Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Qupperneq 4

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Qupperneq 4
talið fatlað fólk til fullgildra borgara. Skilyrði þess að starfskraftar fatlaðra fái notið sínu eru fyrst og fremst þau að sam- félagið mæti sérstökum þörfum þeirra og vandamálum sem af fötluninni leiðir, og leysi þau. En á það hefur löngum skort. Á síðustu tímum hafa viðhorfin þó smám saman verið að breytast til bóta, ekki síst fyrir vaxandi athafnasemi hinna fötluðu sjálfra. I markaðsþjóðfélögum nútímans er jafn réttur þegnanna ekki sjálfsagður, þess vegna hefur öll saga síðustu tíma í Evrópu mótast af baráttu þeirra þjóðfélagshópa, sem afskiptir voru, fyrir auknu jafnrétti til lífsgæðanna, sem samfélagið útdeilir þegnum sínum. I samræmi við þessa þróun var það sam- eiginlegt álit þeirra, sem stofnuðu Sjálfs- bjargarfélögin, að með eigin samtökum kynni fatlað fólk að geta þokað réttinda- málum sínum meira áleiðis, en með því að hlíta í öllu forsjá hinna ófötluðu, minn- ugir þess að ,,sá er eldurinn heitastur, er á sjálfum brennur“. Þetta grundvallar- sjónarmið hefur ekki breyst að liðnum tveim áratugum. Það hefur fleirum og fleirum smám sam- an orðið ljóst að barátta fatlaðs fólks fyrir jafnrétti er pólitísk í eðli sínu eins og öll mannréttindabarátta hefur ætíð verið. Gildir jafnt hvort barist er fyrir jafn- rétti til vinnu, menntunar, íþróttaiðkunar, íbúða, mótunar umhverfis og opinberra bygginga, svo að örfá atriði séu nefnd. Ástandi þessara mála verður ekki breytt fötluðum í hag, svo að verulegt gagn sé að, nema tilkomi lög og reglugerðir, sem aðeins stjórnvöld þjóðarinnar geta sett og látið framkvæma. Félagsmál fatlaðra eru álíka fjölþætt og sjálft þjóðfélagið. Barátta þeirra fjall- ar ekki um forréttindi, heldur jafnrétti á við aðra á öllum sviðum þjóðlífsins. Pólitísk starfsemi þeirra felst í óþreyt- andi upplýsingastarfi og kröfugerð um að ^ þjóðfélagið mæti sérstökum þörfum þeirra svo að það geti lifað á eðlilegan hátt sem fullgildir þjóðfélagsþegnar. Félögum í Sjálfsbjörg fer stöðugt fjölg- andi, einnig styrktarfélögum, sem af ósér- plægni og áhuga vinna fyrir málstað sam- takanna. Styrktarfélagar Sjálfsbjargar skilja þann mikilvæga sannleika að eng- in líftrygging, engin slysatrygging jafn- ast á við þjóðfélagslega samhjálp, sem viðurkennir hinn fatlaða sem fullgildan samborgara, hvort heldur er á spítalan- um, endurhæfingarstöðinni, vinnustaðn- um eða hvar annars staðar, sem hann er staddur í umferð dagsins, í þjóðfélagi, sem lætur þegna sína ekki gjalda þess að þeir hafa orðið fyrir óhappi í verksmiðjunni, á þjóðveginum eða annars staðar í þjóð- lífinu. — Enginn veit fyrirfram hver næst- ur verður á slysalistanum. Hvernig er þá réttindamálum fatlaðra háttað á líðandi stund? Sú stofnun sem mikilvægust er fyrir hag þeirra er Tryggingastofnun ríkisins, sem rekin er samkvæmt lögum um almanna- tryggingar. Hún annast lífeyris- og bóta- greiðslur hvers konar. Lög þessi eru í sí- felldri endurskoðun og bótagreiðslur og ^ upphæð þeirra breytingum háðar. Þannig hefur kaupmáttur örorkulífeyris breyst síðustu fjórtán árin miðað við raungildi lífeyrisins 1971 (þ.e. viðmiðunin er 100 árið 1971). Kaupmáttur örorkulífeyris árið 1964 var 80,5, — árið 1966 84,4, — árið 1968 84,0, - árið 1970 83,2, - árið 1971 100,0, - árið 1972 117,1, - árið 1973 115,4, — árið 1974 115,3, — árið 1975 98,6, — árið 1976 95,3, - árið 1977 104,4. Mesta réttarbót örorku- og ellilífeyris- þega frá upphafi almannatrygginga á Is- landi er ákvæði um tekjutryggingu, sem * tekið var upp í lögin um almannatrygg- 2 SJÁLFSBJÖRG
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.