Bændablaðið - 18.11.2021, Side 37

Bændablaðið - 18.11.2021, Side 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 37 Kylja frá Eystri-Torfastöðum II, morarnhosótt veturgömul brúskær með mikinn brúsk, sem að miklu leyti hefur þvælst í hroðalokka. Þeir eru orðnir þungir, þæfðir og flóknir drellar. Myndin tekin að hausti. Ekki er gott að skyldleikarækta þetta mikið, þó það verði kannski að gera í upphafi, á meðan maður er að koma sér upp stofni. Við slíka innræktun geta farið að koma fram gallar, eins og t.d. vik í augnlok eða jafnvel allt of vanþroskuð augnlok. Stundum koma líka stakir langir lokkar á augnlokin og setja sterkan svip á andlitið og virðist þetta vera bundið við ferhyrnt og ferukollótt fé. Að þessum lokkum er ekki óhagræði fyrir skepnuna svo þetta þarf í raun ekki að forðast. Þó menn verði að byrja þessa brúskfjárræktun með nokkuð stífri skyldleikaræktun, þarf sem sagt í framhaldinu að hafa náið auga með því að skyldleikinn verði ekki of mikill til lengdar. Þegar notadrjúg- ur stofn er kominn á fót er best að blanda brúskfé jafnan með tvíhyrndu og kollóttu af og til. Gangi ykkur vel. Páll Imsland Langbrók frá Eystri-Torfastöðum II, morarnhosótt haustgimbur með vel þroskaðan brúsk. Lokkur frá Ósabakka, hvítur kollóttur fáeinna daga gamall brúskhrútur með mikinn lokk á vinstra augnaloki en minni á því hægra. Hann var settur á og er nú veturgamall og lokkurinn er enn til staðar. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar eftir að leigja vönduð sumarhús eða orlofsíbúðir fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði víðs vegar um landið. Eignirnar þurfa að vera snyrtilegar, fullbúnar húsgögnum og öðrum viðeigandi búnaði. Áhugasamir sendi upplýsingar á hjukrun@hjukrun.is eða hafi samband við skrifstofu í síma 540 6400. Átt þú orlofseign sem þú vilt leigja?

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.