Bændablaðið - 18.11.2021, Side 57

Bændablaðið - 18.11.2021, Side 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 18. nóvember 2021 57 Þessi fallega peysa er prjónuð úr dásamlega DROPS Wish. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, marglitu mynstri og háum kanti í hálsmáli. DROPS Design: Mynstur wi-011 Stærðir: S (M) L (XL) XXL (XXXL) Yfirvíd: 88 (94) 106 (112) 128 (138) cm Garn: DROPS WISH (er á 30% afslætti í Handverkskúnst til áramóta) - Gallabuxnablár nr 09: 400 (400) 450 (500) 550 (600) g - Rjómahvítur nr 01: 50 (50) 50 (100) 100 (100) g - Beige nr 05: 50 (50) 50 (100) 100 (100) g Prjónar: Sokka- og hringprjónar 40 og 60-80 cm nr 7 og 8 Prjónfesta: 11 lykkjur x 15 umferðir með slétt- prjóni = 10x10 cm. Útaukning/úrtaka (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 13. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 13. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum, þá er prjónuð í þessu dæmi 12. og 13. hver lykkja slétt saman. Mynstur: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstr- ið er prjónað í sléttprjóni. Leiðbeiningar: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. Úrtaka (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjóna- merki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Affelling: Til að koma í veg fyrir að affellingar- kanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bak- stykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Hálsmál: Fitjið upp 52 (56) 56 (60) 60 (64) lykkj- ur á stuttan hringprjón nr 7 með gallabuxnablá- um. Prjónið 1 umferð slétt og síðan stroff (= 2 lykkjur snúið slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Berustykki: Skiptið yfir á hringprjón nr 8. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 48 (52) 56 (60) 68 (72) lykkjur – sjá ÚTAUKNING/ ÚRTAKA. Sjá LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 12 (13) 14 (15) 17 (18) mynstu- reiningar með 4 lykkjur). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæð- ina eru 144 (156) 168 (180) 204 (216) lykkjur í umferð. Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni með gallabuxnabláum. Í næstu umferð er lykkju- fjöldinn jafnaður út til 144 (156) 176 (184) 204 (220) lykkjur. Þegar stykkið mælist 25 (25) 25 (27) 29 (31) cm, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 21 (23) 26 (27) 31 (34) lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 30 (32) 36 (38) 40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 (6) 6 (8) 8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42 (46) 52 (54) 62 (68) lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30 (32) 36 (38) 40 (42) lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 (6) 6 (8) 8 (8) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 21 (23) 26 (27) 31 (34) lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú mælt. Fram- og bakstykki: = 96 (104) 116 (124) 140 (152) lykkjur. Haldið áfram með litnum gallabuxnablár, prjónið sléttprjón hringinn. Prjónið þar til stykkið mælist 15 (17) 19 (19) 19 (19) cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið JAFNFRAMT út 12 (12) 12 (12) 16 (16) lykkjur jafnt yfir = 108 (116) 128 (136) 156 (168) lykkjur. Lykkjur eru auknar út til að stroffið sem prjóna á dragi ekki stykkið saman. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur snúið slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54 (56) 58 (60) 62 (64) cm frá öxl. Ermar: Setjið 30 (32) 36 (38) 40 (42) lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón / sokkaprjóna nr 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6 (6) 6 (8) 8 (8) lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi með litnum gallabuxnablár = 36 (38) 42 (46) 48 (50) lykkj- ur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 11 (10) 7 (6) 4 (4) cm millibili alls 3 (3) 4 (4) 5 (5) sinnum = 30 (32) 34 (38) 38 (40) lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 27 (26) 28 (26) 25 (23) cm frá skiptingu – eða að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 10 cm til loka máls). Nú eru auknar út 10 (8) 10 (8) 10 (8) lykkjur jafnt yfir = 40 (40) 44 (44) 48 (48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur snúið slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 10 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir snúnar sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 40 (38) 38 (36) 35 (33) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina alveg eins. Prjónakveðja, mæðgurnar í Handverkskúnst www.garn.is Mynstruð dömu- peysa fyrir veturinn HANNYRÐAHORNIÐ Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Létt Þung Miðlungs 1 8 4 2 6 8 7 1 4 3 4 3 1 7 5 9 2 9 4 5 7 2 1 6 9 Þyngst 9 4 5 1 8 3 7 5 1 5 6 9 4 5 3 7 7 2 6 4 9 1 4 8 1 3 4 7 9 2 8 4 7 9 7 1 9 3 2 4 5 1 7 6 2 3 8 9 2 9 6 7 3 8 5 1 8 6 1 4 5 7 6 9 4 8 7 8 1 3 4 Gera heljarstökk FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Hafþór er ljúfur og góður strákur sem elskar handbolta og að leika við vini sína. Nafn: Hafþór Einarsson. Aldur: 9 ára. Stjörnumerki: Naut. Búseta: Mosfellsbær. Skóli: Krikaskóli. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur. Uppáhaldsmatur: Hamborgari. Uppáhaldshljómsveit: Toto. Uppáhaldskvikmynd: James Bond. Fyrsta minning þín? Þegar ég fékk gat á höfuðið, 2 ára. Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Já, handbolta. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Handboltamaður. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Gera heljarstökk í sundi. Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt um jólin? Opna pakka. Næst » Hafþór skorar á Brynhildi Ylfu, vinkonu sína, að svara næst.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.