Bændablaðið - 18.11.2021, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 55
Enn og aftur er Covid að stríða
okkur og eflaust verður það svo
um einhvern tíma til viðbótar,
jafnvel ár (vonandi ekki því ég,
ólærður maðurinn, þarf svo mikið
að lesa og fræðast til að koma
svona pistlum um málefni sem
ég veit ekkert um skammlaust
frá mér að það er mér erfitt og
tímafrekt).
Fyrir réttum tveim árum var
fyrsta Covid-19 smitið greint (17.
nóvember 2019 í Kína), en aldrei í
sögulegum heimildum hefur nokkur
pest farið eins hratt um allan heim
eins og Covid-veiran. Þegar faraldur
dreifist út fyrir landamæri lands, þá
verður sjúkdómurinn opinberlega að
heimsfaraldri. Sé saga heimsfaraldra
og smitpesta skoðuð þá er fyrsta
heimildin frá Aþenu um 430 fyrir
Krist, pestin dreifðist, sem er talin
hafa verið taugaveiki, náði til
nálægra ríkja og felldi nálægt 2 af
hverjum þrem sem fékk sjúkdóminn.
Reglulega hafa komið upp skæðar
farsóttir með hærri dánartíðni
Séu heimsfaraldrar skoðaðir þá
voru margir þeirra svo skæðir að
verstu farsóttir felldu 9 af 10 sem
fengu pestirnar. Sennilega er versta
heimildin frá 1492 eftir komu
Spánverja til Karíbahafsins sem
smituðu frumbyggja af bólusótt,
mislingum og kýlapest. Lögðu þessir
sjúkdómar frumbyggja í rúst, þar
sem allt að 90 prósent dóu um alla
Norður- og Suður-Ameríku. 1665 til
1666, pestin í London sem felldi 20%
íbúa í London. Pestin, sem var kölluð
„gubbuplágan“, var fyrst talin hafa
breiðst út með hundum og köttum,
en í seinni fræðum er talið að orsökin
hafi verið óþrifnaður, mengað vatn
og saurmengun. Spánska
veikin 1918 er enn sem
komið er mannskæðasta
pest allra tíma, leiddi til
50 milljóna dauðsfalla um
allan heim, byrjaði 1918
í Evrópu, Bandaríkjunum
og hlutum Asíu áður en hún
dreifðist hratt um heiminn.
Á þeim tíma voru engin
áhrifarík lyf eða bóluefni
til að meðhöndla þennan
dráps-flensustofn.
Baráttan við Covid-19 hvergi
eins og misjöfn á milli landa
Íslendingum gekk vel allt þar til
nú í nóvember að forðast smit.
Virðist nú svo komið fyrir okkur að
sjúkrastofnanir og sóttvarnir séu að
fara í þrot og við blasi neyðarástand.
Fólk tók vel leiðbeiningum
framan af ári og „flestir“ fóru eftir
þeim sóttvarnarráðum sem gefnar
voru til að forðast smit. Bólusetning
gekk vel og gaf vonir um að gefa
mætti eftir í sóttvörnum, en því
miður virðist þessi veira ná að
læða sér inn í gegnum bólusetta
einstaklinga.
Það góða við bólusetninguna
er að þeir einstaklingar veikjast
mun vægar en þeir óbólusettu
sem sýnir að bólusetningin er að
virka. Þess vegna er nú boðað til
örvunarskammts af bóluefni sem er
að mati fræðinga það sem þarf til að
ná því sem kallast „hjarðónæmi“.
Fyrir mér ólærðum manni um smit
og læknisfræði tel ég að mér beri að
fara eftir ráðleggingum fræðimanna
í læknavísindum enda ekki með lær-
dómsgráðu til að andmæla þeirra ráð-
leggingum. Furða mig oft á ummæl-
um fólks með enga læknisfræðilega
þekkingu sem er að gaspra um lækn-
isfræði. Tökum okkur nú saman og
klárum þetta í sameiningu svo við
getum haldið jólin með þeim hefðum
sem við þekkjum.
Líkja mætti Covid-baráttu
Íslendinga við Guttavísur
Stefáns Jónssonar
Ef rifjað er upp í huganum Guttavísur
Stefáns Jónssonar og kveðskapurinn
settur í huganum sem barátta
Íslendinga við Covid þá er hægt að
brosa að öllu saman:
Þórólfur, Alma og Víðir væru
pabbi og mamma og framhald vís-
unnar væri sú að þjóðin í heild væri
Gutti: Snúa mætti ýmsu úr kveð-
skapnum sem óþekkt Gutta var sögð
vera þegar slakað var á sóttvörnum
og bólgna nefið sem mætti hafa á
tröll væri yfirfullar sjúkrastofnanir.
Hvern á svo að flengja eins og ein
línan í kvæðinu gefur til kynna?
Það er ekki spurning hverja á að
flengja. Það eru þeir sem ekki vilja
fara að ráðum „pabba og mömmu“
(þríeykisins), þiggja ekki bólusetn-
ingu, nota ekki grímu o.fl. Svo er
það ríkisstjórnin sem ekki er sam-
mála um aðgerðir, þarf þá ekki
bara að flengja „ræflana“ sem eru
ósammála?
ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI
KROSSGÁTA Bændablaðsins
Lausn á krossgátu í síðasta blaði
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • Vefverslun: www.skorri.is
Öll hleðslutæki með afslætti fram að jólum
Hleðslutæki
20%
Afsláttu
r
Jólatilboð!
GRYFJA
BLAÐRA
HEGNI
ÁFORM
MERKING
TULDUR ÖRLÆTI
BÓK-
FÆRÐUR
KOSNING
VINNUVÉL
PATA
MEGA TIL
VIÐUR-
EIGNA
KÆR
KLINK
SKAMMIR
KIDDA
VENJU-
LEGAST
ÞVAGA
ÞYKIR
UTAN
GRÓÐI
SKOLLANSFÓTMÁL
HVORT
UPPLJÚKA
BÝSN
TVÍHLJÓÐI
VESÆLL
NIÐUR-
FELLING FISKUR
SAGGI
FITA
FUGL
MEGN-
UÐUM
SKRÆLNA
ARMA
SKIPAST
RÍKI Í
AFRÍKU
VIT
STAFUR
ÍMYNDUN
ÓFÁ
FROSKUR
NÆÐI
NAÐRA
RÆKTAR-
LAND
ÁS
HROKI
GÖTU
SVEIFLA
DVELDU
UPPTÖK
STÖÐUGT
SARG
HÓLS
BLANDAR
ÞVENGUR
GIN
ÁTT
HÓTUN
VOFUR
RÝJA
FÆRNI
SJÁST
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
164
LÖGMÁL ÁRS-
GAMALL FÁLMA KK NAFN UPPNÁM MISBJÓÐA RÓMVERSK
TALA
GVALD-
SVÆÐI R E I F A D Æ M I
RVONDUR E I Ð U R RÖÐULL
YFIRHÖFN S Ó L
ÓHÆTTA G N M I K I Ð VESÆLAR
L Æ V A NÝJA
SMÁBITI U N G A
PRUFA
FJÖLDI
ÓLÆTI S K A R I ÝKJUR
TRÉ Ö F G A R
KVIKGRÓANDI
SDEYFA
ÁFLOGUM
STÓRT
VÍN
S M A L A FLAN
DÚKUR
DÖGG S E G L HNUSA TUNGU-
MÁL MSAFNA
SAMAN
J Á T A RISPAN
VELDIS R Á K I N SPIL
SVÖRÐ N Í ABEKENNA
Á T
SVART-
LIST
NEYTA G R A F Í K BRAK
GLUMDI M A R RSNÆDDI
V A N KLAKA
ÓNÁÐA Í S A GUFU-
HREINSA
AUÐUR
STOPP G Ó S S HARLAOF LÍTIÐ
A STÆKKAÐI
DANA J Ó K LÆRA L E S A MJAKA
ÁN A K A
R J Ó M I SMÁU
TALA L I T L U FRÁ
BEITA A FMJÓLKUR-
AFURÐ
M Ó T A S T
EYJA Í
EVRÓPU
TVEIR EINS M A L T A SAMTÖK AFORMAST
Á
L
T
A
A
M
K
A
RÍKI Í
ARABÍU
Ð
Í
U
R
R
A
VINNA AÐ
N
S
TEMUR
I
A
N
G
N
A
A
RÁREYNSLA
MÁTTLAUS
163
H
Ö
FU
N
D
U
R
B
H
•
B
R
A
G
I@
TH
IS
.I
S
•
K
R
O
SS
G
A
TU
R
.G
A
TU
R
.N
ET
Kemur næst út
2. desember
Covid „Guttavísur“
Látum prófa okkur við minnsta grun um smit.
. Til að bregðast við sjúkrarýmisvanda hafa
verið sett upp bráðabirgðasjúkrahús víða vegna
Covid-19.