Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Síða 5

Sjálfsbjörg - 01.07.1978, Síða 5
ingar árið 1971. Kaupmáttur örorkulíf- ^ eyris með tekjutryggingu var árið 1971 100 eftir sömu viðmiðun en varð 1972 166,4 og hækkaði í 180 árið 1977. Samkvæmt ákvæðum laganna er veitt- ur mikill styrkur til kaupa á hjálpartækj- um. Mörg nauðsynlegustu hjálpartæki, svo sem hjólastólar, gervilimir og umbúðir margskonar eru greidd að fullu af Trygg- ingastofnuninni, en vegna annarra er veitt- ur mikill styrkur. Bifreiðin, sem kalla má dýrasta hjálpartækið, heyrir hins vegar ekki undir Tryggingastofnun ríkisins, enda i gegnir þar öðru máli. Styrkur til kaupa á bifreið fyrir fatlaða hefur lækkað hlut- fallslega hin síðari ár og er nú miklu lægri að raungildi en fyrir um það bil 10 árum. Um það verður þó ekki deilt að nothæfur bíll er lykiltæki fyrir fótvana fólk til að geta sinnt vinnu á markaði samfélagsins — að ekki sé minnst á þá lífsfyllingu, sem hreyfihömluðum er að geta ferðast um um- hverfi sitt á eigin spýtur. En það er ein af jafnréttiskröfum fatlaðra, að þeir séu ekki lokaðir inni, ef annars er kostur. — Bifreið og rekstur hennar er hins vegar svo fjárfrekt tæki á íslandi nú um sinn, að lægstlaunafólk, þ.e. þeir sem njóta tekjutryggingar og aðrir álíka, nálgast !>■ ekki rétt til slíkra hluta, án sérstakra ráð- stafana af opinberri hálfu. ,,Lög um endurhæfingu“ voru samþykkt á alþingi 14. apríl 1970. Því var treyst að hér hefði unnist meiri háttar sigur í rétt- indabaráttu fatlaðra. Lögin fjalla um endurhæfingarstofnanir og vinnustaði fyrir öryrkja, skipulag þeirra, uppbyggingu og rekstur. I þeim eru ákvæði um framlög og lán, sem tryggt geta uppbyggingu þessara stofnana, en um kostnað við aðrar framkvæmdir og fjármögnun þeirra gegnir öðru máli. 1 þriðju og fjórðu grein laganna ræðir um gerð 10 ára áætlunar fyrir tímabilið 1972—1982, og samræmingu endurhæf- inga- og vinnustöðva öryrkja í landinu. Ennfremur segir svo í sextándu grein: „Endurhæfingarráð skal í samvinnu við vinnumiðlunina í landinu láta gera könn- un á atvinnulífinu með tilliti til hentugra starfa fyrir fólk með skerta vinnugetu, gera spjaldskrá yfir fyrirtæki, er slíkum störfum ráða, og vinna að því, að þeir fái aðgang að þessum störfum“. Lög um endurhæfingu voru átta ára í vor 14. apríl og þá voru liðin 6 ár af tíma- bili tíu ára áætlunarinnar — 1972—1982, — en fatlað fólk í landinu hefur enn ekki orðið vart við áætlun þessa og ekki held- ur „könnun á atvinnulífinu með tilliti til hentugra starfa fyrir fólk með skerta vinnugetu . . .“, sem um getur í 16. grein laganna. Sérkennilegustu er þó tíunda grein lag- anna, sem hljóðar þannig: „Verði halli á rekstri endurhæfingar- stöðvar eða öryrkjuvinnustofa, getur End- urhæfingarráð lagt til, að hann verði að einum þriðja hluta greiddur úr atvinnu- leysistryggingasjóði, að einum þriðja hluta af lífeyrisdeild Tryggingastofnunar ríkis- ins og að einum þriðja hluta af rekstrar- aðila, og er þá stjórn atvinnuleysistrygg- ingasjóðs og tryggingaráði, hvoru um sig, heimilt að veita styrki samkvæmt tillög- um endurhæfingarráðs.“ Þar sem hér ræðir um endurhæfingar- stöðvar og öryrkjavinnustofur, sem að hluta er ætlað að annast verkþjálfun sem þátt í endurhæfingunni, er fyrirsjáanlegt að þær muni ekki skila arði. En verði halli á fyrirtækinu leyfist öðrum aðila (Endur- hæfingarráði) að leggja til að þriðja aðila (Atvinnuleysistryggingasjóði og lífeyris- deild Tryggingastofnunar ríkisins) verði heimilað að greiða hluta af hugsanlegum rekstrarhalla. „Lög um endurhæfingu“ leggja engum þær skyldur á herðar að SJÁLFSBJÖRG 3

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.