Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Blaðsíða 44
BJÖRGÚLUR ANDRÉSSON:
"j álpartœkjabankinn
Hjálpartækjabanki Rauða kross íslands
og Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra.
Almennt er þetta fyrirtæki nefnt Hjálp-
artækjabankinn.
Hjálpartækjabankinn er eins og fullt
nafn hans bendir til í eigu Rauða kross ís-
lands og Sjálfsbjargar, l.s.f.
Hjálpartækjabankinn tók til starfa í
júlímánuði árið 1976 og hefur því um þess-
ar mundir starfað í um það bil tvö ár.
I upphafi var starfsemin einkum sú að
leigja út hjálpartæki, svo sem hækjustafi
og hjólastóla.
Fljótlega hóf Hjálpartækjabankinn einn-
ig innflutning og sölu hjálpartækja, og er
nú umboðsaðili fyrir fyrirtækið Ortopedia
í Vestur-Þýskalandi.
Framleiðsluvörur Ortopedia eru einkum
hjólastólar, göngustafir, hækjur, göngu-
grindur, baðhjólastólar, baðsæti, hjálpar-
tæki til notkunar í eldhúsi, hjálpartæki til
að matast með.
Leigustarfsemi.
Sem dæmi um leigustarfsemi má nefna
meðal annars að á árinu 1977 voru að
jafnaði leigðar út um 100 hækjur á mán-
uði og heildar f jöldi leiguþega var nokkuð
á fimmtánda hundrað. Auk hækjanna
voru leigðir út hjólastólar, göngugrindur
og fleira.
Sjúkrarúm voru einnig lánuð út hjá
Hjálpartækjabankanum, til notkunar í
heimahúsum. Sjúkrarúmin eru ætluð fólki
sem kemur út af sjúkrahúsum, en hefur
ekki náð heilsu.
Enn sem komið er, er Hjálpartækjabank-
inn þó mjög vanbúinn af tækjum fyrir
heimahjúkrun.
Hjálpartæki.
I starfi mínu við Hjálpartækjabankann
finnst mér dálítið hafa borið á því, sem
ég vil kalla, neikvæða afstöðu fólks til
hjálpartækja.
Flestir þekkja hin algengustu hjálpar-
TE 902, rafknúinn, fyrirferðarlítill hjólastóll.
42 SJÁLFSBJÖRG