunarhúsnæði. „Með lokun minni verslananna hyggst fyrirtækið ná fram hagræðingu á móti auknum útgjöldum við byggingu hins nýja verslunarhúsnæðisins.“ Hann segir á að fundi hjá Framsýn í liðinni viku hafi skýrt komið fram að starfsmenn Húsasmiðjunnar á Húsavík stæðu nú frammi fyrir hugsanlegu atvinnuleysi um áramót sem væri miður. Félagið hefur átt fundi með stjórnendum Húsasmiðjunnar og komið óánægju sinni á framfæri og hvatt fyrirtækið til að endurskoða ákvörðun sína, en félagið ekki orðið við þeirri ósk. „Full ástæða er til að hafa áhyggj- ur af neikvæðri þróun verslunar í dreifbýlinu sem í auknum mæli hefur verið að flytjast til stærri þétt- býliskjarna með tilheyrandi viðbót- arkostnaði fyrir íbúa á viðkomandi svæðum. Við þessari þróun þarf að bregðast þegar í stað enda brýnt byggðamál.“ /MÞÞ Landbúnaðarsafn Íslands: Centaur-dráttarvél, árgerð 1934 er komin til Hvanneyrar Megn óánægja með lokun verslunar Húsasmiðjunnar á Húsavík: Neikvæð þróun í verslun í dreifbýli sem flyst í stærri þéttbýliskjarna – Brýnt byggðamál sem bregðast þarf við, segir formaður Framsýnar Kristján Helgi og Ragnhildur tókust formlega í hendur eftir að vélin hafði verið afhent Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Kristján Helgi við Centaurinn, merkilegu dráttarvélina sem hann gerði upp af sinni alkunnu snilld. Eitt af því sem er sérstætt við þessa „liðstýrðu vél“ er að bremsur fyrirfinnast ekki á henni og það þarf að snúa henni í gang. Húsasmiðjan lokar tveimur verslunum: Sameinast nýrri verslun á Akureyri Tveimur verslunum Húsasmiðj­ unnar á Norðurlandi verður lokað um næstu áramót, á Dalvík og Húsavík. Rekstur þeirra verður sameinaður nýrri verslun sem er í byggingu á Akureyri. Framkvæmdir við byggingu nýrr- ar verslunar á Akureyri standa yfir og í tilkynningu frá Húsasmiðjunni segir að þar verði ein af glæsilegustu byggingavöruverslunum landsins opnuð, en hún verður einnig þjón- ustumiðstöð fyrir Norðurland. Verslunin er við Freyjunes á Akureyri og verður opnuð fyrri hluta næsta árs. Húsasmiðjan rekur nú verslun sína og timbursölu á Lónsbakka í Hörgárbyggð. Öllum fastráðnum starfsmönnum sagt upp Fram kemur í frétt frá Húsasmiðjunni að öllum fastráðnum starfsmönnum á Dalvík og Húsavík hafi verið boðið starf í versluninni á Akureyri. Rekstrargrundvöllur verslana bæði á Dalvík og Húsavík hefur verið þungur undanfarin ár þrátt fyrir vilja bæði heimamanna og fyr- irtækisins að halda þeim opnum. Hörð samkeppni, aukin vefverslun og fleiri breytingar á markaði hafa gert það að verkum að rekstur byggingarvöruverslana og timbur- sölu á sér ekki grundvöll á þessum stöðum, segir í tilkynningu. Þungbær ákvörðun „Við hjá Húsasmiðjunni höfum átt mjög gott samband við viðskiptavini okkar á Húsavík og Dalvík um árabil og er þessi ákvörðun okkur þung- bær,“ er haft eftir Árna Stefánssyni, forstjóra Húsasmiðjunnar. Þrátt fyrir breytinguna kveðst Húsasmiðjan áfram munu þjón- usta viðskiptavini á Norðurlandi vel. Söluskrifstofa verður opnuð á Húsavík í upphafi næsta árs þar sem boðið verður upp á ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki. /MÞÞ Teikning af áætlaðri verslun Húsasmiðjunnar við Freyjunes á Akureyri. Árið 2021 verður metár í útflutningi hrossa, en fjöldi útfluttra hrossa er nú þegar orðinn meiri en allt árið í fyrra þegar met var slegið með 2.320 útfluttum hrossum. Samkvæmt WorldFeng - Upprunaættbók íslenska hestsins hafa 2.974 hross verið flutt af landi brott á þessu ári, 1.366 hryssur, 311 stóðhestar og 1.297 geldingar. Flest hafa hrossin farið til Þýskalands, 1.280 talsins, 451 til Danmerkur, 436 til Svíþjóðar, 148 til Sviss, 146 til Austurríkis, 119 til Finnlands og 107 til Bandaríkjanna. Hrossin fóru til 19 landa en auk fyrrnefndra eru ný heimili hrossanna í Belgíu, Kanada, Færeyjum, Frakklandi, Bretlandi, Ungverjalandi, Írlandi, Ítalíu, Lúxemborg, Hollandi, Noregi og Rúmeníu. Stóðhesturinn Draupnir frá Stuðlum er hæst dæmda útflutta hrossið það sem af er ári, en hann hefur hæst hlotið 8,8 í aðaleinkunn kynbótadóms. Meðal annarra hátt dæmdra útfluttra gæðinga eru Ölnir frá Akranesi, Vegur frá Kagaðarhóli, Eldjárn frá Skipaskaga, Nátthrafn frá Varmalæk, Arthúr frá Baldurshaga, Ómur frá Kvistum, Dropi frá Kirkjubæ, Fróði frá Staðartungu og Fenrir frá Feti. Hæst dæmda útflutta hryssan er Bylgja frá Seljatungu. /ghp Tæp 3.000 hross hafa fengið ný heimili í 19 löndum víðs vegar um heim í ár. Mynd/Íslandsstofa Hrossasala í blóma: Metár í útflutningi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.