Bændablaðið - 18.11.2021, Side 41
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 41
LÍF&STARF
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
RANDEX - VAGNAR
AF VÖNDUÐUSTU GERÐ
Gerðu kröfur - hafðu samband við Snorra Árnason
í síma 590 5130 og kynntu þér þína möguleika
• Við bjóðum margar stærðir og útfærslur af RANDEX vögnum
• Hardox 450 stál með allt að 80% meiri endingu
• Hagstætt verð
Venju samkvæmt er von á nýju
dagatali frá Karólínu Elísabetar
dóttur í Hvammshlíð í Skagabyggð
þegar gormánuður er hafinn.
Þetta er fjórða dagatalaútgáfa
Karólínu og segir hún að í þetta
skiptið sé lögð sérstök áhersla á
gamlar myndir, aðallega af kind-
um og hrossum. Hún vakti athygli
árið 2018 þegar hún hóf sölu á
Hvammshlíðardagatölunum til að
safna fyrir kaupum á dráttarvél fyrir
bæinn.
Annars snúast dagatölin gjarnan
um skrásetningu á sveitalífinu í máli
og myndum í bland við þjóðlegan
fróðleik, en Karólína býr með kind-
ur, hesta og hunda.
Myndir hafa borist víða að
„Margt fólk úti um allt land hefur
lagt sitt af mörkum og sent mér
myndir. Eins og alltaf snýst alm-
anakið um búskapinn, um kindur,
hross, hunda, kýr og mannfólk.
Athygli vekja líka tvær skemmti-
legar teikningar eftir bandarískan
ferðamann frá 1874 – en þær gefa
líflega innsýn í hversdagslífið fyrir
150 árum. En nútímakindur, hross
og hundar í Hvammshlíð og fal-
lega náttúran hérna í kring koma
umfangsmikið fram líka,“ segir
Karólína.
„Auk þess er boðið upp á fróð-
leik um sauðfjárliti, um ull og um
ýmislegt annað í kringum daglega
lífið í sveitinni. Ekki síst fylgir aftur
viðauki með upplýsingar um gamla
norræna tímatalið, merkisdaga og
gamlar íslenskar mælieiningar.“
Fáanlegt um land allt
Dagatalið er í stóru broti á 28 blað-
síðum og er fáanlegt á nokkrum
stöðum á Suðurlandi, á höfuð-
borgarsvæðinu, á Vesturlandi og á
Norðurlandi. Karólína sendir einnig
út um allt land og jafnvel til útlanda.
Hún bendir fólki á að hægt sé að
hafa beint samband varðandi kaup
á dagatalinu, til að mynda er hægt
að senda henni Facebook-skilaboð.
Karólína hefur á undanförnum
vikum verið atkvæðamikil í umræðu
um rannsóknir á riðu í sauðfé Íslandi
og möguleikana á því að finna til-
teknar verndandi arfgerðir svo
hægt verði að rækta upp hjarðir á
Íslandi með þol fyrir hinum skæða
sjúkdómi. Þá hefur hún staðið að
ýmsum útgáfuverkefnum hin síð-
ustu ár; til að mynda fræðslurit um
íslensku búfjárkynin fyrir ensku-
og þýskumælandi ferðamenn,
auk leiðbeiningarmyndbanda um
burðarhjálp á íslensku, þýsku og
ensku. /smh
Hvammshlíðardagatalið
gefið út í fjórða sinn
– Áhersla á gamlar myndir, sauðfjárliti og ull
Næsta blað kemur út 2. desember
Ný hitaveita Hornafjarðar
formlega tekin í notkun
Hitaveita Hornafjarðar var tekin
formlega í notkun fimmtudaginn
21. október en lagningu nýrrar
hitaveitu fyrir Höfn og hluta Nesja
er nú að ljúka.
Heitu vatni frá jarðhitasvæðinu í
Hoffelli var hleypt á stærstan hluta
Hafnar síðastliðinn vetur en nú hefur
dreifikerfi verið lagt í þann hluta
sem áður var með beina rafhitun
þannig að allir íbúar Hafnar hafa nú
möguleika á að tengjast hitaveitunni.
Hitaveita Hornafjarðar er í eigu
RARIK sem hefur sett mikla vinnu
og fjármuni í leit að heitu vatni á
undanförnum árum. Tryggvi Þór
Haraldsson, forstjóri RARIK, fagn-
aði verklokum í ávarpi sem hann
flutti við formlega opnun nýju hita-
veitunnar á Höfn. Hann sagði þetta
hafa verið stórt og farsælt verkefni
sem að mati RARIK hefði alla burði
til að verða stórt framfaraskref fyrir
byggðina í Hornafirði. Í máli hans
kom einnig fram að árangur af borun
vinnsluhola við Hoffell hafi verið
betri en búist var við en nú eru fjór-
ar vinnsluholur tiltækar fyrir hita-
veituna. Þrjár þeirra hafa þegar verið
virkjaðar og eina er hægt að virkja
síðar. Áætluð afkastageta svæðisins
í heild er 95 lítrar/sek við toppálag
í stuttan tíma en um 30-40 lítrar/
sek til lengri tíma. Að jafnaði dugar
ein hola fyrir hitaveituna en tvær
við mesta álag og þá er ein til vara,
auk þess sem ein hola er óvirkjuð.
Hiti vatnsins þegar það kemur inn á
dreifikerfið við Höfn er 70 gráður
við minnsta álag en 78 gráður við
mesta álag. Auk starfsmanna RARIK
komu alls um 40 verktakar og birgjar
að verkefni nýju hitaveitunnar.
/MHH
Starfsmenn RARIK, stjórn þess, fulltrúar Sveitarfélagsins Hornafjarðar og
Samorku ásamt fulltrúum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis fóru í
skoðunarferð um hitaveitusvæði RARIK í Hoffelli daginn sem nýja hitaveitan
var formlega tekin í noktun. Mynd / RARIK.