Bændablaðið - 18.11.2021, Side 51

Bændablaðið - 18.11.2021, Side 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 51 ast við skráðar skýrsluhaldsafurðir, þ.e. uppgefnar afurðir búa sem taka þátt í skýrsluhaldi. Þá er ekki tekið tillit til heimanota á mjólk eða mögulegra áfalla vegna sjúkdóma­ meðhöndlunar svo dæmi sé tekið. Í samanburði tæknihóps NMSM er hins vegar notast við upplýs­ ingar um alla innvegna mjólk til afurðastöðvanna í löndunum og svo heildarfjölda skráðra mjólk­ urkúa í löndunum. Þegar þetta er reiknað þannig út kemur í ljós að sem fyrr eru mestar afurðir að finna í Danmörku, þar sem hver kýr er að skila að jafnaði 9.970 kg mjólkur í afurðastöð og þar á eftir koma finnsku kýrnar með 9.241 kg og þá þær sænsku 9.139 kíló. Norsku kýrnar eru þær fjórðu afurðamestu með 6.727 kíló og lækkar þar inn­ vegið mjólkurmagn á hverja kú annað árið í röð. Líkt og áður reka íslensku kýrnar lestina og eiga enn nokkuð í land með að ná hinum með 5.779 kíló innlagða mjólk að jafnaði á hverja kú. Mjaltaþjónabúum fjölgaði um 4,2% Það virðist vera lítið lát á fjölgun mjaltaþjónabúa á Norður lönd­ unum og var fjöldi þeirra kom­ inn í 5.797 í lok síðasta árs og hafði þeim fjölgað um 232 bú, eða um 4,2% á milli ára. Þróunin hefur þó verið ólík á milli land­ anna (sjá bæði mynd og töflu) og sýna gögnin sem fyrr að þar sem meðalbúastærðin er að jafnaði minni hefur mjaltaþjónabúum fjölgað nokkuð ört, en þessi þróun er mun hægari í Svíþjóð og í Danmörku fækkar þessari tegund búa, að líkindum vegna allt annarrar bústærðar þar en á hinum Norðurlöndunum (sjá síðar). Í árslok síðasta árs voru mjaltaþjónar á nærri þriðja hverju kúabúi Norðurlandanna (30,8%) en hæsta hlutfallið var hér á landi en um síðustu áramót var þessi mjaltatækni á 42,2% af kúabúum landsins. 9.260 mjaltaþjónar Fjöldi mjaltaþjóna á Norðurlönd­ unum stefnir hraðbyri í 10.000 en undanfarin ár hefur orðið mest fjölgun á þeim annars vegar í Noregi og hins vegar í Finnlandi. Í gögnum ársins 2019 reyndist talning á mjaltaþjónum í Noregi byggja á heildarfjölda mjaltaþjóna í landinu við áramót en ekki á fjölda mjaltaþjóna í notkun eins og venjan er að gera. Þessi mistök voru svo leiðrétt í tölunum fyrir árið 2020 en gefur því ekki rétta mynd af hlutfallslegri aukningu á mjaltaþjónum enda sýna tölurnar að mjaltaþjónabúum hafi fjölgað um 232 en mjaltaþjónum ekki um nema 214 og þar af um einungis 13 í Noregi árið 2020. Þetta á sér sem sagt skýringar í villu í gögnum ársins 2019. 35% kúanna mjólkaðar með mjaltaþjónum Líkt og hér að framan greinir voru 9.260 mjaltaþjónar á 5.797 búum sem gerir að jafnaði 1,6 mjaltaþjóna á hverju búi. Þessi bú eru stærri að jafnaði en önnur bú og hefur tæknihópur NMSM metið það svo að af um 1,4 milljónum kúa á Norðurlöndunum séu 35% þeirra mjólkaðar með mjaltaþjónum. Sem fyrr eru það dönsku kúabúin sem eru að meðaltali stærst en þar voru að jafnaði 3,3 mjaltaþjónar á hverju búi í lok síðasta árs. Sænsku búin voru svo næststærst með 1,9 mjalta­ þjóna en norsku búin minnst, með 1 mjaltaþjón að jafnaði hvert. Ísland og Noregur í sérflokki Undanfarin ár hefur reiknað hlutfall mjólkur frá mjaltaþjónabúum auk­ ist jafnt og þétt á milli ára og er nú svo komið að bæði á Íslandi og í Noregi er þetta hlutfall komið yfir 60%, 60,3% á Íslandi og 60,6% í Noregi. Þar á eftir koma finnsk bú með 46,4%, þá sænsk með 43,7% en reiknað hlutfall mjaltaþjóna­ mjólkur er lægst í Danmörku þar sem ætlað er að 24,9% mjólkur­ innar komi frá mjaltaþjónabúum. Vegna mikillar mjólkurframleiðslu danskra kúabúa er reiknað heildar­ meðaltal mjaltaþjónamjólkur Norðurlandanna 37,7%. Byggt á fréttatilkynningu frá tæknihópi NMSM. VINNUFATNAÐUR Úrval af vinnu- og regnfatnaði, stígvélum og öryggisskóm. Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna! isfell.is • sími 5200 500 • Óseyrarbraut 28, Hafnarfirði Vatnsheldur Skjold kuldagalli úr öndunarefni með hnépúðavasa Fóðruð stígvél með fibertá Sterkir og endingagóðir öryggisskór NÝTT Varahlu�r i VOLVO Vinnutæki Kúabú og fjöldi mjaltaþjóna á Norðurlöndum 2019 2020 2019 2020 2019 2020 2019 2020 2019 2020 2019 2020 Breyting milli ára, % Fjöldi kúabúa alls 2.810 2.675 5.783 5.374 542 531 7.249 7.228 3.253 3.025 19.637 18.833 -4,1% Fjöldi kúabúa með mjaltaþjóna 691 654 1.201 1.277 216 224 2.301 2.453 1.156 1.189 5.565 5.797 4,2% Fjöldi mjaltaþjóna 2.170 2.135 1.863 1.996 271 280 2.558 2.571 2.184 2.278 9.046 9.260 2,4% Fjöldi mjólkurkúa, þúsundir 566 569 258 256 26 26 204 208 306 303 1.361 1.362 0,1% Meðalbústærð 201,6 212,7 44,7 47,6 48,4 49,0 28,1 28,8 93,9 100,2 69,3 72,3 4,3% Heildarmjólkurframleiðsla, milljónir kg. 5.615 5.672 2.330 2.362 156 151 1.392 1.401 2.705 2.773 12.198 12.359 1,3% Meðalframleiðsla pr. bú, þúsundir kg 1.998 2120 403 440 288 284 192 194 832 917 621 656 5,6% Meðalinnvigtun mjólkur í afurðastöð pr. kú 9.913 9.970 9016 9.241 5.950 5.779 6.828 6.727 8.852 9.139 8.963 9.074 1,2% Svíþjóð NorðurlöndinDanmörk Finnland Ísland Noregur Dagskrá fundanna: Almenn kynning á BÍ Farið yfir breytingarferli samtakanna Starfsskilyrði landbúnaðarins Stóru verkefnin framundan Umræður Bændafundir 2021 Fylgstu með bændum á Facebook, á bondi.is og bbl.is Fundarstaður Dagsetning Tími Svæði Borgarnes 23. nóvember, þriðjudagur 12:00 B59 Hótel Geirsgötu 9, 101 Reykjavík Hafnarstræti 91, 600 Akureyri Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir styrkumsóknum Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022. Auglýst er að nýju vegna formgalla við birtingu auglýsinga sem birtust 23. og 25. september sl. en umsóknir sem bárust skv. þeirri auglýsingu halda gildi sínu og ekki þörf á að senda þær aftur inn. Framkvæmdasjóðurinn ármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila. Sjóðnum er heimilt að ármagna framkvæmdir er snúa að öryggi ferða- manna, náttúruvernd og uppbyggingu, viðhaldi og verndun mann- virkja og náttúru og ármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda. Nánari upplýsingar má finna á vef Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is Umsóknartímabil er frá og með mánudeginum 15. nóvember til kl. 13:00 þriðjudaginn 7. desember. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita. Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is www.ferdamalastofa.is upplysingar@ferdamalastofa.is HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook Smáauglýsingar 56-30-300

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.